Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2017, Side 55
Helgarblað 24.–27. mars 2017 Kynningarblað - Verkstæði og varahlutir 3
Einstakt bílaverkstæði
og varahlutaverslun
Bíladoktorinn
Í
Skútuvogi 13 er bílavarahluta-
verslunin og bílaverkstæðið
Bíla-Doktorinn til húsa. Það
sinnir almennum bílaviðgerð-
um og er einnig smurstöð.
Rúnar Sigurjónsson, vélvirki og
eigandi Bíla-Doktorsins, segir fyr-
irtækið þjónusta mest Mercedes-
Benz, Volkswagen, Audi og Skoda
með viðgerðum og varahlutasölu,
en þeir smyrji og geri við fjölda
annarra bílategunda.
Áhersla lögð á gæðavörur
„Varahlutaverslun okkar hefur
upp á að bjóða marga af algeng-
ustu varahlutum fyrir fyrrnefnd-
ar tegundir. Við leggjum áherslu
á að bjóða upp á gæðavörur sem
uppfylla ströngustu kröfur bif-
reiðaeigenda og eftirlitsaðila í
Þýskalandi, þaðan sem megin
uppistaðan af okkar vörum kem-
ur,“ segir Rúnar. „Varhlutaverslunin
leggur áherslu á að nota öflug upp-
lýsingakerfi til að gera afgreiðslu
varahluta eins nákvæma og rétta og
mögulegt er,“ bætir hann við.
Þekktir fyrir vönduð vinnu-
brögð
Bíla-Doktorinn er ört vaxandi fyrir-
tæki sem á stóran hóp tryggra við-
skiptavina sem margir hverjir hafa
átt farsæl viðskipti við verslunina
frá upphafi. „Það er markmið okk-
ar að veita viðskiptavinum okk-
ar góða þjónustu byggða á þekk-
ingu og langri reynslu á viðhaldi og
umhirðu hvers kyns bifreiða,“ segir
Rúnar. „Okkar aðalsmerki er vönd-
uð vinnubrögð sem skila sér í betra
umferðaröryggi og áreiðanleika
þeirra ökutækja sem við sinnum
viðgerðum á og seljum varahluti í,“
segir hann í framhaldinu.
Saga á bak við nafn fyrirtæk-
isins
Nafn fyrirtækisins var dregið af
viðurnefni Rúnars á meðal bílaá-
hugamanna. „„Herr doktor“, kalla
þeir mig,“ segir Rúnar. Hann hefur
unnið nærri alla sína starfsævi við
bíla og vinnuvélar og er einn þekkt-
asti áhugamaður um Mercedes-
Benz-bíla á Íslandi en hann hefur
haft það að áhugamáli að gera upp
og varðveita fornbifreiðar af þeirri
gerð, ásamt því að eiga einn bíl úr
hópi þeirra elstu hér á landi, Ch-
evrolet árgerð 1931.
Bjóða upp á almennar bílavið-
gerðir
„Við bjóðum upp á flestallar almenn-
ar bílaviðgerðir,“ segir Rúnar. „Öll
umskipti á slithlutum og lagfæringar
á biluðu gangverki er eitthvað sem
er okkar daglega starf. Þó svo að við
bjóðum flestar gerðir bíla velkomn-
ar í viðgerð þá höfum við að mestu
leyti sérhæft okkur í Mercedes-Benz,
Volkswagen, Skoda og Audi eins
og áður sagði og búum við því yfir
nokkurri sérþekkingu á þeim,“ segir
Rúnar. Hjá Bíla-Doktornum eru fimm
starfsmenn; tveir bifvélavirkjar, tveir
vélvirkjar og einn starfsmaður sinnir
móttöku og varahlutaverslun. n