Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2017, Síða 30
Helgarblað 7.–10. apríl 201726 Sport
Uppbygging Laugardals-
vallar forgangsmál Guðna
n Er að koma sér inn í starfið n Geir hjálpaði til á þingi í Helsinki
Þ
að eru tæpir tveir mánuðir
síðan að Guðni Bergsson
var kjörinn formaður KSÍ
eftir að hafa átt í harðri bar
áttu við Björn Einarsson í
kosningu til formanns þessa stærsta
sérsambands innan íþróttahreyf
ingarinnar. Guðni þekkir starf KSÍ
frá dögum sínum sem fyrirliði karla
landsliðsins en að stýra því sem for
maður á dögum sem þessum er allt
annað. KSÍ er í raun risastórt fyrir
tæki sem veltir háum fjárhæðum
á ári hverju. Starf sambandsins er
viðamikið og í mörg horn að líta.
Á fyrstu vikum hans í starfi hefur
Guðni verið að koma sér inn í starfið
sem er stórt og mikið og ljóst að það
mun taka Guðna meiri tíma en hann
hefur nú þegar fengið til að koma sér
inn í allt.
„Þetta er búið að vera mjög við
burðaríkt og ég hef haft mjög gaman
af þessu. Ég hef þurft að koma mér
fyrir á skrifstofunni og það hefur ver
ið í nægu að snúast. Þetta hefur verið
fjölbreytt en farið vel af stað,“ sagði
Guðni við DV um byrjun sína í starf.
Geir hjálpar Guðna
að mynda tengsl
Guðni var í vikunni á þingi á meðal
Knattspyrnusambanda Evrópu
(UEFA) en að mynda tengsl við
formenn annarra sambanda og
standa vörð um hagsmuni Íslands
er eitt mikilvægasta verkefnið sem
formaður KSÍ sinnir. Það gerði Geir
Þorsteinsson, sem lét af störfum í
febrúar, afar vel og hann var með
Guðna í Helsinki í vikunni. „Maður
er bara í því að setja sig inn í starfið,
það er farið að styttast í knattspyrnu
sumarið og mótastarfið er mjög stórt
og mikið. Við þurfum að semja við
dómara um þeirra kaup og kjör. Ég
var svo í gær að koma af UEFAþingi
í Helsinki. Það þing gekk vel, þessar
fyrstu vikur hafa verið góðar og ég er
að starfa með góðum hópi.
Svona þing eru mikilvæg til að
skerpa á tengslum, Geir Þorsteinsson,
heiðursforsmaður KSÍ og fyrrverandi
formaður, fylgdi mér á þingið ásamt
Klöru Bjartmarz framkvæmdastjóra.
Eggert Magnússon var svo heiðurs
gestur hérna ásamt fleirum, við vor
um því með ágætis hóp hérna. Það
var gott að hafa þau með sér hérna
til að kynna mig og koma mér inn í
hlutina. Ég hef auðvitað bæði farið á
FIFAfund og UEFAfund eftir að ég
tók við en það tekur eðlilega tíma að
ná þessu öllu. Það var mjög gott að
hafa Geir með sér í Helsinki, hann
er búinn að vera hérna og starfa í 20
ár. Það var gott fyrir hann að koma
hingað og kveðja allt það góða fólk
sem hann hefur unnið með og líka
til að kynna mig. Það er mikilvægt að
skerpa á öllum tengslum okkar inn í
önnur sambönd.“
Starfsfólkið vinnur
mjög gott starf
Guðni hefur á þessum tveimur
mánuðum verið að setja sig vel inn í
þá hluti sem felast í því að starfa hjá
KSÍ en hjá sambandinu hefur hann
starfsmenn með mikla reynslu.
Guðni lofsyngur starfsfólkið sem er
fáliðað miðað við starfsemi sam
bandsins en allir eru til í að leggja
hendur á plóginn.
„Það hefur verið mjög fínt að
vinna með fólkinu hjá KSÍ, þetta
er einvala lið og góður hópur. Það
hefur verið gaman að fara í vinnuna
í Laugardalnum, maður er að kynna
sér alla hluti og það tekur tíma.
Þetta hefur verið fjölbreytilegt.
