Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2017, Blaðsíða 10
Helgarblað 7.–10. apríl 201710 Fréttir
A
uðvitað á fólk í þessari
stöðu að eyða peningunum
sínum í eitthvað allt annað.“
Þetta segir Edda Dröfn
Eggertsdóttir sem greindist
með krabbamein árið 2015. Í tilfelli
Eddu er sjúkdómurinn ólæknandi
en með fyrirbyggjandi lyfjagjöf er
hægt að halda honum í skefjum.
Nú þegar hefur Edda, sem er ein-
stæð móðir, borgað um 300 þúsund
krónur í beinan læknis- og lyfja-
kostnað vegna veikindanna. Sú upp-
hæð á aðeins eftir að hækka þar sem
sjúkdómur Eddu er ólæknandi. DV
ræddi við Eddu Dröfn vegna um-
ræðunnar sem hefur skapast síðustu
daga um málefni greiðsluþátttöku
krabbameinssjúkra eftir að Ástrós
Rut Sigurðardóttir greindi frá því ný-
verið, í átakanlegu myndskeiði, að
unnusti hennar, sem er með krabba-
mein á fjórða stigi, hafi nánast eytt
aleigunni í lyf og lækniskostnað í
stað þess að nota féð til að njóta lífs-
ins á meðan hann getur.
Ólæknandi sjúkdómur
„Ég veiktist í október 2015 en þá fund-
ust þrjú stór æxli. Við héldum fyrst að
þau væru fyrirferð á eggjastokkum.
Síðan kom í ljós að æxlin komu út
frá smáþörmunum.“ Í framhaldinu
var Edda send í aðgerð. Þá sást að
krabbameinið var búið að dreifast
um allt kviðarholið. Meðal annars
í eggjastokkana, legið, lífhimnuna
og þindina. Í skurðaðgerðinni voru
öll æxli fjarlægð. Í dag er Edda með
Gist-krabbamein sem hægt er að
halda niðri með töflum sem hún tek-
ur inn daglega auk annarra lyfja til
að halda aukaverkununum niðri. Þá
er lyfjameðferðinni ætlað að fyrir-
byggja að meinið taki sig upp aftur.
Edda segir að þótt hún taki inn
fyrirbyggjandi lyf sé mikil hætta á
að meinið taki sig upp aftur. „Ég
verð alltaf á þessum lyfjum og er í
reglulegu eftirliti. Þetta er auðvitað
erfitt og reynir á en ég reyni að líta á
björtu hliðarnar. Ég er allavega enn á
lífi.“ Edda á 12 ára son en mæðginin
búa tvö saman. Edda þarf því að
halda heimili en þegar hún veiktist
var hún í tveimur störfum til að láta
enda ná saman. „Ég vann mína 100
prósent vinnu á daginn og svo var ég
í aukavinnu á kvöldin og um helgar.
Núna get ég ekki lengur gert það.“
Í dag hefur Edda greitt um það
bil 300 þúsund krónur í kostnað
vegna læknis- og lyfjakostnaðar
samkvæmt gögnum frá
Sjúkratryggingum Íslands. Þá eru
ekki meðtalin ólyfseðilskyld lyf,
sjúkraþjálfun, tannlæknakostnaður
og sálfræðimeðferð vegna
veikindanna. Í dag er Edda í 75
prósent starfi. Auk þess sem Edda
þarf að hitta krabbameinslækni
sinn reglulega, og greiða fyrir
rannsóknir og myndatökur, þá
þarf hún að hitta sérfræðilækna
á borð við kvensjúkdóma-, augn-
og húðsjúkdómalækna vegna
aukaverkana og borga komugjald í
hvert einasta skipti.
