Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Page 30
Helgarblað 24.–27. mars 201730 Sport M ikilvægur leikur er framundan fyrir ís- lenska karlalandsliðið í knattspyrnu. Í kvöld, föstudag, mætir Ísland Kósóvó en leikurinn fer fram í Al- baníu. Leikið er í borginni Shkoder sem er nálægt landamærum Kósóvó. Íslenska liðið kom til borgarinnar á miðvikudag og æfði á Loro Borici- vellinum á fimmtudag. Allir leik- menn Íslands sem eru í hópnum eru heilir heilsu og geta tekið þátt í leikn- um. Verðum að vinna svona leiki Pétur Pétursson, fyrrverandi að- stoðarþjálfari landsliðsins, býst við erfiðum leik en segir að Ísland verði að vinna. Liðið stefnir á annað af tveimur efstu sætunum í riðlinum og þá þarf svona leikur að vinnast. Fari Ísland með sigur af hólmi er liðið í góðri stöðu með 10 stig eftir fyrri um- ferðina í riðlinum. Framundan er svo leikur við Króatíu í sumar sem gæti orðið um toppsætið í riðlinum. „Þetta er rosalega mikilvægt fyr- ir landsliðið að vinna Kósóvó. Það verður án nokkurs vafa mjög erfitt að spila á móti þeim en við verðum að vinna leiki gegn svona liði miðað við hvernig þessi riðill er að spilast. Baráttan á toppnum er mjög hörð og liðið hefur sett sér það markmið að hafna í einu af efstu tveimur sæt- unum, þá þarf að taka 12 stig í þess- um fjórum leikjum gegn Kósóvó og Finnlandi,“ segir Pétur um málið. Getur verið hættulegt að mæta þeim Kósóvó hefur aðeins spilað fjóra keppnisleiki sem þjóð en nýverið samþykkti FIFA aðild þjóðarinnar. Kósóvó á ekki keppnisvöll sem upp- fyllir þær kröfur sem eru gerðar hjá FIFA og því mætast liðin í Albaníu. ,,Þetta er nýtt lið sem þeir eru að byggja upp og það getur verið hættu- legt að mæta þeim.“ Hann bendir á að Kósóvó hafi náð jafntefli gegn Finnlandi í fyrsta leik og búast megi við því að þeir verði betri með hverj- um leiknum. „Það er iðulega þannig að lið frá þessum hluta Evrópu eru góð að spila boltanum. Ég held að þeir muni bara verða betri en von- andi verður það ekki fyrr en eftir þennan leik.“ Sóknarleikurinn horfinn Pétur, eins og fleiri, hefur svolitl- ar áhyggjur af sóknarleik lands- liðsins en Kolbeinn Sigþórsson og Alfreð Finnbogason, sem eru helstu markaskorarar liðsins, eru báðir fjar- verandi vegna meiðsla. Þá eru kant- mennirnir Jóhann Berg Guðmunds- son og Birkir Bjarnason einnig meiddir en báðir hafa átt fast sæti í liðinu. ,,Þetta er í fyrsta skipti sem lands- liðið lendir í svona meiðslavandræð- um, síðustu fjögur ár. Á móti kem- ur hins vegar að þeir leikmenn sem ættu að koma inn hafa fengið reynslu með liðinu og ættu að þekkja vel sín hlutverk og leikskipulag liðsins.“ Hann segir að með leiknum gef- ist leikmönnum gott tækifæri til að sanna að þeir eigi heima í byrjun- arliðinu. „Þeir geta sett meiri pressu á þessa leikmenn sem hafa síðustu ár átt þessar stöður.“ Hann bendir á að Kári Árnason og Ragnar Sigurðsson virðast klárir í slaginn – vörnin sé því til staðar. „Þú ert með Aron Ein- ar og Gylfa Þór fyrir framan þá. Það er í raun sóknarleikurinn sem hefur horfið með þeim mönnum sem eru meiddir. Það hafa auðvitað mikið af mörkum horfið með þeim sem eru meiddir en við erum öflugir í föstum leikatriðum með Kára og Ragga.“ Viðar grípur gæsina Viðar Örn Kjartansson, framherji liðsins, gæti fengið tækifæri í byrjun- arliðinu en hann hefur verið í frétt- um síðustu daga fyrir atvik utan vall- ar. Viðar fékk sér í glas á ferð sinni til móts við landsliðið í nóvember. Málið komst í fréttir í síðustu viku en fjórir mánuðir eru síðan á því var tekið innan hópsins. ,,Þetta er tæki- færi fyrir Viðar, ef hann fær byrjun- arliðssæti. Hann er búinn að raða inn mörkum og eftir allar þessar greinar um hann hef ég ekki neina trú á öðru en hann skori ef hann fær tækifær- ið. Hann grípur gæsina. Þetta mál er löngu búið, eins og Heimir [Hall- grímsson, landsliðsþjálfari] hef- ur komið inn á.