Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Síða 14
Helgarblað 24.–27. mars 201714 Fréttir
Umdeildur fyrirlesari kennir
Íslendingum að verða ríkir
n J.T. Foxx stendur fyrir heilsdags námskeiði í apríllok n Snillingur eða svikahrappur?
Þ
ann 28. apríl næstkom-
andi fer viðburðurinn
Mega Speaker Reykjavík
fram á ótilgreindum stað í
Reykjavík. Þar mun banda-
ríski markaðsmaðurinn J.T. Foxx
freista þess að kenna Íslendingum
ýmis ráð til þess að verða ríkir. Foxx
kynnir sig sem helsta „ríkidæmis-
þjálfa“ (e. Wealth Coach) heims en
á sérstakri heimasíðu viðburðar-
ins má lesa um helstu viðfangsefni
Foxx á námskeiðinu. Til dæmis má
nefna „Hvernig eigi að hafa atvinnu
sína af fyrirlestrum (fyrir 500 þús-
und–2,5 milljónir hvert verkefni)“,
„Hvernig eigi að verða metsölu-
höfundur á Amazon“ og ekki síst
„Hvernig eigi að spjalla við fræga
einstaklinga eins og Al Pacino,
Sylvester Stallone, Schwarzenegger
og Zuckerberg“.
Byrjaði sem fasteignasali
Viðburðurinn er auglýstur grimmt
á Facebook þessa dagana og þar
hlekkjað í áðurnefnda heimasíðu
viðburðarins. Þar má lesa ýmsa lof-
gjörð um kappann sem heitir réttu
nafni Justin Gorenko og er rúmlega
þrítugur að aldri. Hann er fæddur í
Kanada en flutti til Bandaríkjanna
þar sem hann breytti nafni sínu í J.T.
Foxx. Að eigin sögn haslaði hann
sér völl sem fasteignasali í Flórída
áður en hann fór að hafa lifibrauð
af því að kenna öðrum að efnast.
Á heimasíðu viðburðarins seg-
ir orðrétt: „Ástæðan fyrir því að ég
er að halda þetta eins dags nám-
skeið er að ég veit hversu miklir
möguleikar felast í Reykvíkingum.
Ég er að koma til Reykjavíkur til
þess að ausa úr viskubrunni mín-
um varðandi markaðsmál og ætla
að finna næsta stjörnuræðumann,
markþjálfara og rithöfund. Vittu til,
það gæti verið þú!“
Snillingur eða svikahrappur?
Engin staðsetning er tilgreind en
fram kemur að hún verði send með
tölvupósti til þeirra sem skrá sig.
Blaðamaður prófaði að skrá sig til
leiks og fékk staðfestingu þess efnis
í tölvupóstfangið. Í því kom fram að
nákvæm staðsetning yrði gefin upp
síðar. Óhætt er að segja að nám-
skeið J.T. Foxx séu umdeild í meira
lagi. Ef leitað er að nafni hans á leit-
arvélinni Google þá kemur upp
ógrynni af síðum þar sem hann er
ýmist lofaður í hástert eða fullyrt að
hann sé fullkominn svikahrappur.
Fjölmargar síður eru síðan á hans
eigin vegum þar sem því er haldið
fram að samkeppnisaðilar hans og
óvildarmenn séu að reyna að koma
á hann höggi með því að dreifa
óhróðri um hann.
Stallone, Travolta og Vanilla
Ice
Það sem vekur ekki síst athygli
við J.T. Foxx eru tengsl hans við
fræga einstaklinga og segja má
að það veiti honum trúverð-
ugleika. Á heimasíðu viðburðar-
ins má sjá myndir af honum með
stjörnum eins og áðurnefndum Al
Pacino, Sylvester Stallone, Arnold
Schwarzenegger, John Travolta, 50
Cent, Richard Branson og síðast
en ekki síst Vanilla Ice. Þá má sjá
myndbönd á samfélagsmiðlum þar
sem áðurnefndar stjörnur eru gest-
ir á fyrirlestrum Foxx og tala hlýlega
um hann. Úrtölumenn segja að
Foxx greiði stjörnunum fyrir heim-
sóknirnar og enginn vinskapur sé
þeirra á milli.
