Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Page 20
Helgarblað 24.–27. mars 201720 Fréttir Erlent
Hryðjuverk og hungursneyð
Nokkrar af fréttaljósmyndum vikunnar af myndveitunni EPA
McGuinness lést í vikunni 66 ára gamall Leiðtogar stjórnmálaflokksins Sinn Fein bera Martin
McGuinness, fyrrverandi varaforsætisráðherra heimastjórnar Norður-Írlands og áður foringja í írska lýðveldishern-
um, til grafar.
Sprenging í Úkraínu Vegfarendur fylgjast með
miklum reykjarmekki eftir að sprenging varð í
birgðageymslu fyrir vopn á vegum úkraínska hersins.
Atvikið varð nærri borginni Balakiya í Úkraínu. Eldur
varð valdur að sprengingunni en hús voru rýmd í 20
kílómetra radíus umhverfis húsið. Það raskaði ró um 20
þúsund manns.
Ræddu hungursneyð
Boris Johnson, hinn litríki
utanríkisráðherra Bretlands, tók
til máls á fundi öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna um
ástandið í Sómalíu. Fundurinn
fór fram í New York 23. mars.
Hungursneyð ógnar lífi allt að 20
milljóna manna í fjórum
löndum; Suður-Súdan, Sómalíu,
Nígeríu og Jemen. Talið er að
þrjár milljónir manna í Sómalíu
séu í hættu. Talið er að um sex
milljarða bandaríkjadala þurfi til
að koma hungruðum til hjálpar.
Bókamessa í Þýskalandi Talið er að 250 þúsund
manns muni líta við á bókamessunni í Leipzig í Þýskalandi, sem
nú stendur yfir. Þar munu 3.400 kynna verk sín.
Blóm á brú Jeremy Corbyn, leiðtogi breska Verkamannaflokks-
ins, minnist þeirra sem fórust í hryðjuverkaárásinni í Lundúnum á
miðvikudag. Hér leggur hann blóm á Westminster-brúna.
Minnast hinna föllnu Laganna vörður leggur niður
blóm í miðbæ Lundúna til minningar um þá sem létust í
hryðjuverkaárás í námunda við þinghúsið á miðvikudagskvöld.
Fjórir létust, þar á meðal árásarmaðurinn, en 29 særðust.
Þjóðhátíðardagur í Pakistan Kínverskir hermenn
marsera fram hjá mynd af Muhammad Ali Jinnah, stofnanda
Pakistan, á þjóðhátíðardegi landsins í borginni Islamabad í Pakistan
á fimmtudag.
Methagnaður bílaframleiðanda Luca de Meo, framkvæmdastjóri bílaframleiðandans SEAT, ásamt stjórnarmönnum félagsins, ræða afkomu
félagsins á blaðamannafundi í Barcelona á fimmtudag. Fyrirtækið hefur aldrei skilað meiri hagnaði – eða 232 milljónum evra – á síðasta ári.