Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2017, Blaðsíða 38
Vikublað 28.–30. mars 20172 Mjóddin - Kynningarblað
H
alldór Þórhallsson mat-
reiðslumaður hefur um
árabil verið eitt af kennileit-
um Mjóddarinnar í
Breiðholti þar sem hann
hefur síðan 1996 rekið hina vin-
sælu matsölu Hjá Dóra. Hann geng-
ur jafnan undir nafninu Dóri og er
mönnum í hverfinu að góðu kunn-
ur og jafnvel þótt út fyrir hverfið væri
leitað!
„Hjá okkur ríkir notalegt and-
rúmsloft með allt að því heimilis-
legum blæ. Matsalan nýtur mikilla
og stöðugra vinsælda enda vinn ég
eingöngu með gott hráefni og legg
áherslu á bragðgóðan mat fyrir
hagstætt verð, en selt er eftir vigt og
meðalverð á máltíð um 900–1.450
krónur,“ segir Dóri.
„Þótt hér í hádeginu verði oft
myndarleg röð svangra viðskipta-
vina þá gengur þjónustan hratt og
vel fyrir sig. Því hikar fólk ekki við að
bíða smá stund þar sem það veit sem
er; að maturinn er gómsætur og það
bregst aldrei. Ég er líka með einvala
starfslið sem hefur verið lengi hjá
mér,“ upplýsir Dóri glaður í bragði.
Hamborgarhryggur og snitsel
með tilheyrandi á föstudögum
Veitingamaðurinn bendir á að við-
skiptavinirnir geti ávallt gengið að
sex réttum vísum. „Hér er á hverjum
degi djúpsteikt ýsa, kjúklingur, kjöt-
bollur, steikt lambalæri, svínahrygg-
ur með puru og rifjasteik með puru.
Við erum líka alltaf með tvo aðra
rétti, sem eru mismunandi eftir
dögum, t.d. lasanja, svínasnitsel og
fiskibollur. Á föstudögum er ég oft-
ast með hamborgarhrygg og snitsel
með tilheyrandi,“ segir hann.
Allir réttir eldaðir á staðnum
„Allur matur er eldaður hér á staðn-
um. Í salnum eru sæti fyrir 35 manns
og er margsetið við þau í hádeginu.
Vinnuhópar og iðnaðarmenn borða
hér í stórum stíl og einnig fólk úr
fyrirtækjunum í kring auk þess sem
ýmsir sem eiga erindi í Mjóddina
koma við hjá okkur og fá sér gjarn-
an í svanginn. Þetta breytist aðeins
þegar líður á daginn en á þeim tíma
kemur fólk oft við og kaupir mat til
þess að hafa með sér heim. Það er
einmitt mikið um það á föstudögum
þegar fólk er lúið eftir vinnuvikuna
– þá finnst því gott að koma við hjá
mér og kaupa tilbúinn, bragðgóðan
rétt til að taka með sér heim, henda
síðan bakkanum og byrja helgina.“
Dóri segir að algengt sé að eldri
borgarar kaupi mat hjá honum og
einnig þeir sem búa einir. „Fólk sér
hagkvæmnina og tilbreytinguna í því
að kaupa heitan, tilbúinn mat. Auk
þess sem það sparar mörgum bæði
fyrirhöfn og tíma,“ segir veitinga-
maðurinn vinsæli. n
Hjá Dóra Þönglabakki 1,
Mjóddinni
Opnunartími er virka daga
11.30–13.30 og seinnipartinn frá
17.00–19.00
Heimilismatur
á góðu verði
Allir réttir eldaðir á staðnum
Hjá Dóra