Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Side 44
Helgarblað 24.–27. febrúar 201736 Heilsa Kjallaravandamál n Sum vandamálin algengari en önnur n Ýmislegt forvitnilegt í kjallaranum Þ að er ekki ofsögum sagt að við eigum mörg orð og orða- tiltæki um líffærakerfi okkar og má svo sem segja að þegar við erum að gefa þessum lík- amspörtum nafn séum við iðulega að gera það af nokkurri alúð. Snilldin er mismikil og er orðið kjallari kannski ekki það besta, en þar er verið að vísa til innri og ytri kynfæra kynjanna. Það er augljóst að einstaklingar geta glímt við ansi mörg vandamál þar, en sum eru algengari en önnur. Klamydía og kynfæravörtur Það er ákveðinn munur á milli kynja og þá eru vandamálin líka bundin að vissu leyti við aldur eða aldursskeið. Þegar við horfum til karlanna þá má segja að hjá þeim sem yngri eru sé oft- ar en ekki um að ræða óþægindi við þvaglát, verki, sviða, kláða, útbrot eða jafnvel útferð sem í mörgum tilvikum má rekja til sýkinga. Þar koma til ein- faldari þvagfærasýkingar, sveppasýk- ingar í húð eða undir forhúð, bólgur í blöðruhálskirtli en einnig kynsjúk- dómar eins og klamydía, herpes eða kynfæravörtur svo dæmi séu tekin. Mikilvægt er að átta sig á því að þrátt fyrir að vera smitaður af kyn- sjúkdómi líkt og klamydíu geta bæði karlar og konur verið einkennalaus. Því er afar mikilvægt að láta skoða reglubundið fyrir slíku, sérstaklega ef skipt er um maka, en það á við um allan aldur í raun. Ekki eins mikil reisn Hjá eldri körlum er meira um þá kvörtun að þvaglát séu að verða tregari sem orsakast oftar en ekki af stækkuðum blöðruhálskirtli. Sum- ir fá veruleg óþægindi af og jafnvel þvagteppu, því getur þurft að hefla og minnka umfang kirtilsins til að létta á þvaglátum. Ekki má gleyma því að tíðni blöðruhálskirtilskrabba- meina eykst með aldri og er mik- ilvægt að vera vakandi fyrir því. Þá upplifa karlar á efri árum að ekki sé eins mikil reisn yfir þeim og áður var sem getur verið afar viðkvæmt mál, en þarf að ræða því úrræðin eru orðin ansi mörg. Þvagleki og sýkingar Konurnar glíma við svipuð vandamál að mörgu leyti og karlarnir en þó er munur á tíðni vandamála og orsök. Líklega er ein algengasta orsök fyrir óþægindum hjá konum þvagfærasýk- ing, en þær eru mun líklegri til þess en karlar þar sem þvagrásin er styttri. Það eru þó ýms- ar aðrar ástæð- ur fyrir tíðari sýk- ingum og má þar nefna hormóna- starfsemi, en þekkt er að eftir tíða- hvörf finna kon- ur oftsinnis meira fyrir óþægind- um, þurrkur og breytingar á slím- húðinni hafa þar sitt að segja. Þá hef ég áður komið inn á það að þvagleki er tíðara vanda- mál meðal kvenna og getur komið fram á öllum aldri en þó sérstaklega eftir barnsburð og verða konur að vera meðvitaðar og gera reglu- bundnar grindarbotnsæfingar. Kynsjúkdómar Útferð, kláði og sviði er býsna al- gengt umkvörtunarefni einnig og þar geta legið til grundvallar mjög margar orsakir. Algengast er að ein- hvers konar truflun verði á bakter- íuflóru í sköpunum sem stuðlar að ofvexti á annaðhvort bakteríum eða sveppum sem aftur skapa þau ein- kenni sem konur finna fyrir. Ekki má þó gleyma öðrum sjúkdómum og ástæðum, sér í lagi ef einföld með- ferð dugar ekki. Þar koma til að sjálf- sögðu sömu kynsjúkdómar og hjá körlunum og verða konur að láta skoða sig ekki síður en karlarnir sé nokkur grunur um slíkt. Illkynja sjúkdómur Konur eftir tíðahvörf eiga hér aftur meira á hættu að finna fyrir ein- kennum vegna breytinga í slímhúð- inni, en mataræði, streita, álag og lyfjanotkun eru einnig áhættuþætt- ir. Alltaf skyldi láta skoða ef útferðin er blóðlituð, þar sem slíkt getur verið merki um illkynja sjúkdóm. Óþægindi vegna innri kvenlíf- færa eru einnig margvísleg, en ef konur finna til verkja við samfarir bendir það til bólgu eða ertingar í leghálsi, legi eða eggjastokkum og ætti að skoða það vel. Hnútar í legi, blöðrur á eggjastokkum og aðskotahlutir eins og lykkja geta valdið einkennum og er rétt að hafa í huga. Þá má ekki gleyma tíðaverkjum sem geta verið mismiklir og veru- lega einstaklingsbundnir en konur læra yfirleitt vel að þekkja þá. Svo auðvitað þungun sem þarf alltaf að útiloka – líka hjá konum á barns- burðaraldri. Bráðir og miklir kvið- verkir geta verið utanlegsfóstur og uppásnúningur á eggjaleiðara og er rétt að leita strax læknis, hið sama gildir hjá körlum ef skyndi- legir og miklir verkir koma upp í eistum. Kjallarinn geymir því ýmis- legt forvitnilegt og verra ef hann er í skralli. n Kynfæri kvenna Líklega er þvagfæra- sýking ein algengasta orsök óþæginda hjá konum. Mynd 123rf.coM „Kjallarinn geymir því ýmislegt forvitnilegt og verra ef hann er í skralli Teitur Guðmundsson læknir Góðan daginn Vandamál í „kjallaranum“ geta verið af ýmsum toga. Mynd 123rf.coM S HELGASON - Steinsmiðja síðan 1953

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.