Þakklát fyrir að vera á lífi
Líkt og svo margir í hennar stöðu
á Edda góða að. Hlaupahópurinn
hennar safnaði fyrir hana og hún
hefur nýtt sjóðinn til að leggja út
fyrir lækniskostnaðinum. „Það á
samt ekki að vera í höndum vina
og ættingja að borga undir læknis-
kostnað. Auðvitað á heilbrigðis-
kerfið að sjá um þetta.“
Þá segir Edda:
„Áður en ég greindist hafði ég
enga hugmynd um hvað kostnað-
urinn er lúmskur og hvað maður
þarf alltaf að vera að borga. Þetta
er fljótt að safnast saman. Þetta
veldur manni áhyggjum.“
Edda viðurkennir fúslega að
hún sjálf sé í töluvert betri stöðu
en margir sem hafa greinst með
krabbamein því hún sé þó með
vinnu. „Þeir sem eru á örorkubót-
um eru í dag í mun verri stöðu en
ég. Ég vona að þetta nýja greiðslu-
þátttökukerfi muni gagnast okkur
öllum. Er samt ekki viss hvað mig
varðar þar sem ég er ekki öryrki.“
Að lokum vill Edda koma því á
framfæri að það sé erfitt að þurfa
að eyða peningunum í læknis-
og lyfjakostnað. „Auðvitað er ég
þakklát fyrir að vera á lífi. En ég
vil líka nýta tímann sem best. Gefa
syni mínum góðar minningar um
mömmu sína. Maður veit ekkert
hvað gerist næst.“ n
Edda Dröfn gagnrýnir greiðsluþátttökukerfi krabbameinssjúkra harðlega
Vill gefa syni sínum
góðar minningar
Kristín Clausen
kristin@dv.is „Auðvitað er
ég þakklát
fyrir að vera á lífi.
En ég vil líka nýta
tímann sem best.
Fúlgur fjár
Edda hefur þegar
greitt um 300 þúsund
krónur vegna læknis-
og lyfjakostnaðar.
mynD Sigtryggur Ari
Dísilbílar
vinsælli en
bensínbílar
Sala á nýjum bílum frá 1. janúar
til 31. mars jókst um 29 prósent,
en nýskráðir fólksbílar á þessu
tímabili voru 4.657 á móti 3.605 á
sama tímabili árið 2016. Þetta er
fjölgun um 1.052 bíla. Þetta kem-
ur fram í tilkynningu sem Bíl-
greinasambandið sendi frá sér á
fimmtudag.
Þar segir að mesta aukningin
sé í sölu bíla til fyrirtækja eða tæp-
lega 52 prósent af heildarnýskrán-
ingum. Dísilbílar eru vinsælastir
með um 45 prósent af heildarný-
skráningum og bensínbílar eru
með 39 prósenta hlutdeild.
Toyota Yaris er mest selda
bílategundin á þessum fyrstu
þremur mánuðum ársins með
226 bíla og þar fast á eftir í öðru
sæti kemur Kia Rio með 184 bíla.
Í þriðja sæti er Nissan Qashqai
með 179 bíla nýskráða.
Af öllum nýskráðum bílum á
árinu eru 1.299 hvítir og er hvítur
því vinsælasti liturinn það sem
af er árinu.
Bilun í sæstreng
Bilun kom upp í Vestmannaeyja-
streng 3 á miðvikudagskvöld, en
um að ræða streng sem að stærst-
um hluta liggur í sjó og er annar
af tveimur sem flytja rafmagn til
Vestmanneyja.
Á miðvikudagskvöld hófst bil-
analeit og þurfti tímabundið að
rjúfa allan rafmagnsflutning til
Eyja vegna þess. Vararafstöðvar
HS veitna sáu Vestmannaeyjum
fyrir rafmagni á meðan.
Í tilkynningu segir að fyrstu
mælingar bendi til að staðsetning
bilunar sé í sjó, um miðja vegu
milli lands og Eyja. Á fimmtudag
var unnið við að staðfesta bilun-
arstað og er aðgerðaráætlun fyrir
viðgerð hafin.
Vestmannaeyjastrengur 1 sér
á meðan um að flytja rafmagn
til Eyja.
Skemmdarverk
á Snæfellsnesi
Áhugaljósmyndarinn Karola
Bruckner birti í vikunni mynd á
samfélagsmiðlum frá Arnarstapa
þar sem erlendir ferðamenn
höfðu skilið eftir sár á íslenskri
náttúru. Verknaðurinn hefur ver-
ið fordæmdur í hvívetna. Glöggir
meðlimir hópsins áttuðu sig á því
að táknin til hægri þýði einfald-
lega „Kína“ og því má gera ráð
fyrir að um þarlenda ferðamenn
sé að ræða.
Þeir sem gera athugasemdir
við færslu Bruckner eru allt er-
lendir ferðamenn sem hugsa til ís-
lenskrar náttúru með mikilli hlýju.
„Þegar ég sé eitthvað þessu líkt þá
verð ég afar reið út í þessa vitlausu
og ábyrgðarlausu ferðamenn,“
segir Patrick Foquaert frá Belgíu.