Þá vekur það vissulega upp
grunsemdir að „heimsþekktur“
fyrirlesari eins og J.T. Foxx skuli
ekki fá neina fjölmiðlaumfjöllun
sem heitið getur. Hann fullyrðir að
Forbes og BBC hafi fjallað um sig
en ekkert er að finna um það þegar
leitað er á netinu. Þá birtir hann
mynd af sér á forsíðum tveggja
tímarita sem gefin eru út í Suður-
Afríku.
Lofrulla um viðskiptaafrek án
sannana
Hægt er að finna talsvert af mis-
áreiðanlegri gagnrýni á námskeið
og fyrirlestra J.T. Foxx þegar leit-
að er á netinu. Einn þátttakandi
á námskeiði í París, sem er sam-
bærilegt við það sem haldið verð-
ur í Reykjavík, skrifaði nýlega pistil
um reynslu sína.
Þar kom fram að dagurinn hefði
hafist á því að aðstoðarmaður
Foxx hefði hitað salinn upp í rúma
klukkustund og þá aðallega greint
frá afrekum Foxx í viðskiptalífinu.
Meðal annars sagði hann að Foxx
væri eigandi 50 fyrirtækja án þess
að tilgreina nöfn þeirra sérstaklega.
Foxx hefði síðan sjálfur stigið á svið
og að mestu leyti fjallað um eigin
auðæfi og samskipti sín við ríkt og
frægt fólk. Síðan var boðað til há-
degishlés en þá fengu þátttakendur
tilboð um að kaupa geisladiskasett,
15 diska í setti, með ítarlegum ráð-
leggingum Foxx um hvernig ætti að
efnast. Að sjálfsögðu var um sér-
stakt tilboð að ræða en nokkrir val-
möguleikar voru í boði sem kost-
uðu frá tæplega 30 þúsund krónum
og upp í 150 þúsund krónur.
Heppnir þátttakendur rukkaðir
um fimm milljónir
Eftir hlé hélt sama lofrullan áfram
en þá var tilkynnt að tuttugu álit-
legir þátttakendur yrðu valdir úr
salnum til þess að gangast undir
frekari þjálfun. Aftur voru nokkr-
ir valkostir í boði, fyrir „hina
heppnu“, sem að sjálfsögðu kost-
uðu dágóðan skildinginn. Sá dýr-
asti kostaði rúmlega fimm millj-
ónir króna en þá var um þriggja
daga námskeið að ræða og fengju
þátttakendur að hitta goðsögnina
Al Pacino í stutta stund.
Ódýrasti valkosturinn kost-
aði um 120 þúsund krónur en
það gaf viðkomandi rétt til þess
að sækja tveggja daga námskeið
á vegum J.T. Foxx
einhvers stað-
ar í heim-
inum ein-
hvern
tímann
á næstu
tíu
árum.
Flug,
gisting
og uppi-
hald ekki
innifalið.
Að
lok-
um lýsir
þátttak-
andinn
miklum
vonbrigð-
um sín-
um með að
Foxx forðaðist
augnsamband
við þátttakendur
auk þess sem hann
talaði vélrænt og öll
uppsetningin virkaði
gervileg. Þá var tækni-
leg úrvinnsla ekki upp
á marga fiska því
tölvubúnaðurinn
gaf sig ítrekað. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Foxx og Stallone „Ríkidæmisþjálfinn“ gerir mikið úr vinskap sínum við frægt fólk sem og
ríkidæmi sínu. Erfitt er að henda reiður á hvort fullyrðingarnar eigi við rök að styðjast.
Pacino og Foxx „Ríkidæmisþjálfinn“ gerir mikið úr meintum vinskap sínum við frægt fólk. Gagnrýnendur segja að hinir frægu taki vænar
summur fyrir að mæta á viðburði Foxx.
„Ég er að koma
til Reykjavíkur til
þess að ausa úr visku-
brunni mínum varðandi
markaðsmál og ætla
að finna næsta stjörnu-
ræðumann, markþjálf-
ara og rithöfund. Vittu til,
það gæti verið þú!
J.T. Foxx
Óhætt er að segja
að „ríkidæmis-
þjálfinn“ sé veru-
lega umdeildur.
mynd JTFoxx.xom