Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Síða 14
Vikublað 28.–30. mars 201714 Fréttir Erlent
Hér eru ódýrustu
borgir evrópu
Þ
að þarf ekki endilega að eyða
heilum mánaðarlaunum,
eða því sem næst, þegar farið
er í helgarferð til áfanga-
staða víða í Evrópu. Pör sem
ákveða til dæmis að fara til Vilníus,
höfuðborgar Litháens, geta notið alls
þess sem borgin hefur upp á að bjóða
fyrir um það bil 40 þúsund krónur svo
dæmi sé tekið.
Post Office Travel Money, breskt
ferðaþjónustufyrirtæki, birti á dögun-
um lista yfir ódýrustu borgir Evrópu.
Teknar voru saman upplýsingar
um hvað dæmigerð helgarferð, frá
föstudegi til sunnudags, kostar. Inni
í þessari upphæð er meðal annars
matur á veitingahúsi, hótelgisting og
almenningssamgöngur, en hafa ber í
huga að flugfargjöld eru ekki í upp-
hæðinni enda geta þau verið mjög
misjöfn eftir flugfélögum og hvenær
er farið. Flogið er til nokkurra af þess-
um áfangastöðum beint frá Íslandi
en í sumum tilfellum þarf að taka
tengiflug sem gæti hækkað kostnað-
inn og lengt ferðalagið talsvert.
Loks er rétt að geta þess að um
viðmiðunarverð er að ræða og þótt
hægt sé að eyða mun hærri upphæð-
um gefur verðið ágæta mynd af verð-
lagi í viðkomandi borgum. n
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
n Helgarferð til útlanda þarf ekki að kosta fúlgur fjár n Paphos og Vilníus ódýrastar
Fleiri ódýrar borgir:
n Kaffibolli:356 krónur n Bjór: 320 krónur n Gos: 260 krónur n Vínflaska: 390 krónur
n Þriggja rétta máltíð fyrir tvo með víni hússins: 4.600 kónur
n Rúta eða lest frá flugvelli til miðborgar: 370 krónur
n Tveggja daga almenningssamgöngukort: 1.230 krónur
n Útsýnisferð í rútu um borgina: 2.000 krónur
n Kostnaður við að skoða vinsælasta kennileiti borgarinnar – Pafos Mosaics: 550 krónur
n Kostnaður við að skoða safn – Ethnographical Museum: 370 krónur
n Kostnaður við að skoða listasafn – Pafos Municipal Gallery: Ókeypis
n Tveggja nátta gisting fyrir tvo fullorðna á þriggja stjörnu hóteli: 8.600 krónur
1 Paphos, Kýpur – 19.200 krónur Paphos er rúmlega 60 þúsund íbúa strandborg á suðvesturströnd Kýpur. Samkvæmt úttekt Post Office, sem náði til
36 evrópskra borga, er Paphos sú ódýrasta. Hægt er að komast til Paphos til dæmis frá
London og fleiri stöðum í Evrópu.
2 Vilníus, Litháen – 19.344 krónurVilníus er höfuðborg Litháens og verður þessi fallega borg sífellt vinsælli meðal
ferðalanga. Hægt er að komast beint til Vilníus frá Keflavík með Wizz Air.
n Kaffibolli: 185 krónur n Bjór: 257 krónur n Gos: 220 krónur n Vínflaska: 294 krónur
n Þriggja rétta máltíð fyrir tvo með víni hússins: 6.000 krónur
n Rúta eða lest frá flugvelli til miðborgar: 160 krónur
n Tveggja daga almenningssamgöngukort: 854 krónur
n Útsýnisferð í rútu um borgina: 1.470 krónur
n Kostnaður við að skoða vinsælasta kennileiti borgarinnar
– Church of St Anne: Ókeypis
n Kostnaður við að skoða safn – Palace of the Grand Dukes: 430 krónur
n Kostnaður við að skoða listasafn – National Gallery of Art: 220 krónur
n Tveggja nátta gisting fyrir tvo fullorðna á þriggja stjörnu hóteli: 9.200 krónur
3 Riga, Lettland – 20.836 krónurHöfuðborg Lettlands hefur upp á svo margt að
bjóða; fegurð, góðar verslanir og ýmiskonar afreyingu.
