Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2017, Síða 6
Helgarblað 7.–10. apríl 20176 Fréttir
K
aup fjárfestisins Eyþórs Arn-
alds á 26,62% hlut útgerðar-
manna í Árvakri, útgefanda
Morgunblaðsins, eru gerð af
nýstofnuðu félagi, Ramses
II ehf., sem er að fullu í eigu Eyþórs.
Kaupin eru gerð með þeim fyrirvara að
aðrir hluthafar nýti ekki forkaupsrétt
sinn en samkvæmt upplýsingum DV
hafa þeir um tvo mánuði til að ákveða
hvort þeir geri það.
Ramses II kaupir 18,43% hlut Sam-
herja, 6,14% hlut Síldarvinnslunnar
og 2,05% hlut Vísis hf. í Þórsmörk ehf.,
eiganda Árvakurs.
Kemur víða við
Eyþór hefur á undanförnum misserum
verið ansi umsvifamikill í viðskiptalíf-
inu en hann á nú eða tengist með ein-
um eða öðrum hætti 31 félagi.
Hann situr í stjórn 30 þessara fé-
laga, þar af sem stjórnarformaður í tíu
þeirra, stjórnarmaður í níu, meðstjórn-
andi í sjö og varamaður í fjórum.
Hann er framkvæmdastjóri í sex fé-
lögum, prókúruhafi í tólf auk þess sem
hann hefur stofnað tvö af þessum fé-
lögum; Íslensk vatnsorka hf., sem
keypti virkjunarkostinn við Hagavatn
árið 2011, og Timburfélagið ehf.
Nýstofnað félag
Ramses II ehf., sem að óbreyttu mun
á næstunni verða einn stærsti eigandi
Morgunblaðsins, var stofnað þann 30.
janúar 2017 af lögmannsstofunni BBA
Legal ehf., og hét þá BBL 81 ehf. Eyþór
tók síðan við félaginu, kom inn sem
stjórnarmaður og prókúruhafi með
tilkynningu dagsettri 10. mars síðast-
liðinn en þá var nafninu sömuleið-
is breytt í Ramses II. Fjölmiðlanefnd
staðfestir við DV að þetta sé félagið
sem tilkynnt hafi verið um að væri að
kaupa hlutinn í Árvakri og að staðfest
væri að félagið væri að fullu í eigu Ey-
þórs.
Eyþór á einnig Ramses ehf. sem
meðal annars fer með 38,5% hlut hans
í Íslenskri vatnsorku hf. og fleiri félaga
og fyrirtækja. Ramses ehf. skilaði tæp-
lega 500 milljóna króna hagnaði árið
2015. Greiddi Eyþór sér 50 milljónir
króna í arð úr félaginu árið 2016, sam-
kvæmt síðasta ársreikningi félagsins
fyrir árið 2015.
Þorsteinn og Eyþór
viðskiptafélagar í Thorsil
Verkefni félaganna sem Eyþór ýmist á
eða tengist eru af ýmsum toga og afar
fjölbreytt. Allt frá orkustarfsemi, til um-
deildra stóriðjuverkefna, ferðaþjón-
ustufyrirtækja og veitingareksturs.
Eitt áðurnefndra stóriðjuverkefna
tengist kísilmálmverksmiðjunni
Thorsil í Helguvík, sem illa hefur geng-
ið að fjármagna og er útgefið starfsleyfi
nú í kæruferli hjá úrskurðarnefnd um
umhverfis- og auðlindamál.
Thorsil er í eigu Northsil (59,7%) og
Strokks Silicon (40,28), sem aftur er í
eigu Strokks Holding sem Ramses ehf.,
og þar með Eyþór Arnalds, á 13,5% hlut
í.
Northsil er aftur í eigu Johns
Fenger, stjórnarformanns Thorsil,
Hákonar Björnssonar, forstjóra fyrir-
tækisins, Einars Sveinssonar, fjárfestis
og föðurbróður Bjarna Benedikts-
sonar forsætisráðherra, og Þorsteins
Más Baldvinssonar, forstjóra Sam-
herja, en sá síðastnefndi er einmitt að
selja Eyþóri, viðskiptafélaga sínum í
Thorsil-verkefninu, 18,43% hlut sinn í
Morgunblaðinu.
Sjálfstæðismaður í gegn
Eyþór hefur lýst því yfir í fjölmiðlum að
kaup hans á hlutnum í Morgunblaðinu
hafi átt sér stuttan aðdraganda, sem á
sér stoð í stofngögnum Ramses II. En
tengsl Eyþórs við bæði Sjálfstæðis-
flokkinn og ritstjóra blaðsins, Davíð
Oddsson, ná lengra aftur. Eyþór er sem
kunnugt er fyrrverandi oddviti Sjálf-
stæðismanna í Árborg, þar sem hann
sat í tvö kjörtímabil frá 2006–2014.
