Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Síða 6
Vikublað 28.–30. mars 20176 Fréttir Þ essi tvö mál eru hér enn til meðferðar,“ segir Ólafur Þór Hauksson héraðssak- sóknari aðspurður um rann- sókn á kærum á hendur lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem embættinu bárust í fyrra vegna Strawberries-rassíunnar svokölluðu. Eins og fram kom í ítarlegri umfjöll- un um eftirmála rassíunnar í helgar- blaði DV þá liggja fyrir tvær kærur hjá embættinu frá eiganda Strawberries annars vegar vegna framgöngu lög- reglumanna í aðgerðunum sjálf- um og hins vegar vegna verðmætra muna sem haldlagðir voru í húsleit í þágu rannsóknarinnar en hurfu úr hirslum lögreglu. Verðmæti þeirra muna er sagt nema milljónum króna. Málin hafa nú verið tekin til skoðunar hjá nýrri nefnd um eftirlit með störf- um lögreglu sem tók til starfa nú um áramótin. Þá voru kærumálin komi í ferli hjá embætti héraðssaksóknara. Ólafur Þór segir að nefndin hafi ákveðnu hlutverki að gegna í ferlinu en hann kveðst ekki vita nákvæmlega hvað nefndin sé með til meðferðar. „Þau verða síðan í samskiptum við okkur þegar það liggur fyrir hvort því verði beint til embættisins hér.“ Málið fellt niður Líkt og rifjað var upp í umfjöllun DV var það árið 2013 sem forsvarsmenn Strawberries sættu lögreglurannsókn, vegna meintrar vændisstarfsemi og mansals, sem varð til þess að eig- andinn og fjórir aðrir starfsmenn voru handteknir í kjölfar rassíu sem gerð var á staðnum. Við rannsókn málsins höfðu óeinkennisklæddir lögreglu- menn farið inn á staðinn til að reyna að afhjúpa hina meintu ólöglegu starfsemi. Í kjölfarið var staðnum lok- að, hann innsiglaður og húsleit fram- kvæmd. Tveimur árum síðar, í júní 2015, lýsti ríkissaksóknari því yfir að málið hefði verið fellt niður. Eina sem stóð eftir af ítarlegri rannsókn máls- ins voru meint skattalagabrot eiganda staðarins, sem enn hafa ekki verið til lykta leidd. Sagðir ölvaðir að störfum DV greindi frá því í maí í fyrra að eigandinn hefði kært aðgerðir lög- reglu til héraðssaksóknara. Í um- ræddri kæru komu meðal annars fram ásakanir um að lögreglumenn hefðu setið að sumbli í tálbeituað- gerðunum, verið drukknir við hand- tökur sem framkvæmdar voru inni á staðnum eftir lokun og eytt 1,1 millj- ón króna á barnum við að reyna að grípa konur við að bjóða þeim kynlífs- þjónustu gegn greiðslu. Meðal gagna sem fylgdu kærunni var myndband úr eftirlitsmyndavélum staðarins sem sýnir, líkt og blaðamaður DV fékk að sannreyna, það sem fullyrt er að séu óeinkennisklæddir lögreglumenn að drekka ótæpilegt magn af áfengi á staðnum í nokkra klukkutíma. Þá má líka sjá á myndbandinu hvernig lögreglumaður, sem hafði nýlokið við að klára úr bjórflöskunni sinni, gengur harkalega fram við að hand- taka dyravörð staðarins, með þeim afleiðingum að dyravörðurinn féll harkalega í gólfið. Dyraverðinum voru í síðustu viku dæmdar 800 þúsund krónur í miska- bætur frá íslenska ríkinu vegna gæslu- varðhalds sem hann sætti í tengslum við aðgerðir lögreglu. Milljónamunir horfnir En einn af athyglisverðari öngum þessa máls varðar verðmætin sem að sögn hurfu úr hirslum lögreglu. Líkt og DV greindi frá voru Rolex- armbandsúr, bindisnælur, hringar, hálsmen og annað verðmætt skart, sem sumt af hverju telst erfðagripir, og mikið af erlendum gjaldeyri, evrur og dollarar, haldlagt í húsleit á Strawberries og heimili eigandans. Fullyrt er að verðmæti þessara hluta nemi milljónum króna. Lögmaður eigandans, Páll Kristjánsson, staðfesti að hvarf þessara muna úr hirslum lögreglu hafi verið kært til embættis héraðssaksóknara síðastliðið haust. Vildu verðmeta munina DV hafði heimildir fyrir því að eigand- anum hafi fyrst verið kunngjört að þessir munir væru glataðir þegar sak- sóknari féll frá upptöku þeirra við fyrirtöku á hinu meinta skattalaga- broti fyrir dómi. Með þeim skýring- um að umrædd verðmæti, sem átti að láta ganga upp í skattaskuldina, væri hvergi að finna hjá lögreglu. Ólafur Þór Hauksson segir að hjá héraðssaksóknara hafi komist upp að umræddir munir væru horfnir þegar embættið fór fram á að fá þá afhenta til að láta verðmeta þá. Hann segir að það sé því ekki alveg rétt að þetta hafi ekki ratað rétt fyrir dóminn og að upplýst hafi verið um hið dularfulla hvarf munanna um leið og það lá fyrir. Farið verði ofan í saumana á þessu Staðreyndin er eftir sem áður sú að lögreglan sætir nú rannsókn hjá embætti héraðssaksóknara vegna framgöngu lögreglumanna við Strawberries-rassíuna og vegna mun- anna sem hurfu eftir að hafa verið haldlagðir við húsleit. Slíkt er klárlega rannsóknarinnar virði til að komast til botns í því hvernig svona nokkuð ger- ist og hvort eðlilegt geti talist og rétt sé að lögreglumenn hafi verið drukknir við störf á ákveðn- um tímapunkti við rannsókn máls- ins líkt og haldið er fram í kærunni og myndir úr öryggis- myndavélum virð- ast staðfesta. „Jú, það er það vissulega og það er hlutverk embætt- isins að fara ofan í saumana á því,“ seg- ir Ólafur Þór sem kveðst ekki geta tjáð sig um málið að öðru leyti. n Ólafur Þór Hauksson Héraðssaksóknari og embætti hans hefur kærur á hendur lögreglu vegna Strawberries-málsins enn til meðferðar. Mynd Sigtryggur Ari „Það er hlutverk embættisins að fara ofan í saumana á því. Embættið vildi láta verðmeta hina haldlögðu muni þegar ljóst varð að þeir voru horfnir úr hirslum lögreglu Kærur vegna StrawberrieS- raSSíu enn á borði héraðSSaKSóKnara Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is 24. mars 2017

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.