Hægt er að komast beint til Riga frá Keflavík með airBaltic.
n Kaffibolli: 370 krónur n Bjór: 306 krónur
n Gos: 294 krónur n Vínflaska: 430 krónur
n Þriggja rétta máltíð fyrir tvo með víni hússins:
7.400 krónur
n Rúta eða lest frá flugvelli til miðborgar: 280 krónur
n Tveggja daga almenningssamgöngukort: 1.230 krónur
n Útsýnisferð í rútu um borgina: 1.840 krónur
n Kostnaður við að skoða vinsælasta kennileiti
borgarinnar – Dome Cathedral: 370 krónur
n Kostnaður við að skoða safn – Latvian National
Museum of Arts: 430 krónur
n Kostnaður við að skoða listasafn – Art Museum Riga
Bourse: 430 krónur
n Tveggja nátta gisting fyrir tvo fullorðna á þriggja
stjörnu hóteli: 7.500 krónur
4 Varsjá, Pólland – 21.200 krónur
Varsjá er vinsæll áfangastaður meðal
ferðamanna enda falleg borg sem hefur
upp á flest að bjóða sem ferðamenn sækja
í. Hægt er að fljúga beint til Varsjár, til
dæmis með Wizz Air, Wow air og Icelandair.
n Kaffibolli: 300 krónur n Bjór: 240 krónur
n Gos: 180 krónur n Vínflaska: 450 krónur
n Þriggja rétta máltíð fyrir tvo með víni
hússins: 4.400 krónur n Rúta eða lest
frá flugvelli til miðborgar: 260 krónur
n Tveggja daga almennings-
samgöngukort: 715 krónur
n Útsýnisferð í rútu um borgina:
1.800 krónur
n Kostnaður við að skoða vinsælasta
kennileiti borgarinnar – Royal Castle :
895 krónur
n Kostnaður við að skoða safn –
Warsaw Uprising Museum: 600 krónur
n Kostnaður við að skoða listasafn
– Zacheta Gallery: 450 krónur
n Tveggja nátta gisting fyrir tvo full-
orðna á þriggja stjörnu hóteli:
11.000 krónur
5 Búdapest, Ungverjaland – 21.700 krónurBúdapest er ein vinsælasta borg Evrópu meðal ferðamanna enda er hún bæði
falleg og ódýr. Hægt er að komast beint til Búdapest frá Keflavík með Wizz Air.
n Kaffibolli: 230 krónur n Bjór: 314 krónur n Gos: 188 krónur n Vínflaska: 500 krónur
n Þriggja rétta máltíð fyrir tvo með víni hússins: 4.800 krónur
n Rúta eða lest frá flugvelli til miðborgar: 295 krónur
n Tveggja daga almenningssamgöngukort: 1.385 krónur
n Útsýnisferð í rútu um borgina: 2.500 krónur n Kostnaður við að skoða
vinsælasta kennileiti borgarinnar – Matthíasarkirkjan: 630 krónur
n Kostnaður við að skoða safn – Hungarian National Museum: 670 krónur
n Kostnaður við að skoða listasafn – Hungarian National Gallery: 755 krónur
n Tveggja nátta gisting fyrir tvo fullorðna á þriggja stjörnu hóteli: 9.430 krónur
n Kraká, Pólland – 22.300 krónur
n Lissabon, Portúgal – 22.500 krónur
n Prag, Tékkland – 25.250 krónur
n Aþena, Grikkland – 26.500 krónur
n Palma, Mallorca – 27.200 krónur
n Strasbourg, Frakkland – 27.800 krónur
n Dubrovnik, Króatía – 28.700 krónur
n Tallin, Eistland – 29.000 krónur
n Lille, Frakkland – 29.600 krónur
n Nice, Frakkland – 30.400 krónur
n Moskva, Rússland – 30.600 krónur
n Berlín, Þýskaland – 32.000 krónur
n Madrid, Spánn – 36.200 krónur
n Róm, Ítalía – 36.500 krónur
n Edinborg, Skotland – 37.500