Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2017, Page 46
Helgarblað 7.–10. apríl 201742 Fólk
S
tefán Pálsson sagnfræðingur
hefur að undanförnu stað-
ið fyrir nokkuð óvenjulegri
keppni á Twitter-síðu sinni.
Þar fer nú fram kosning um
bestu Lukku-Láka bókina sem út hef-
ur komið á íslensku. Framkvæmd
keppninnar er með miklum atvinnu-
mennskubrag, farið var af stað með 32
bækur í átta riðlum þar sem tvær bæk-
ur fóru áfram úr hverjum riðli. Í sextán
liða úrslitum mættu síðan bækurnar í
efstu sætunum bókunum sem lentu í
öðru sæti og dregið var milli sigurlið-
anna í átta liða úrslitum. Keppninni
lýkur nú um helgina og þá verður
besta Lukku-Láka bókin krýnd.
Alls komu 33 Lukku-Láka bækur út
á Íslandi á árunum 1977 til 1983, gefn-
ar út af Fjölva. Froskur útgáfa gaf síðan
í fyrra út þá 34. í tilefni af 70 ára afmæli
Lukku-Láka. Stefán tók tvær bækur
út fyrir, annars vegar Á léttum fótum
sem var safnrit með styttri sögum og
hins vegar Allt um Lukku-Láka sem er
einnig safnrit með sögulegu yfirliti.
Foreldrunum þóttu teiknimynda-
sögur ekki fínn pappír
Stefán er þekktur teiknimyndasögu-
áhugamaður en áhugi hans einskorð-
ast nokkuð við þær teiknimyndasög-
ur sem oft hafa verið, og voru, kallaðar
skrípó og áttu sitt gullaldarskeið á átt-
unda og níunda áratug síðustu aldar.
Það eru bókaflokkar eins og Ævintýri
Tinna, Svalur og Valur, Viggó viðutan,
Ástríks-bækurnar og fjöldinn allur af
öðrum bókaflokkum. Stefán segist eiga
allar þær bækur sem hafa komið út á
íslensku en megnið af þeim eignaðist
hann ekki fyrr en á fullorðinsaldri.
„Ég átti frekar lítið af þessu sjálfur
sem strákur. Þetta var ekki vel séð af
foreldrum mínum, það þótti ekki fínt
að liggja í teiknimyndasögum. Þau
höfðu lesið í Þjóðviljanum að það
myndi allt saman gera börn ólæs og
heimsk.“
Stefán fer ekki með fleipur þegar
hann lýsir þessum skoðunum sem
bornar voru á borð um teiknimynda-
sögur á sínum tíma. Þannig má lesa
í Þjóðviljanum í desember 1979
opnuumfjöllun um útgáfu Iðunn-
ar á bókum um Strumpana, þar sem
þær Guðríður Þórhallsdóttir og Jón-
ína Friðfinnsdóttir halda á penna.
Þær stöllu fara hreinlega hamförum í
gagnrýni sinni á teiknimyndasögurn-
ar sem sagðar eru „óhroði“, „lágkúru-
legasta dæmi fjölþjóðaiðnaðarins
sem enn hefur sést hér á landi“ og að
hlægilegt sé að þær skuli vera gefnar
út á ári barnsins.
Setið um góð eintök
Myndasögurnar sem Stefán eignaðist
fékk hann því allar að gjöf frá velvilj-
uðum ættingjum og segir að mögu-
lega hafi það brotist fram þegar hann
fór að sanka að sér bókunum þegar
hann var orðinn fullorðinn og fór að
ráða sínum málum sjálfur. Stefán
sat þá um skrípóbækurnar hjá forn-
bókasölum og ekki síst í Góða hirðin-
um. „Ég byrjaði nú sem betur fer að
sanka þessu að mér áður en stóra
bylgjan kom. Þá fékk ég þetta bara á
hundraðkall í Góða hirðinum. Núna
þyrfti maður að búa í Góða hirðinum
til að komast í eftirsóknarverðari titl-
ana. Það er orðinn virkur markaður
með myndasögur á netinu og menn
hika ekki við að setja jafnvel 5.000
króna verðmiða á vel með farin ein-
tök af eftirsóknarverðari sögum. Ég er
því afar feginn að hafa nálega náð að
klára íslenska myndasögusafnið áður
en það hoppuðu svona margir á vagn-
inn. Það skal hins vegar viðurkennt
að þá fór þetta dálítið að færast út í að
kaupa útlenskt hjá mér, bækur sem
ekki komu út á íslensku á sínum tíma.
