Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Síða 16
Vikublað 28.–30. mars 201716 Fréttir Erlent Við erum stolt af útgáfu á íslenskri tónlist StudioNorn.is Tíu ár síðan Robert hvarf n Hvarf við dularfullar aðstæður á eyjunni Kish árið 2007 n Írönskum yfirvöldum stefnt Á dögunum voru liðin tíu ár frá því að Bandaríkjamaðurinn Robert Levinson hvarf við dularfullar aðstæður á Kish- eyju í Persaflóa undan strönd- um Írans. Robert var tæplega sextugur þegar hann hvarf en hann starfaði fyrir bandarísku alríkislögregluna (FBI) og fíkniefnalögregluna (DEA). Fréttastofa CNN greinir frá því að fjölskylda Roberts hafi nú stefnt íranska ríkinu fyrir aðild að hvarfi hans. Yfirvöld í Íran hafa þó alla tíð þvertekið fyrir að hafa handsamað Robert á sínum tíma og fullyrða að þau hafi engar upplýsingar um hvar hann sé niðurkominn. Rannsakaði smygl Talið er að Robert hafi verið að rann- saka mál sem varðaði umfangsmikið smygl á sígarettum og tóbaki þegar hann hvarf á eyjunni Kish þann 9. mars árið 2007. Eftir hvarf hans töldu bandarísk yfirvöld að yfirvöld í Íran hefðu haft hendur í hári hans, en stjórnvöld í Íran neituðu því. Ekkert spurðist til Roberts í þrjú ár eftir hvarfið, eða allt þar til í des- ember 2011 að fjölskylda hans birti myndband af honum í haldi mann- ræningja sinna. Á myndbandinu sést hann biðla til bandarískra yfir- valda um að aðstoða við að koma honum heim. Töldu að honum yrði sleppt Í stefnunni gegn írönskum yfirvöld- um, sem CNN greinir frá, kemur fram að þremur vikum eftir hvarfið hafi ríkisfjölmiðill Írans greint frá því að Robert hefði verið handsamaður, en reiknað væri með að honum yrði sleppt fljótlega. „Þrátt fyrir þessa frétt var Robert ekki sleppt og stjórnvöld í Íran fóru að halda því ranglega fram að þau hefðu engar upp- lýsingar um hvarf- ið.“ Þá hefðu það ver- ið stjórnvöld sem sendu myndböndin til aðstandenda hans, sannanir þess efnis að Robert væri á lífi, en þau látið það líta þannig út að þau kæmu frá ótilgreind- um hryðjuverkasamtökum. Var hann á vegum CIA? Eins og að framan greinir var Robert staddur á Kish til að rannsaka smygl á sígarettum. Þar hitti hann bandarískan ríkisborgara, Dawud Salahuddin, sem var með honum daginn sem hann hvarf. Salahuddin sagði við Time-tímaritið árið 2011 að írönsk löggæsluyfirvöld hefðu hand- samað þá tvo, Salahuddin hefði ver- ið sleppt úr haldi daginn eftir en Robert ekki sést eftir að hann var handtekinn. Robert hafði sem fyrr segir starf- að lengi fyrir FBI og DEA, en talið er að hann hafi verið í Íran á vegum CIA. Tilgangur ferðar hans til Kish hafi verið sá á að fá Dawud til að ger- ast uppljóstrari fyrir CIA, að því er New York Times og Washington Post greindu frá á sínum tíma. Hafa trú á Trump Þó að tíu ár séu liðin frá hvarfi Roberts eru bandarísk yfirvöld ekki búin að útiloka að hann sé enn á lífi. Rannsakendur á vegum FBI, að sögn CNN, segja að ef hann sé á lífi sé líklegt að hann sé enn í Íran. Aðrir rannsakendur hafa þó bent á að myndböndin sem fjölskyldan fékk send árið 2011 hafi bent til þess að hann væri staddur í Pakistan. Aðstandendur Roberts, eigin- kona og börn, létu hafa eftir sér í við- tali við CNN fyrir skömmu að þau bæru þá von í brjósti að Donald Trump, nýr forseti Bandaríkjanna, geti beitt sér í málinu og Robert snúi aftur heim, fyrr eða síðar. n Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Tíu ár Ekkert hefur spurst til Roberts síðan 9. mars árið 2007. „… stjórnvöld í Íran fóru að halda því ranglega fram að þau hefðu engar upp- lýsingar um hvarfið L ögregluyfirvöld í Mexíkó leita nú sex- tán fanga sem tókst að flýja á athyglis- verðan hátt úr fangelsi í Tamaulipas-héraði við landamærin að Banda- ríkjunum. Í frétt AP kemur fram að fangarnir hafi graf- ið fjögurra metra djúp og þrjátíu og sex metra löng göng úr einum af fanga- klefum fangelsisins. Þeir komu svo upp á yfirborðið skammt fyrir utan fangelsið og áttu því nokkuð greiða leið út í frelsið. Talið er að í heildina hafi tuttugu og níu fangar yfirgefið fangelsið með þessum hætti en þrettán eru sagðir hafa náðst skömmu síðar. Göngin voru grafin í þeim hluta fangelsisins sem fangar stjórna að stærstum hluta. Þegar upp komst um málið lokuðu fangelsisyfirvöld umræddri álmu við litla hrifningu fanga. n Sextán fanga leitað í Mexíkó Grófu göng og sluppu Fangelsi í Mexíkó Myndin er úr safni. Mynd REuTERS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.