“ Hann telur að um- ræðan hafi ekki nein áhrif á liðið en segir að það gæti haft einhver áhrif á Viðar. „En ég held að það gæti orðið á jákvæðan hátt. Hann getur nýtt sér þetta, skorað mark og þá verð- ur þetta mál aldrei rætt aftur,“ segir Pétur um málefni Viðars. Gylfi stígur upp Mikið mun mæða á skærustu stjörnu Íslands, Gylfa Þór Sigurðsson. Lykil- menn í sóknarleikinn vantar og því er ábyrgðin, sem er yfirleitt mikil á herðum Gylfa, meiri en áður. ,,Gylfi er algjör lykilmaður í sóknarleiknum í þessum leik, hann stýrir leiknum með Aroni. Gylfi er nú bara þannig gerður að hann poppar alltaf upp þegar mest þarf á honum að halda. Maður hefur því ekki neina trú á öðru en að hann verði í góðum gír í þessum leik.“ Sverrir Ingi er tilbúinn Miðverðir liðsins hafa verið í smá klípu en Kári Árnason hefur ver- ið meiddur og Ragnar Sigurðsson fær ekkert að spila hjá Fulham á Englandi. Á sama tíma er Sverrir Ingi Ingason að spila vel með Granada í La Liga á Spáni. Pétur, sem þekkir liðið vel, sér hins vegar ekki ástæðu til þess að breyta til í hjarta varnar- innar, enda Kári og Ragnar yfirleitt afar öflugir með landsliðinu. „Sverrir Ingi er meira en tilbú- inn í að stíga inn í hjarta varnarinn- ar ef þörf er á, hann er búinn að spila marga leiki á Spáni og standa sig vel. Hann er í leikformi en ég hef ekki trú á neinu öðru en að Kári og Raggi byrji þennan leik ef þeir eru heil- ir heilsu. Þetta er bara einn leikur, Sverrir kemur inn ef það eru meiðsli. Það hafa allir verið að taka æfingarn- ar og ég held að það sé ekki nein ástæða til þess að breyta. Kári og Raggi hafa náð afar vel saman,“ segir Pétur að lokum. n Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Telur að Viðar grípi n Pétur Pétursson segir nýja menn fá alvöru tækifæri n Enn aukin ábyrgð á Gylfa „Góðir leikmenn með mikla hæfileika“ Heimir Hallgrímsson á blaða- mannafundi á fimmtudag ,,Við vitum mikið um lið Kósóvó. Við erum vel undirbúnir, þetta eru góðir leikmenn með mikla hæfileika. Þeir spila með góðum liðum í Evrópu, við höfum horft á alla leiki þeirra og sem lið eru þeir alltaf að bæta sig. Síðasti leikur þeirra var gegn Tyrklandi og þá áttu þeir að vera yfir í hálfleik, stærsti ósigur þeirra var á móti Króatíu en þeir fengu fullt af færum í þeim leik og við vitum að þeir eru mjög hættulegir. Ég vil hrósa þjálfara liðsins, hann fær bara nokkra daga í undirbúning og hann hefur gert mjög vel í að búa til gott lið með leikmenn sem hafa ekki spilað saman lengi á stuttum tíma.“ „Er betri leikmaður í dag“ Aron Einar Gunnarsson á blaðamannafundi á fimmtudag „Ég hef þroskast mikið síðan ég var hérna síðast. Leikur minn hefur líka þroskast þannig að ég myndi segja að ég sé betri leikmaður í dag en ég var þegar ég kom hingað síðast. Við höfum horft á mikið af myndböndum með þeim, þeir eru að spila með góðum liðum í Evrópu. Þetta er lið sem ber að virða og þetta verður erfiður leikur fyrir okkur. Þeir hafa fengið stuttan tíma en þeim hefur tekist að búa til gott lið, við þurfum að fara varlega á morgun.“ „Hann getur nýtt sér þetta, skorað mark og þá verður þetta mál aldrei rætt aftur Klárir í slaginn Vinni Íslendingar leikinn gæti leikur við Króatíu á Laugardalsvelli í júní orðið úrslitaleikur um toppsætið í riðlinum. MyndIr EPA gæsina gegn KósóVó

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.