Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.2017, Síða 45
Helgarblað 24.–27. febrúar 2017 Heilsa 37
www.avaxtabillinn.is
avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Gómsætir veislubakkar
sem lífga upp á allar uppákomur
Aðeins
á viku
á starfsmann
Ávextir í áskrift
kosta um 550 kr.
á mann á viku og
fyrirhöfn fyrirtækisins
er engin.
Vörtur eru aðallega þrenns konar. Í fyrsta
lagi frauðvörtur sem eru algengastar
meðal barna. Í öðru lagi vörtur á hönd-
um og fótum, líka algengastar meðal
barna. Í þriðja lagi kynfæravörtur, sem
eru að verða æ algengari sérstaklega í
aldurshópnum 16–18 ára.
Human Papilloma Virus
(HPV)
Það eru um það bil 60 tegundir af HPV
veirum þekktar. HPV-veirur geta bæði
orsakað kynfæravörtur og vörtur á
höndum og fótum.
Frauðvörtur (Molluscum
Contagiosum Virus)
Frauðvörtur orsakast af veirunni
Molluscum Contagiosum Virus (MCV).
Frauðvörtur eru litlar bólur (vörtur),
oft glansandi og inni í þeim situr hvítur
massi.
Vörturnar smitast milli barna, einstaka
sinnum hjá fullorðnum, eftir snertingu
við sýkta húð. Ef barn er smitað geta
vörturnar haldið áfram að dreifa sér.
Meðgöngutími veirunnar er margar vikur.
Það er misjafnt hversu mikil einkenni
börnin fá, en þau geta fengið í kjölfarið
bakteríusýkingar, örmyndun eða exem
í húðina.
Ýmsar leiðir eru til meðferðar s.s. pensla
þær með vörtueyðandi efni, skafa
vörturnar, brenna með laser eða frysta.
Ein besta leiðin til að eyða vörtunum
með sem minnstum sársauka og fyrir-
höfn er að pensla þær með vörtueyðandi
efni.
Til að pensla vörturnar er notað efni
sem er bólgu- og blöðrumyndandi og
leiðir þannig til eyðingar vörtunnar. Efnið
veldur eingöngu bólgu í efstu lögum
húðarinnar og getur því ekki valdið örum.
Eftir að efnið er borið á þarf að þvo það
af aftur. Venjulega er fyrst miðað við að
hafa efnið á í 3–4 klukkustundir eða þar
til vörturnar hafa bólgnað örlítið upp.
Síðan er farið eftir því hvernig barnið
þoldi efnið hvenær það er þvegið af næst
þegar penslað er.
Bera skal sýkladrepandi krem á vörtu-
staði að kvöldi þess dags sem penslað
er og í 3–4 daga á eftir. Ef mikill roði
er áfram í vörtunum má halda áfram í
nokkra daga til viðbótar.
Oftast ganga vörturnar til baka á 1–4
árum án meðferðar.
Vörtur á höndum og fótum
Vörtur á höndum líkjast litlu blómkáli
og eru yfirleitt í kringum neglur og á
fingrum. Þær eru flestar af völdum
Human Papilloma Virus (HPV). Börn
eiga erfitt með að láta vörturnar í friði,
þau bíta og kroppa í þær þar til blæðir
úr þeim og þá eru þær smitandi. Veiran
smitast við beina snertingu, en getur
einnig smitast á gólfum í sundlaugum.
Sum börn fá aldrei vörtur þrátt fyrir að
vera útsett fyrir veirunni, á meðan önnur
börn fá vörtur. Liðið geta margir mánuðir
frá smiti þar til varta myndast.
Vörtur á fótum myndast yfirleitt þar sem
álagið er mest. Þær eru aumar þegar
þrýst er á þær og við gang. Fótvarta er
flatt samanþjappað húðsvæði sem er
hart út til hliðanna en mýkra í miðjunni.
Ef grannt er skoðað sjást oft litlir svartir
punktar í vörtunni. Þetta eru ekki, eins
og sumir halda, rætur hennar heldur
myndast punktarnir við blæðingu.
Meðferðarúrræði við vörtum á höndum
og fótum eru að pensla þær með vörtu-
eyðandi efni, skafa vörturnar, brenna
með laser eða frysta. Það getur þurft að
endurtaka meðferð nokkrum sinnum.
Vörtur hafa undarlega hegðun, en
jafnvel þótt ekkert sé að gert þá hverfa
þær yfirleitt eftir nokkur ár. Hjá u.þ.b.
30–50% barna hverfa vörturnar innan
sex mánaða án þess að nokkuð sé gert.
Kynfæravörtur
Kynfæravörtur eru af völdum Human
Papilloma Virus (HPV) eins og flestar
handa- og fótvörtur. Vörturnar flokkast
sem kynsjúkdómur sem smitast einungis
við snertingu slímhúða við samfarir.
Hundruð einstaklinga leita lækninga
vegna kynfæravartna á ári hverju.
Áberandi er að tíðni þessarar vörtu
fer vaxandi í aldurshópnum 15–18 ára.
Veiran veldur ljósbleikum eða húðlitum
vörtum á og við kynfæri og endaþarms-
op. Venjulega er yfirborð vartnanna
flipótt og þær vaxa í klösum sem geta
orðið frekar stórir. Stundum myndast
einungis húðlitar hrufur eða bólgur, og
e.t.v. fylgir þeim örlítill kláði, sem er þá
einu einkenni sjúkdómsins. Ef vörturnar
eru í leggöngum eða á leghálsi getur
verið erfitt að greina þær. Frá því að
smit á sér stað þar til vörturnar birtast
geta liðið allt að 12 mánuðir. Þess vegna
getur verið erfitt að rekja slóðina til
rekkjunautanna sem þarf að skoða og
meðhöndla.
Fáeinar tegundir HPV hafa verið tengdar
aukinni hættu á frumubreytingum og
jafnvel krabbameini í leghálsi kvenna.
Af þeirri ástæðu er mikilvægt að taka
frumustrok reglulega frá leghálsi þeirra
kvenna sem hafa fengið kynfæravörtur.
Ef grunur leikur á vörtusmiti er mikilvægt
að láta lækni skera úr um hvort svo sé
og fá meðferð við hæfi. Algengast er
að meðferð sé hafin með því að pensla
vörturnar með vörtueyðandi efni. Efnið
er mjög sterkt og getur brennt sé það
haft of lengi. Ef meðferð með vörtu-
eyðandi efni dugar ekki þarf að grípa
til annarra aðgerða s.s. að brenna eða
frysta vörturnar.
doktor.is
Sextíu tegundir
af vörtum
Mynd 123rf.coM