Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Side 26
Helgarblað 24.–27. febrúar 20172 Allt fyrir heimilið - Kynningarblað
Búð full af brosum
Kastalinn, bráðskemmtileg hönnunarverslun á Selfossi
K
astalinn er án efa ein
skemmtilegasta hönnunar-
búð landsins með ógrynnin
öll af íslenskri hönnun.
Þegar Kastalinn varð eins
árs í fyrra og hóf eigandinn, María
Marko, að flytja inn vel valdar er-
lendar hönnunarvörur sem gleðja
bæði augu og huga. „Verslunin er
L-laga og annar anginn er alveg ís-
lenskur á meðan hinn anginn er full-
ur af litaglaðri hollenskri hönnun
sem vekur kátínu, jarðbundinni
danskri vörulínu og bandarískum
vörum með kolsvörtum húmor sem
eru jafnframt vandaðar og úr góð-
um og efnum. Svo vekja frönsku an-
anaslamparnir alltaf athygli og aðdá-
un, enda bæði ótrúlega skemmtilegir
og heillandi,“ segir María. Kastalinn
býður upp á alþjóðlega hönnunar-
blöndu sem heillar fagurkerann í
okkur öllum. María er menntað-
ur vöruhönnuður og lærði einnig
barnamenningarhönnun í Svíþjóð.
Hún rekur hönnunarstúdíó í versl-
uninni og hannar þar fallegar vörur
sem hún selur.
Leikgleðin í fyrirrúmi
Það er alltaf jafn gaman kíkja í heim-
sókn í Kastalann hennar Maríu á Sel-
fossi enda einkennist vöruúrvalið
af vönduðum og skemmtilegum
hönnunarvörum. „Heimili manns
er kastalinn hans“, eru einkenn-
isorð verslunarinnar og leitast
María við að bjóða upp á fjölbreytta
hönnun sem er hvort tveggja mjúk
og hlý; og litrík og leikglöð. María
opnaði einnig spánnýja og glæsilega
vefverslun í nóvember í fyrra þar
sem einnig er hægt að nálgast allar
vörur Kastalans. „Þar má til dæm-
is panta fiskalampa frá Hollandi,
notalegar danskar leirkrúsir, dulítið
drungalega kertastjaka og íslensk
plaköt með eyrnamörkum. Við erum
líka með ótrúlega fín hvítvínsglös
í nokkrum litum sem fallegt er að
blanda saman. Þetta fæst allt hérna.
Einn viðskiptavinur í sumar kvaddi
okkur með orðunum: „A shop full of
smiles!“ sem er einmitt það sem við
viljum vera,“ segir María.
Hönnunarbland í poka
Kastalinn grænmálaði er staðsettur á
Selfossi, beint á móti hótelinu.
„Við erum hægra megin við
brúna þegar maður keyr-
ir frá Reykjavík,” segir
María. Þó má sannar-
lega segja að það sé
fyllilega þess virði að
taka á sig örlítinn krók
úr alfaraleið til þess
að kíkja í Kastalann,
ganga aftur út með bros
á vör og hönnunarbland
í poka. n
Kastalinn er staðsettur á
Eyravegi 5, Selfossi. Opið er í versl-
uninni mán–fös 10–18 og lau 12–
16. Langi þig að kíkja við í Kastal-
anum utan opnunartíma er ekkert
mál að hafa samband við Maríu og
hún býður þér inn. Sími: 663-3757, e-
mail: postur@kastali.is
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefverslun Kastalans; www.kastali.
is og á Facebook-síðunni: Kastalinn.
Einnig má fylgjast með versluninni á
Snapchat undir nafninu: Kastalinn
og á Instagram: Kastali.is
Myndir Sigtryggur Ari
„Á endanum verður
þetta ríkisperan“
Rafvörumarkaðurinn: LED-perur mun hagstæðari en glóperur
S
umir eru hikandi af því það
er hærra verð á LED-per-
um. En þegar upp er staðið
er alltaf miklu hagstæðara
að kaupa LED vegna þess að
endingin er miklu meiri. Þetta borg-
ar sig alltaf. Einnig má nefna varð-
andi útiljósin að þá er það þannig
með glóperur að það myndast raki
inni í ljósinu þegar hitinn frá því
blandast við útikuldann þegar frost
er. Þetta vandamál er úr sögunni
þegar notast er við LED-útiljós.“
Þetta segir Sigurður Davíð Skúla-
son, sölumaður hjá Rafvörumark-
aðnum við Fellsmúla í Reykjavík, en
verslunin er klár í slaginn fyrir LED-
væðinguna sem nú á sér stað.
„Lýsingin er bjartari, en í raun
er hægt að stýra því alveg eftir eigin
óskum, því það er til svo mikið úr-
val af mismunandi LED-perum.
Sveigjanleikinn er svo miklu meiri
en í glóperunum og svo má nefna að
LED-perurnar eru núna allar orðnar
dimmanlegar, þannig að birtustig-
inu ræður þú sjálfur, auk þess sem
LED-peran er svona almennt bjart-
ari. Þannig er t.d. 60w LED-peran
806 lm en 60w glópera er bara 530
lm. Hún lýsir minna.“ (Ath. Lúmen er
SL-mælieining fyrir ljósflæði, táknuð
með lm).
Rafvörumarkaðurinn býður upp
á LED-perur í hæsta gæðaflokki og
þar er Philips fyrirferðarmikið merki:
„Philips er sígilt merki og mjög fínt.
Við erum með Philips innikúpla, stíl-
hreina og mjög hentuga. Við eigum
6w í LED sem jafngilda 40w ef um
glóperu væri að ræða. 10w jafngilda
60w og 16w jafngilda 85w. Það eru
þessar þrjár helstu gerðir af birtu-
stigum,“ segir Sigurður og nefnir
til sögunnar fleiri sterk merki, til
dæmis Calex en það eru mjög flott-
ar og vandaðar perur. „Við erum
með LED-útiljós frá Fumagalli. Þau
eru með LED-platta sem hægt er að
skipta um, sem er mikill kostur. Með
plattanum fæst miklu meiri dreifing
í ljósið en það er ekki þessi punktur
í miðjunni sem fylgir glóperunni
heldur ljós allan hringinn – dreifist
miklu betur.“
Sem fyrr segir kosta LED-perur
meira en glóperur en eru mun ódýr-
ari þegar upp er staðið þar sem þær
endast margfalt lengur. Rafvöru-
markaðurinn býður líka upp á ódýr-
ari LED-perur fyrir þá sem eru hik-
andi og vilja prófa LED áður en þeir
skipta yfir. Þær perur hafa þó ekki
hina dæmigerðu endingu LED-ljósa,
en eru ágætt milliskref. Sigurður seg-
ir að LED-væðingin sé á fullri ferð
um þessar myndir. „Það hefur orðið
mikil aukning það sem af er þessu ári
og frá því skömmu fyrir áramót. Við
seljum nánast eingöngu LED-per-
ur í dag þannig að þetta er það sem
koma skal. Á endanum verður þetta
ríkisperan.“ n
Rafvörumarkaðurinn er sem fyrr
segir í Fellsmúla í Reykjavík. Opið er
virka daga frá 9 til 18, laugardaga frá
11 til 16 og sunnudaga frá 12 til 16.
Rafvörumarkaðurinn er á Facebook:
facebook.com/rafvorumarkadurinn.