Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Page 29
Vikublað 28.–30. mars 2017 Menning 29 U nnur Jökulsdóttir er höf- undur bókarinnar Undur Mývatns – um fugla, flug- ur, fiska og fólk. Unnur þekkir Mývatn vel og hefur dvalið þar síðustu tólf ár. „Ég er gift manni sem hefur helgað Mývatni líf sitt, Árna Einarssyni, forstöðumanni Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn. Hann er manna bestur í að opna augu fólks og leyfa því að skoða stórkostlega leyndardóma líf- ríkisins í og við Mývatn,“ segir hún. Unnur vinnur á rannsóknastöðinni en hjónin búa við Mývatn á sumrin og fyrir sunnan á veturna, ásamt Öldu, dóttur Unnar. „Ég er útgáfu- og kynningarstjóri Náttúrurann- sóknastöðvarinnar, sé um vefsíðuna og sömuleiðis sé ég um undirbúning fyrir erlenda vísindahópa sem koma til Mývatns á sumrin. Ég er líka að- stoðarmaður í rannsóknum og fer með í fuglatalningar, en í bókinni er einmitt kafli um það hvernig fuglarn- ir eru taldir. Þetta er mjög fjölbreytt og skemmtilegt starf,“ segir Unnur. Áður en talið berst að bókinni er Unnur spurð hvenær áhugi hennar á náttúrunni hafi vaknað. „Ég ólst að hálfu leyti upp í Flóanum í sveit hjá afa og ömmu og ástin á náttúrunni vaknaði af sjálfu sér. Fjallahringur- inn er langt í burtu en hann er þarna og svo er allt Atlantshafið fyrir utan ströndina. Mér var sagt að ef maður sigldi beint í suður þá lenti maður á suðurpólnum. Allt það sem var í fjar- lægð fannst mér mjög spennandi. Ég heillaðist af náttúrunni og um leið fannst mér sjálfsagt að búa í sátt og samlyndi við hana.“ Fimm ár í vinnslu Unnur hefur skrifað allnokkrar bæk- ur um náttúru og ferðalög, þar á meðal Kjölfar Kríunnar (1989) og Kría siglir um Suðurhöf (1993) ásamt þáverandi manni sínum Þorbirni Magnússyni, en bækurnar tvær fjöll- uðu um siglingar þeirra á skútu um heiminn. „Ég fékk útrás fyrir mikla ferðaþrá á ævintýralegum siglingum mínum á skútunni forðum daga. Ég var að sigla í fimm ár með Þorbirni og með undirbúningi tók allt ferlið tíu til tólf ár. Við sigldum um hafið, komum við á eyjum og skoðuðum framandi dýralíf,“ segir Unnur. „Þegar við skrifuðum svo þessar tvær bækur var óhjákvæmilegt að fjall- að væri um dýralíf. Án þess að hafa endilega ætlað að verða náttúrurit- höfundur þá færðist ég í þá átt gegn- um ferðasöguna. Síðan hef ég þróað það áfram með því að vinna ljós- myndabækur með frábærum ljós- myndurum. Í þessari bók finnst mér ég orðinn náttúrurithöfundur. Bókin um Mývatn er ferðasaga um innviði lífríkisins.“ Varstu lengi að vinna að bókinni? „Ég var fimm ár að vinna hana með öðrum störfum. Undirbúning- ur tók langan tíma, ég var að afla mér vitneskju og fróðleiks og las mér til. Ég tók viðtöl við fólk, þar á meðal heimamenn, og skoðaði gamla ann- ála og bækur. Það liggur mikil rann- sóknarvinna að baki þessari bók.“ Það er áberandi persónulegur tónn í bókinni. „Ég var dálítinn tíma að finna tón- inn. Ég vildi hafa textann á persónu- legu nótunum því oft er það besta leiðin til að ná til lesandans. Ef ég lýsi því hvaða áhrif Mývatn og Mývatns- sveit hafa á mig þá getur lesandinn vonandi upplifað þá tilfinningu með mér.“ Stór og dýrmæt perla Hefurðu áhyggjur af Mývatni og framtíð þess? „Ég hef áhyggjur af Mývatni og ég hef áhyggjur af veröldinni. Mývatn með sínu einstaka fugla- og lífríki á að vernda. Þarna eigum við stóra og dýrmæta perlu á heimsmælikvarða. Árið 1974 voru sett ströng náttúru- verndarlög um Mývatn og vatnasvið þess en þeim var að hluta aflétt árið 2004 og í staðinn var einstaka staður þar friðaður. Af hverju er ekki horft til framtíðar og staðið við ákvörðunina frá 1974?“ Þú segist hafa áhyggjur af ver- öldinni. Finnst þér eins og svo mörg- um að við séum á góðri leið með að eyða jörðinni? „Já, og mér finnst hræðilegt að horfa upp á það. Mér finnst líka hræðilegt þegar jafn valdamikill maður og Bandaríkjafor- seti afneitar staðreyndum eins og loftslagsbreytingum af mannavöldum og ætlar ekki að framfylgja sam- þykktum alþjóðasamfélags- ins. Ég vona að hægt verði að snúa skelfilegri þróun við. Til að svo verði þurfa allir að taka höndum saman, bæði almenningur og stjórnvöld þurfa að leggja sitt af mörkum.“ Vatnslitamyndir eftir eiginmanninn Þetta er lítil bók og falleg með vatns- litamyndum. Það hefur greinilega verið lögð mikil alúð í hana. „Mig langaði til að þetta yrði textabók sem segði: Lestu mig! Ekki stór hlunkur sem þyrfti að liggja á borði og væri flett eingöngu vegna ljósmyndanna. Hann Árni minn er góður vatnslitamálari og myndir hans hafa í of miklum mæli hvílt ofan í skúffu. Mér finnst alveg dá- samlegt að þær fái líf í þessari bók. Svo eru þarna plöntumyndir eftir breska konu, Margaret Davies, sem kom til Mývatns í nokkur sumur og málaði flóruna þar. Það er gaman að hafa fengið leyfi til að nota þær til að skreyta bókina.“ n Falleg bók Vatnslitamyndir eftir mann Unnar, Árna Einarsson, prýða bókina. „Ef ég lýsi því hvaða áhrif Mývatn og Mý- vatnssveitir hafa á mig þá getur les- andinn vonandi upplifað þá tilfinn- ingu með mér. n Unnur Jökulsdóttir er höfundur bókar um Mývatn n Myndir eftir eiginmann hennar prýða bókina Ferðasaga um innviði lífríkisins Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Unnur Jökulsdóttir „Mig langaði til að þetta yrði textabók sem segði: Lestu mig!“ Mynd SigtryggUr Ari Zehra Doğan málaði mynd af eyðileggingu í Nusaybin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.