Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Síða 30
Helgarblað 24.–27. febrúar 20176 Allt fyrir heimilið - Kynningarblað Lýsing & hönnun Er með lausnir fyrir alla Þ egar kemur að hönnun rýmis þá skiptir miklu máli að velja rétta lýsingu, þar sem lýsingu getur gert mjög mikið til að skapa rétta stemmingu. Lýsing & Hönnun er lítið fjölskyldufyrirtæki sem kapp- kostar að veita persónulega og góða þjónustu varðandi allt sem við- kemur lýsingu, í stórum sem smá- um verkefnum, fyrir allar tegundir bygginga. „Starfsmenn okkar eru sannkallaðir reynsluboltar í faginu en Heimir Jónasson rafmagnsiðn- fræðingu og eigandi fyrirtækisins hefur mjög mikla reynslu í raflagna- og lýsingarhönnun, Guðmundur Helgi Pálsson er reyndur lýs- ingarhönnuður og Róbert Hjaltason er menntaður rafvirki og rafmagns- iðnfræðingur, en hann hefur góða reynslu í raflagnahönnun,“ segir Erla Heimisdóttir viðskiptafræðing- ur, en hún stofnaði Lýsingu & Hönnun árið 2007 ásamt eiginmanni sínum, Heimi Jónassyni rafmagnsiðn- fræðingi. Ýmiss konar verkefni „Við höfum verið afar lánsöm að fá að taka þátt í ýmsum skemmti- legum verkefnum. Bæði höfum við unnið með húseigendum að endur- bótum og nýbyggingum á einbýlishúsum, sem og arkitektum og innan- hússarkitektum í sér- lega fjölbreyttum og spennandi verkefnum bæði stórum og smá- um. Hvort sem um er að ræða eina íbúð, ein- býlishús, hótel, skrif- stofuhúsnæði, íbúða- blokkir, veitingastaði eða íþróttamannvirki, þá sjáum við um þetta allt enda kunnum við til verka,“ segir Erla. Allt á einum stað „Við vitum að það er í mörg horn að líta þegar verið er að byggja og þá hjálpar að geta feng- ið allt sem snýr að rafmagnshlut- anum á einum stað. Hugmyndin að fyrirtækinu var því upphaflega sú að aðstoða húsbyggjendur við allt sem sneri að raf- magni í húsum, svo sem raflagnateikningar, lýs- ingarhönnun, rafbúnað og allt það val sem við- komandi stendur frammi fyrir. Það er alveg greini- legt að mikil þörf hefur verið á markaðnum fyrir þjónustuna sem við bjóð- um upp á, enda hefur ver- ið mikið að gera hjá okk- ur undanfarið,“ segir Erla. En líkt og nafnið gefur til kynna þá er starfsemi Lýs- ingar & Hönnunar tvíþætt. Annars vegar er um að ræða verk- fræðiþjónustu í raflagnateikning- um og lýsingarhönnun. Hins vegar er Lýsing & Hönnun verslun þar sem aðaláherslan er á allar gerðir ljósa fyrir bæði einstaklinga og fyrir- tæki. „Í versluninni erum við með gríðarlegt úrval af fallegum ljósum og ljósakrónum sem prýða hvers kyns rými,“ segir Erla. Einnig býður fyrir tækið upp á sérfræðiráðgjöf í lýsingarhönnun fyrir einstaklinga og fyrirtæki, þar sem starfsmenn á vegum fyrirtækisins mæta á stað- inn, taka út húsnæðið og ráðleggja varðandi raflagnir og uppsetningu á lýsingu. HDL hita- og ljósastýrikerfi „Mikill meirihluti af húsbyggjend- um sem leita til okkar velur HDL hita- og ljósastýrikerfi, en þetta kerfi býður upp á endalausa möguleika sem uppfylla mjög mismunandi kröfur. Verðið kemur líka skemmti- lega á óvart, en HDL kerfið er alls ekki mikið dýrara en að vera með hefðbundna ljósdeyfa og hitanema,“ segir Erla. Með HDL kerfinu er með- al annars hægt að stjórna ljósum og hita með spjaldtölvum. Þannig má breyta stemningu í rýminu á afar einfaldan og þægilegan hátt. Einnig er hægt að stýra hita og ljósum með einum rofa sem myndar heildstætt kerfi. Nýlega kom HDL svo fram með byltingarkennda nýjung sem auðveldar nú eigendum eldri húsa að vera með HDL kerfi, þrátt fyrir að raflögn hússins sé ekki sérstaklega aðlöguð að kerfinu. Um er að ræða þráðlausa rofa sem hægt er að setja nánast hvar sem er og því talsvert einfaldari í uppsetningu en hefð- bundið HDL kerfi. Veggfóður fyrir falleg rými Þó að lýsing sé í kastljósinu hjá Lýs- ingu & Hönnun þá er þar einnig hægt að fá dýrindis veggfóður frá hol- lenska fyrirtækinu NLXL. Um er að ræða gífurlega fallegt og endingar- gott veggfóður sem setur punktinn yfir i-ið í glæsilegum rýmum. Lýsing & Hönnun er staðsett að Skipholti 35, 105 Reykjavík. Opið er mánudaga til föstudaga frá klukkan 10–17 og miðvikudaga frá klukkan 10–18. Sími: 588-0506. Netfang: lys- ingoghonnun@lysingoghonnun.is. erla@lysingoghonnun.is. n „Við vitum að það er í mörg horn að líta þegar verið er að byggja og þá hjálpar að geta fengið allt sem snýr að rafmagnshlutanum á einum stað. Taurus Steakhouse Amina og Kamal ljós í antique brass frá Mullan. Íbúð Skipholti Ljós: Eden 25 cm antique brass frá Mullan. Hótel í Vestmannaeyjum Ottawa ljós, satin brass frá Mullan. Verbúð 11 Brooklyn Tin veggfóður. Íbúð í Kópavogi Tage messing frá Pholc. HDL ljósa- og hitastýrikerfi. Í heimahúsi á Íslandi Ljós: Tage svart frá Pholc.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.