Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Qupperneq 29
Vikublað 28.–30. mars 2017 Menning 29
U
nnur Jökulsdóttir er höf-
undur bókarinnar Undur
Mývatns – um fugla, flug-
ur, fiska og fólk. Unnur
þekkir Mývatn vel og hefur
dvalið þar síðustu tólf ár. „Ég er gift
manni sem hefur helgað Mývatni líf
sitt, Árna Einarssyni, forstöðumanni
Náttúrurannsóknastöðvarinnar við
Mývatn. Hann er manna bestur í
að opna augu fólks og leyfa því að
skoða stórkostlega leyndardóma líf-
ríkisins í og við Mývatn,“ segir hún.
Unnur vinnur á rannsóknastöðinni
en hjónin búa við Mývatn á sumrin
og fyrir sunnan á veturna, ásamt
Öldu, dóttur Unnar. „Ég er útgáfu-
og kynningarstjóri Náttúrurann-
sóknastöðvarinnar, sé um vefsíðuna
og sömuleiðis sé ég um undirbúning
fyrir erlenda vísindahópa sem koma
til Mývatns á sumrin. Ég er líka að-
stoðarmaður í rannsóknum og fer
með í fuglatalningar, en í bókinni er
einmitt kafli um það hvernig fuglarn-
ir eru taldir. Þetta er mjög fjölbreytt
og skemmtilegt starf,“ segir Unnur.
Áður en talið berst að bókinni er
Unnur spurð hvenær áhugi hennar
á náttúrunni hafi vaknað. „Ég ólst að
hálfu leyti upp í Flóanum í sveit hjá
afa og ömmu og ástin á náttúrunni
vaknaði af sjálfu sér. Fjallahringur-
inn er langt í burtu en hann er þarna
og svo er allt Atlantshafið fyrir utan
ströndina. Mér var sagt að ef maður
sigldi beint í suður þá lenti maður á
suðurpólnum. Allt það sem var í fjar-
lægð fannst mér mjög spennandi. Ég
heillaðist af náttúrunni og um leið
fannst mér sjálfsagt að búa í sátt og
samlyndi við hana.“
Fimm ár í vinnslu
Unnur hefur skrifað allnokkrar bæk-
ur um náttúru og ferðalög, þar á
meðal Kjölfar Kríunnar (1989) og
Kría siglir um Suðurhöf (1993) ásamt
þáverandi manni sínum Þorbirni
Magnússyni, en bækurnar tvær fjöll-
uðu um siglingar þeirra á skútu um
heiminn. „Ég fékk útrás fyrir mikla
ferðaþrá á ævintýralegum siglingum
mínum á skútunni forðum daga. Ég
var að sigla í fimm ár með Þorbirni
og með undirbúningi tók allt ferlið
tíu til tólf ár. Við sigldum um hafið,
komum við á eyjum og skoðuðum
framandi dýralíf,“ segir Unnur.
„Þegar við skrifuðum svo þessar tvær
bækur var óhjákvæmilegt að fjall-
að væri um dýralíf. Án þess að hafa
endilega ætlað að verða náttúrurit-
höfundur þá færðist ég í þá átt gegn-
um ferðasöguna. Síðan hef ég þróað
það áfram með því að vinna ljós-
myndabækur með frábærum ljós-
myndurum. Í þessari bók finnst mér
ég orðinn náttúrurithöfundur. Bókin
um Mývatn er ferðasaga um innviði
lífríkisins.“
Varstu lengi að vinna að bókinni?
„Ég var fimm ár að vinna hana
með öðrum störfum. Undirbúning-
ur tók langan tíma, ég var að afla mér
vitneskju og fróðleiks og las mér til.
Ég tók viðtöl við fólk, þar á meðal
heimamenn, og skoðaði gamla ann-
ála og bækur. Það liggur mikil rann-
sóknarvinna að baki þessari bók.“
Það er áberandi persónulegur
tónn í bókinni.
„Ég var dálítinn tíma að finna tón-
inn. Ég vildi hafa textann á persónu-
legu nótunum því oft er það besta
leiðin til að ná til lesandans. Ef ég lýsi
því hvaða áhrif Mývatn og Mývatns-
sveit hafa á mig þá getur lesandinn
vonandi upplifað þá tilfinningu með
mér.“
Stór og dýrmæt perla
Hefurðu áhyggjur af Mývatni og
framtíð þess?
„Ég hef áhyggjur af Mývatni og ég
hef áhyggjur af veröldinni. Mývatn
með sínu einstaka fugla- og lífríki á
að vernda. Þarna eigum við stóra og
dýrmæta perlu á heimsmælikvarða.
Árið 1974 voru sett ströng náttúru-
verndarlög um Mývatn og vatnasvið
þess en þeim var að hluta aflétt árið
2004 og í staðinn var einstaka staður
þar friðaður. Af hverju er ekki horft til
framtíðar og staðið við ákvörðunina
frá 1974?“
Þú segist hafa áhyggjur af ver-
öldinni. Finnst þér eins og svo mörg-
um að við séum á góðri leið með að
eyða jörðinni?
„Já, og mér finnst hræðilegt að
horfa upp á það. Mér finnst líka
hræðilegt þegar jafn valdamikill
maður og Bandaríkjafor-
seti afneitar staðreyndum
eins og loftslagsbreytingum
af mannavöldum og ætlar
ekki að framfylgja sam-
þykktum alþjóðasamfélags-
ins. Ég vona að hægt verði
að snúa skelfilegri þróun
við. Til að svo verði þurfa
allir að taka höndum saman, bæði
almenningur og stjórnvöld þurfa að
leggja sitt af mörkum.“
Vatnslitamyndir eftir
eiginmanninn
Þetta er lítil bók og falleg með vatns-
litamyndum. Það hefur greinilega
verið lögð mikil alúð í hana.
„Mig langaði til að þetta yrði
textabók sem segði: Lestu mig! Ekki
stór hlunkur sem þyrfti að liggja á
borði og væri flett eingöngu vegna
ljósmyndanna. Hann Árni minn er
góður vatnslitamálari og myndir
hans hafa í of miklum mæli hvílt
ofan í skúffu. Mér finnst alveg dá-
samlegt að þær fái líf í þessari bók.
Svo eru þarna plöntumyndir eftir
breska konu, Margaret Davies, sem
kom til Mývatns í nokkur sumur og
málaði flóruna þar. Það er gaman að
hafa fengið leyfi til að nota þær til að
skreyta bókina.“ n
Falleg bók Vatnslitamyndir eftir mann
Unnar, Árna Einarsson, prýða bókina.
„Ef ég lýsi því
hvaða áhrif
Mývatn og Mý-
vatnssveitir hafa á
mig þá getur les-
andinn vonandi
upplifað þá tilfinn-
ingu með mér.
n Unnur Jökulsdóttir er höfundur bókar um Mývatn n Myndir eftir eiginmann hennar prýða bókina
Ferðasaga um
innviði lífríkisins
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Unnur Jökulsdóttir
„Mig langaði til að þetta
yrði textabók sem segði:
Lestu mig!“ Mynd SigtryggUr Ari
Zehra Doğan málaði mynd af eyðileggingu í Nusaybin