Ég kaupi mikið af bókum á dönsku.
Þessi bransi er svona eins og var með
dvd-útgáfuna, það eru alltaf að koma
nýjar og nýjar útgáfur með aukaefni,
betri prentun, sögulegir yfirlitskafl-
ar og myndir af öllum forsíðum og
svona. Þessi markaðssetning höfðar
til mín, ég er algjörlega í markhópn-
um sem svona útgáfa beinist að. Það
er verið að selja fólki nostalgíuna
með þessu. Það eru engir krakkar
að kaupa innbundnar bækur með
þremur gömlum Lukku-Láka eða
Svals og Vals sögum. Það er algjör-
lega fyrir foreldrana.“
Á allt frá gullaldarárunum
Stefán segist þó ekki vera svo for-
fallinn að hann þurfi að eiga sömu
sögurnar í mörgum eintökum.
Þannig losaði hann sig á dögun-
um við allar stöku Goðheima-
bækurnar sínar eftir að hafa keypt
þær í innbundnum stórbókum með
aukaefni. „Ég sef alveg rólegur yfir því
að eiga ekki allar útgáfurnar af Tinna
á íslensku. Það eru hins vegar margir
sem eru mjög nákvæmir á því að þeir
þurfi að eiga bæði ’76 útgáfuna og ’85
útgáfuna svo dæmi séu tekin.“
Sem fyrr segir á Stefán allar þær
teiknimyndasögur sem komu út á ís-
lensku á gullaldarárum skrípósins.
„Ég er hins vegar ekki búinn að eignast
allt sem gefið hefur verið út af Lukku-
Láka bókunum og ekki er komið út á
íslensku. Þetta er það mikið og það er
enn verið að gefa bækurnar út. Á gull-
aldarárunum voru þetta þeir Morr-
is að teikna og Goscinny að semja
sögurnar. Það eru langsamlega bestu
sögurnar, meðal annars vegna þess að
þær eru svo fullar af raunverulegum
sagnfræðilegum vísunum. Goscinny
drakk í sig bandaríska sögu og það
er verið að fjalla um alveg „obskjúr“
smáatriði, það er fullt af vísunum
í raunveruleg skrýtin atriði í sögu
Bandaríkjanna. Þegar Goscinny síð-
an dó og Morris tók við að semja, sem
og þeir sem hann fékk til þess fyrir
sig, þá dapraðist þetta talsvert. Þá er
bara verið að semja enn eina Daltón-
bræðrasöguna sem er alltaf meira og
minna sama sagan. Þeir sleppa úr
fangelsi og Lukku-Láki snýr síðan á
þá og stingur þeim inn, yfirleitt vegna
þess að sá matgráðugi, Ibbi, kemur
upp um þá. Þetta eru svona formúlu-
bókmenntir.“
Hrifnari af Sval og Val
Stefán er þekktur aðdáandi Svals og
Vals og hélt meðal annars lengsta
fyrirlestur sem sögur fara af hér á landi
um þær teiknimyndasögur árið 2013,
alls í þrettán og hálfa klukkustund án
þess að taka sér nokkurt hlé. Stefán
segir að fyrir utan þá Sval og Val, sem
séu öruggir á toppnum, þá taki hann
bæði Viggó viðutan og Ástrík fram yfir
Lukku-Láka. „Mér þykir hins vegar
vænt um Lukku-Láka, ég hef gaman
af þessum sögum. Þær eru hins vegar
ekki eins heillandi og hinar að því
leytinu að það er svo lítil framþróun
í þeim á meðan Svalur og Valur til að
mynda breytast í tímans rás, tískan
breytist og tæknin breytist og ýmis-
legt slíkt. Sögusviðið í Lukku-Láka er
alltaf hið sama og menn keppast við
að teikna sögurnar alveg eins. Þær
eru leiðigjarnari og maður sér ekki í
þeim sömu þróunina. Það sem hins
vegar hefur aðeins vakið áhuga minn
á Lukku-Láka aftur er að þar eru menn
aðeins að fikra sig í sömu átt og gert
var með Sval og Val. Þar var búin til
hliðarsería við hefðbundnu sögurnar
þar sem ýmsir myndasögulistamenn
hafa fengið að gera eina sögu um
persónurnar í sínum teiknimynda-
stíl, í hliðarveröld sem hefur ekki
áhrif á stóra sagnabálkinn. Þær sögur
geta verið blóðugri eða blautlegri og
svo framvegis. Þetta eru menn farnir
að gera með Lukku-Láka líka, það
hafa komið út tvær bækur núna full-
ar af póstmódernískum tilvísunum í
sögurnar sem eru mjög skemmtilegar.“
Flippið liðið undir lok
Það eru á bilinu 70 til 100 manns
sem tekið hafa þátt í hverri atkvæða-
greiðslu á Twitter-síðu Stefáns. Stefán
segist ekki vita hvaða fólk það sé en
reiknar með að það séu fyrst og fremst
fylgjendur hans á síðunni. „Mig grun-
ar að hluti þeirra sem kjósa geri
það meðal annars út frá því hversu
skemmtileg nöfnin á bókunum eru.
