Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2017, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2017, Blaðsíða 16
16 Helgarblað 28. apríl 2017fréttir - erlent eldofninn.is Eldofninn, pizzeria • Bústaðavegi • sími 533 1313 • eldofninn.is Kaffit ími - ekta Íta lskt Eldofninn flytur in n eðal kaffi frá Ítal íu Nýtir sér NeyðiNa og selur líffæri úr fólki n svartamarkaðsbrask með líffæri eykst n skjótfenginn gróði fyrir flóttamenn í fjötrum fátæktar e itt Ég nýti mér neyð fólks en á sama tíma hagnast það einnig,“ segir Abu Jaafar, ungur karlmaður sem bú- settur er í Beirút, höfuðborg Líbanons. Abu þessi hefur lifibrauð sitt af því að sýsla með líffæri á svört- um markaði og nýtir hann sér neyð fólks, einkum og sér í lagi flótta- manna. Síðan borgarastyrjöldin braust út í Sýrlandi hafa hundruð þúsunda Sýrlendingar flúið yfir landamærin til Líbanons. Breska ríkisútvarpið, BBC, ræddi við Abu fyrir skemmstu. Tekið er fram í umfjölluninni að Abu sé ekki hans rétta nafn og þá vildi Abu ekki þekkjast á mynd. Ástæðan er einföld: Svartamarkaðsbrask með líffæri er lögbrot og Abu væri í vond- um málum ef upp um hann kæmist. Ólöglegt, en hjálpar fólki „Ég veit að það sem ég geri er ólög- legt en ég er að hjálpa fólki. Ég lít þannig á það,“ segir Abu en hann starfaði sem öryggisvörður áður en hann komst í kynni við hóp manna sem kaupa líffæri af flóttamönnum. Hann hefur aðstöðu undir vinnu sína í bakherbergi lítils kaffihúss í út- hverfi Beirút. Þar hefur hann samið um kaup og sölu á líffærum yfir þrjá- tíu einstaklinga á síðustu þremur árum. „Flestar beiðnirnar snúa að því að útvega nýru, en ég get einnig útvegað önnur líffæri,“ segir hann og bætir við að eitt sinn hafi hann verið beðinn um að útvega auga. Abu fór á stúfana og fann skjólstæðing sem var tilbúinn að selja úr sér annað augað. Engra annarra kosta völ Líbanon er ekki sérstaklega fjöl- mennt ríki, en talið er að íbúar þess séu rúmlega sex milljónir. Sýrlendingar í landinu eru taldir vera allt að ein og hálf milljón tals- ins sem þýðir að hátt í fjórðungur íbúa landsins er frá Sýrlandi. Þá eru margir flóttamenn frá Palestínu í landinu, einstaklingar sem voru með stöðu flóttamanna í Sýrlandi en flúðu borgarastyrjöldina þar. Þar sem þetta fólk var þegar með stöðu flóttamanns í Sýrlandi gat það ekki fengið skráningu sem flóttamaður í Líbanon og þar af leiðandi ekki feng- ið atvinnuleyfi. „Þeir sem hafa ekki stöðu flóttamanns eru í mestri neyð. Hvað getur þetta fólk gert? Sumir eiga engra annarra kosta völ en að selja úr sér líffæri,“ segir Abu. Aðrir, sér í lagi börn, sjá fyrir sér með betli, önnur pússa skó eða selja tyggjó. Þá eru þess mýmörg dæmi að fólk hafi leiðst út í vændi. Öruggasta leiðin til að fá borgað hratt og örugglega er með sölu líffæra. Alveg sama um viðkomandi Í umfjöllun BBC sagði Abu að þegar hann finni hentugan kandídat sé við- komandi ekið á afvikinn stað þar sem aðgerðin fer fram. Læknar sjá um skurðaðgerðina og að henni lokinni ekur Abu með sjúklingana til baka. „Ég fylgist með þeim í viku eftir að- gerðirnar en þegar búið er að fjarlægja saumana hætti ég öllum afskiptum af viðkomandi. Mér er í raun alveg sama hvað verður um viðkomandi, hvort hann lifi eða deyi,“ segir hann. Fékk 850 þúsund fyrir nýrað Síðasti skjólstæðingur Abu var 17 ára sýrlenskur piltur sem yfirgaf heimaland sitt eftir að faðir hans og bróðir voru drepnir. Pilturinn hefur verið í Líbanon í þrjú ár án vinnu. Með aðstoð Abu Jaafar gat pilturinn selt úr sér hægra nýrað fyrir upphæð sem nemur rúmum 850 þúsund krónum – sem er stórfé í Líbanon. Sjálfur segist Abu ekki vilja gefa upp hvað hann fær út úr viðskipt- unum, en gera má ráð fyrir að hann fái vel greitt enda er áhættan tals- verð. Þá kveðst hann ekki vita hvað verður um líffærin en segist gera ráð fyrir að þau séu seld til sjúklinga er- lendis. „Það hefur aldrei verið meira að gera,“ segir hann og ítrekar að enginn sé neyddur til að selja úr sér líffæri. Hann sé aðeins milliliður og hjálpi þeim sem eiga bágt til að ná endum saman – jafnvel þótt fórnar- kostnaðurinn geti verið mikill. n Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Sýslar með líffæri Abu Jaafar viðurkennir að hann nýti sér neyð fólks. Hann bendir þó á að hann sé einnig að hjálpa því. Aðgerð Hér má sjá einn ungan mann sem lét fjarlægja annað nýrað úr sér. Fyrir það fékk hann rúmar 850 þúsund krónur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.