Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2017, Blaðsíða 15
Helgarblað 28. apríl 2017 fréttir 15
vikunni fékk hann svo smáhýsi sem
er á vegum Reykjavíkurborgar úti á
Granda.
Af hverju kveiktir þú í húsnæðinu á
Kleppsspítala á sínum tíma?
„Kleppsspítali virðir ekki sakhæfi,
hann er heilsuspillandi og ég sætti
ofbeldi af hálfu lækna. Þeir bera
ekki neina virðingu fyrir því hvernig
mér líður og mér leið illa af þessum
sprautum og þeir höfðu ekki heim
ild fyrir þeim. Kerfið á svo erfitt með
að sleppa manni þegar það er búið
að handsama mann. Gáfum mínum
er engin virðing sýnd og ég fæ ekki að
dafna en hef sætt kúgun og harðræði.“
Örn heldur áfram: „Þeir viður
kenna ekki að ég hafi gáfur heldur
leggja mig að jöfnu við þroskahefta
og það er virkilega gróft andlegt of
beldi. Ég er fyrst og fremst að glíma
við alvarlegar afleiðingar af ofbeldi úr
barnæsku og af Efstasundi.“
Réttlætir það íkveikju?
„Alls ekki. Málið er að ég er í stríði
við ákveðið kerfi sem vill ekki viður
kenna minn rétt og ég geri hvað sem
er til að koma mér út úr aðstæðum.
Þetta er barátta, ég er úrræðalaus og
smám saman stigmagnast gremjan,
maður ert einangraður og sprautaður
gegn vilja manns og hafður með
þroskaheftu fólki og fær ekki félags
skap með fólki á sama reki, á end
anum gefst maður upp og þá geta
slæmir hlutir gerst.“
Ég er ekki hættulegur
Aðspurður hvernig hann sjái fram
tíðina svarar Örn strax að draumur
inn sé að fá frið fyrir kerfinu. Þegar
hann fær bæturnar fyrir ofbeldið ætl
ar hann að kaupa forrit til að semja
tónlist við eigin ljóð. Þá langar hann
að flytja í Árneshrepp á Ströndum
en þar bjó hann sem barn í nokkur
ár. Örn heldur úti bloggsíðunni
veruleikatekk.blog.is og þar birtir
hann ljóð og hugrenningar. Hann
kveðst hafa sett sig í samband við
amerísk stjórnvöld og segir stoltur að
svar hafi borist frá Obama.
„Þeir þökkuðu mér fyrir að hafa
leiðbeint þeim í ákveðnu máli. Hann
þakkaði mér fyrir að standa með sér
sem almennur borgari og sagði að ég
ætti að vera stoltur af því sem ég hef
afrekað.“
Bréfið er staðlað svar og birti Örn
það á bloggsíðu sinni. Þá ritar Örn á
einum stað hugrenningar um CIA,
leyniþjónustu Bandaríkjanna, og
kveðst vera svokallaður spóluher
maður fyrir leyniþjónustuna. „Ég er
skipaður af Jóhannesi Páli páfa II.
Spólan er sett í hermanninn með
skurðaðgerð þannig að það er gagns
laust að þrasa um markmið slíks her
manns. Mér er gefin mín áætlun af
mínum yfirboðurum.“
Beðinn um að útskýra þetta nánar
svarar Örn:
„Fyrir mér er þetta staðreynd.
Erfðafræði er ekki ný gagnvart Vatí
kaninu. Til eru ættardáleiðslur sem
hægt er að vekja upp. Þetta er flókið
mál. Spóla er dáleiðsla en er leyndar
mál. Að þær séu settar í með skurð
aðgerð er betra að segja en sannleik
ann.“
Örn hefur áður sagt í viðtölum að
hann sé ekki hættulegur. Það gerði
hann í samtali við DV árið 2005. Þá
var honum sleppt eftir að hafa veist
að bróður sínum. Eftir þá árás var
hann sviptur sjálfræði og vistaður á
Kleppi. Eftir það flutti hann á Akra
nes þar sem hann bjó einn og tók lyf
við sínum geðsjúkdómi. Gekk hon
um nokkuð vel að fóta sig og var
talið að það myndi gera illt verra að
dæma hann í fangelsi. Komust tveir
dómarar af þremur að þeirri niður
stöðu að hann væri ekki hættuleg
ur umhverfi sínu ef hann tæki lyf
við geðsjúkdómi sínum. Símon Sig
valdason, stundum kallaður Símon
grimmi, sagði að ekki væri hægt að
treysta því að fólk væri ekki í hættu
vegna Arnar ef hann hætti að mæta
í lyfjatöku eða nota eiturlyf samhliða
lyfja gjöfinni. Vildi Símon að Örn yrði
vistaður á Sogni. Af því varð ekki.
Liðu svo þrjú ár ár þar til Örn komst
aftur í fréttir. Þá birtist viðtal við hann
í Skessuhorni þar sem segir að hann
yrki til að skapa sér grundvöll í lífinu.
Fréttin er jákvæð og lífið virðist fara
nokkuð mjúkum höndum um Örn.
Ári síðar, 2009 var staðan öllu verri.
Örn var enn búsettur á Akranesi og
sagði í samtali við DV: „Ég bý bara
einn og yfirgefinn. Það hringir aldrei
neinn í mig. Það heimsækir
mig aldrei neinn.“ Í ágúst það
ár óskaði hann eftir aðstoð
lækna á Akranesi og fékk ekki.
Greip hann þá til þess örþrifa
ráðs að stela bíl við sjúkrahús
ið og ók honum inn í lögreglu
stöðina.
Nú er Örn aftur laus og í
samtali við blaðamann heldur
hann því fram að hann sé ekki
hættulegur og hafi sætt illri
meðferð af kerfinu. Hann er
ekki skikkaður í lyfjagjöf leng
ur líkt og árið 2005. Hann segist ekki
nota fíkniefni en fái sér bjór endrum
og eins líkt og aðrir borgarar.
„Ég vil að fólk sé kurteist og komi
fram af virðingu. Það er langt síðan
ég vildi snúa við blaðinu en ég fæ
ekki tækifæri til þess að eignast líf
vegna þess að kerfið ætlar að jarða
mig og ætlar ekki að sleppa mér.
Samkvæmt skrá er ég ekki hæfur til
að þiggja meðferð og batamögu
leikar eru engir og ég er ekki hæfur
til að viðhalda heilbrigði, sem er bara
kjaftæði. Nú er ég frjáls og get séð um
mig sjálfur og er með fullu viti.“
DV hafði samband við Klepps
spítala sem vildi ekki tjá sig um Örn
Úlriksson. n
jólinÞað eru ekki alltaf
Ávaxtaðu betur
H
ö
n
n
u
n
: I
n
g
va
r
Ví
ki
n
g
ss
o
n
www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110
Gómsætir veislubakkar,
sem lífga upp á öll tilefni.
Er kannski heilsuátak
framundan?
Ávextir í áskrift kosta um 550 kr.
á mann á viku og fyrirhöfn fyrirtækisins
er engin.
Stakk Steingrím Umfjöllun Helgarpósts-
ins eftir að Örn stakk Steingrím Njálsson.