Ég myndi segja að sérlega mikil vel-
gengni bókarinnar Meðal róna og
dóna í Arizona bendi til að mynda
til þess. Það er mjög íslensk skrípó-
þýðing, bókin heitir á frummálinu
bara Arizona. Íslenskir þýðendur hik-
uðu ekki við að bæta inn bröndurum
og orðaleikjum frá eigin brjósti, þætti
þeim ekki nóg fjör í textanum. Útgáfu-
félögin sem eiga þessi verk tækju það
ekki í mál, en í þá tíð var öllum sama
um þessa smá Íslandsútgáfu. Í dag
þarf hins vegar að samþykkja allar
þýðingar í útlandinu og þar líða menn
ekkert flipp. Arizona-sagan er ein af
elstu bókunum og ekkert sér-
staklega eftirminnileg eða djúp
þannig að ég hef grun um að
það veiti í það minnsta forskot
í keppninni að hafa fyndinn
titil,“ segir Stefán og bendir á
að Rex og Pex í Mexíkó gæti
fallið í þann flokk einnig.
„Svo eru aðrir sem eru heit-
ari í þessu, sumir eiga sér mjög
eindregnar uppáhaldsbækur.
Ég raunar hef þá kenningu að
það skipti líka máli hvenær
fólk eignaðist bækurnar.
Fyrsta Lukku-Láka bókin
sem ég eignaðist er líka sú
fyrsta sem kom út á íslensku,
Kalli keisari. Hún er svona
engin þungavigtarbók en þetta drakk
ég þannig í mig að ég kunni söguna
spjaldanna á milli. Eflaust spilar þetta
því inn í þegar harðir aðdáendur
greiða atkvæði og að fólk hvetji aðra
til að greiða sínum uppáhaldssögum
atkvæði. Við, þjóðin sem vakti heilu
næturnar til að svindla á netinu til að
kjósa Magna okkar Ásgeirsson, við
hljótum nú að geta sprengt internetið
í einni Lukku-Láka kosningu.“
Kosningu í keppni Stefáns lýkur
nú um helgina, að öllu óbreyttu. Kalli
keisari féll úr leik strax og segir Stefán
að því hafi fylgt pínulítið svekkelsi.
„Maður verður samt að vera óvil-
hallur dómari. Ég fæ ekki einu sinni
að kjósa sjálfur, Twitter býður ekki
upp á það þegar maður stofnar sjálf-
ur könnun sem þessa.“ Taka má þátt
í kosningunni á Twitter-síðu Stefáns,
undir notendanafninu Stebbip. n
Kosið um bestu
Lukku-Láka bókina
n Heitir aðdáendur greiða atkvæði n Skrípó átti að gera börn „ólæs og heimsk“
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
„Ég fæ ekki
einu sinni
að kjósa sjálfur
Uppáhaldið úr leik
Uppáhaldsbók Stefáns
Pálssonar í Lukku-Láka
bókaflokknum komst ekki
áfram í atkvæðagreiðslunni
sem hann stendur nú fyrir
á Twitter um bestu Lukku-
Láka bókina. Mynd SigtRyggUR ARi
Skaparar Lukku-Láka Belginn Morris og Frakkinn Goscinny eiga heiðurinn af miklum
vinsældum Lukku-Láka. Morris skapaði persónuna árið 1946 en Goscinny gædda hana lífi
með sögum sínum frá 1955 og þar til hann féll frá árið 1977.
Útgáfa á ný Froskur útgáfa gaf út 34.
Lukku-Láka bókina á íslensku á síðasta
ári, í tilefni af 70 afmæli söguhetjunnar. Þá
voru 33 ár liðin frá því að gefin hafði verið
út Lukku-Láka bók á íslensku síðast.
Skjótari en skugginn Lukku-Láki er, eins og sjá
má, skjótari en skugginn að skjóta.