Þá var hann skipaður formaður
leikhúsráðs Þjóðleikhússins af Illuga
Gunnarssyni, þáverandi mennta- og
menningarmálaráðherra Sjálfstæðis-
flokksins, auk þess sem Illugi fól hon-
um að leiða nefnd um starfsemi og
rekstur Ríkisútvarpsins, sem skilaði af
sér umdeildri skýrslu, Eyþórsskýrsl-
unni svokölluðu, í október 2015.
Skýrslan var meðal annars gagnrýnd
fyrir rangfærslur, var nefndin sögð hafa
farið út fyrir erindisbréf sitt í úttektinni
auk þess sem RÚV var dregið sund-
ur og saman í skýrslunni sem fór illa í
marga stuðningsmenn stofnunarinn-
ar.
Þykir vænt um Davíð
Eyþór hefur lengi verið meðal helstu
stuðningsmanna Davíðs Oddssonar
og er samband þeirra sagt náið.
Til marks um það þá herma heim-
ildir DV að Eyþór hafi um nokkra hríð
verið fastagestur á skrifstofu Dav-
íðs í Hádegismóum auk þess sem Ey-
þór, í félagi við Ara Edwald, forstjóra
Mjólkur samsölunnar, stofnaði félagið
utan um forsetaframboð Davíðs, í maí
í fyrra, daginn eftir að Davíð tilkynnti
um framboð sitt.
„Mér þykir vænt um Davíð og veit
að hann á erindi við fólk enda hefur
honum verið vel tekið þar sem hann
hefur farið,“ sagði Eyþór í samtali við
DV í lok maí í fyrra.
Eyþór lagði einnig hönd á plóginn
við uppsetningu kosningaskrifstofu
Davíðs við Grensásveg fyrir forseta-
kosningarnar. Í ljósi þess hversu náið
samband Eyþórs og Davíðs er, verður
ekki annað séð en að ritstjórinn njóti
trausts hjá hinum nýja stóra hluthafa í
Morgunblaðinu. n
Umsvif Eyþórs
og hlutafélaga
þátttaka
Stjórnarformaður: 10
n Íslensk vatnsorka hf. n Timbur-
félagið ehf. n Special Tours ehf.
n Verktækni ehf. n Alur, álvinnsla
ehf. n Strokkur Silicon ehf.n
Hagavatnsvirkjun ehf. n Sandvíkur-
setur ehf. n Strokkur metal hf. n
Fasteignafélag Árborgar ehf.
Stjórnarmaður: 9
n Ramses ehf. n Listmunir ehf. n
Kratus ehf. n Ramses II ehf. n Hvalalíf
ehf. n ST Holding ehf. n Við fjöru-
borðið ehf. n Reykjavík Röst Bistro ehf.
n BPI ehf.
Meðstjórnandi: 7
n Thorsil ehf. n GMR Endurvinnslan
ehf. n Strokkur Holding ehf. n Strokkur
ehf. n Thorsil Holding hf. n Krossanes
eignir ehf. n Mostly Human Entertain-
ment ehf.
Varamaður: 4
n Jógaloftið ehf. n P 125 ehf. n ELL
265 ehf. n Suðurljós ehf.
Framkvæmdastjóri: 6
n Ramses ehf. n Listmunir ehf. n
KE ehf. n Strokkur Energy ehf. n Við
fjöruborðið ehf. n BPI ehf.
Prókúruhafi: 12
n Ramses ehf. n Listmunir ehf. n
Ramses II ehf. n Timburfélagið ehf. n
Special Tours ehf. n Strokkur Holding
ehf. n KE ehf. n Strokkur Energy ehf.
n Við fjöruborðið ehf. n Strokkur
metal hf. n BPI ehf. n Fasteignafélag
Árborgar ehf.
Stofnandi: 2
n Íslensk vatnsorka hf. n Timburfé-
lagið ehf.
Náið samband Eyþór og Davíð eru miklir félagar og hefur Eyþór lýst því yfir að honum þyki
vænt um ritstjóra Morgunblaðsins. MyND SigTryggur Ari
Viðskiptafélagar Eyþór keypti stærsta
hlutinn í Þórsmörk, eiganda Árvakurs,
útgáfufélags Morgunblaðsins, af Samherja
Þorsteins Más Baldurssonar. Þeir eru
viðskiptafélagar í Thorsil-kísilmálmverk-
smiðjuverkefninu. MyND ÞorMAr VigNir guNNArSSoN
„
Mér þykir
vænt um
Davíð
MyND SigTryggur Ari JohANNSSoN
Nýstofnað
félag heldur utan
um hlut Eyþórs í
Morgunblaðinu
n Ramses II ehf. keypti út útgerðarmennina n Eyþór
umsvifamikill n Fjárfestirinn á eða tengist 31 félagi
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is