Starfsfólkið hjá KSÍ er að vinna mjög
gott starf, ef maður bara ber okkur
saman við önnur sambönd sem eru
með jafn mörg landslið og við þá
erum við í kringum 20 starfsmenn
en í flestum öðrum löndum er það
miklu meira og yfir 100 starfsmenn
hjá sumum. Við erum með stórt
deildarfyrirkomulag, fimm deildir
hjá körlunum og tvær hjá konunum,
það er mikið starf í kringum það.“
Eins og fram hefur komið er
Guðni að koma sér inn í hlutina
eins og hann orðar það en hvern
ig gengur honum að koma sín
um málum inn í starf KSÍ? Guðni
talaði fyrir málum eins og yfirmanni
knattspyrnumála sem myndi tengja
saman öll landslið.
„Það má segja það þannig að
ég er að kynna mér hlutina vel, ég
er að setja mig inn í þá. Ég er með
ákveðinn aðgerðalista sem ég er að
vinna í. Ég er að koma mér inn í upp
legg stjórnarinnar og svo fer þessi
vinna öll af stað.“
Gríðarleg fagmennska
í landsliðinu
Guðni fór í síðasta mánuði í sína
fyrstu ferð sem formaður með A
landsliði karla. Hann sá liðið vinna
afar mikilvægan sigur á Kósóvó ytra
í undankeppni HM. Hann hreifst
af því starfi sem hefur skilað lands
liðinu svo góðum árangri.
„Ferðin var mjög ánægjuleg og
flott sem mín fyrsta upplifun að
ferðast svona með landsliðinu, það
var virkilega gaman að fylgjast með
starfinu og hvað hópurinn er sam
stilltur. Heimir og þjálfarateymið eru
að vinna mjög gott starf svo ekki sé
minnst á starfsfólkið í kringum þá og
liðið sem gerir hlutina af mikilli fag
mennsku. Það er gaman að sjá hvað
leikmennirnir eru samstilltir og fag
legir í sinni nálgun, þetta er frábær
hópur og góður liðsandi. Strákarnir
eru með mikinn metnað og vilja ná
meiri árangri. Þeir vilja fylgja eftir
þessum góða árangri síðasta sumar.
Ég var mjög ánægður með þessa ferð
og að kynnast þeirra starfi betur.“
Spenntur fyrir EM hjá stelpunum
Sumarið í fótboltanum er stórt,
strákarnir taka toppslag við Króatíu
í undankeppni HM en stærsta verk
efnið er för þeirra á EM í Hollandi.
Guðni heldur til Hollands eftir helgi
þar sem stelpurnar leika æfingarleik
og undirbúa sig fyrir mótið. „Það
bíður mín núna ferð til Hollands
þar sem ég mun sjá kvennalands
liðið spila í næstu viku, þar er Freyr
að vinna mjög öflugt starf með alla í
kringum sig. Ég fylgi þeim eftir þar og
get svo ekki beðið eftir sumrinu hjá
þeim. Við höfum verið að ná góðum
árangri og það verður spennandi að
sjá stelpurnar á EM í sumar.“
Uppbygging Laugardals-
vallar forgangsmál
Guðni leggur mikla áherslu á það
í sínu starfi að á Laugardalsvelli
fari fram mikil uppbygging á næstu
árum. Völlurinn hefur löngu sprengt
starfsemina utan af sér, aðstaða fyrir
leikmenn í búningsklefa er vægast
sagt ömurleg, völlurinn er orðinn
of lítill og svo er það hlaupabraut
in sem pirrar marga. Á öllum helstu
völlum í Evrópu eru hlaupabraut
ir farnar, knattspyrna og frjálsar
íþróttir eiga litla samleið. Til þess að
KSÍ geti farið í breytingar á Laugar
dalsvelli þarf að finna frjálsum
íþróttum varanlegt heimili.
„Uppbygging Laugardalsvallar er
svo mál sem við verðum að skoða
sterklega á næstunni, það þarf að
skoða það og finna út úr því mjög
fljótlega hvað skuli gera. Það er mjög
mikilvægt að uppbygging Laugar
dalsvallar eigi sér stað á næstunni.
Þetta er í þeim fasa að við erum
að finna bestu leiðina og að stilla
upp valkostum sem við höfum.
Við erum að stefna að því að klára
þá vinnu með Reykjavíkurborg og
ríkis valdinu í kringum leikinn við
Króatíu í sumar. Við viljum vera
klárir með tillögur og skoða besta
kostinn um það leyti.“ n
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Formaður KSÍ
„Það er mjög mikil-
vægt að uppbygging
Laugardalsvallar eigi
sér stað á næstunni,“
segir Guðni Bergsson.
„Við erum að
stefna að því
að klára þá vinnu með
Reykjavíkurborg og ríkis-
valdinu í kringum leikinn
við Króatíu í sumar.