Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2017, Blaðsíða 2
2 Helgarblað 28. apríl 2017fréttir
Æ
i, shit! Dalai Lama er
kominn hérna fyrir
utan! Ekki opna!“
Þannig komst Jóhanna
Sigurðardóttir, fyrrver
andi forsætisráðherra, að orði að
sögn Gunnars Hrafns Jónssonar,
þegar tíbeskir munkar sáust út um
glugga bústaðar forsætisráðherra á
Þingvöllum. Þetta atvik átti sér stað
þegar trúarleiðtoginn og friðarverð
launahafi Nóbels heimsótti Ísland
árið 2009. Þetta kemur fram í stöðu
færslu sem Gunnar Hrafn Jónsson,
þingmaður Pírata og sonur Jónínu
Leósdóttur, eiginkonu Jóhönnu,
birti í vikunni á Facebook.
DV hefur heimildir fyrir því að
Dalai Lama hafi ekki farið á Þingvelli
meðan á dvöl hans á Íslandi stóð.
Hópur munka úr fylgdarliði hans
hafi hins vegar farið þangað í
skoðunarferð. Samkvæmt heim
ildum fór trúarleiðtoginn ekki út
fyrir mörk Reykjavíkur þá þrjá daga
sem heimsókn hans stóð yfir. Með
an hann var hér á landi hélt hann
meðal annars fyrirlestur í Laugar
dalshöll og sat fund með utanríkis
málanefnd Alþingis.
Ráðherra fór í felur
Tilefni stöðufærslu Gunnars Hrafns
var umræða á Alþingi um fríversl
unarsamning við Filippseyjar. „Sit í
þingsal þar sem verið er að ræða frí
verslunarsamning við Filippseyjar,
nú þegar hinn morðóði Duterte
forseti er við völd. Stjórnarliðar
virðast ákaflega sáttir við þá samn
inga sem fyrri ríkisstjórn náði við
Kína, þar sem mannréttindi eru
einnig brotin með kerfisbundn
um hætti. Ætli þeir viti að það kost
aði meðal annars það að ráðherrar
þess tíma þurftu beinlínis að fara í
felur og þykjast ekki vera heima
þegar sjálfur Dalai Lama
kom til landsins og vildi
hitta ráðamenn?“ skrifaði
Gunnar Hrafn. Í sam
tali við DV vildi Gunnar
Hrafn ekki tjá sig um mál
ið umfram stöðufærsluna
en staðfesti að hann hafi
orðið vitni að umræddu
atviki.
Vandræðaleg heimsókn
Heimsókn Dalai Lama
reyndist nokkuð vandræða
leg fyrir ráðherra vinstri
stjórnarinnar en tveimur árum
áður hófust viðræður um frí
verslunarsamning við Kína.
Kínversk yfirvöld hafa
í gegnum tíðina
tekið hart á
öllum fundum ráðamanna við Dalai
Lama. Þáverandi ríkisstjórn hafði
enga samræmda stefnu varðandi
fundi ráðherra með trúarleiðtog
anum. Svo fór að Ögmundur Jón
asson heilbrigðisráðherra og
Katrín Júlíusdóttir
iðnaðarráðherra
funduðu með
honum sem
almennir
borgarar.
Sam
tökin Dalai
Lama á Ís
landi stóðu
fyrir heim
sókn hans
en formaður
samtakanna
var Birgitta
Jónsdóttir, þing
maður Pírata.
Samtökin gagn
rýndu harð
lega að
þáverandi ráðamenn hefðu ekki
fundað formlega með Nóbelsverð
launahafanum. „Helstu ráðamenn
þjóðarinnar bugta sig og beygja fyrir
þeim er mannréttindabrotin fyrir
skipa, myrða og limlesta, en ekki
þeim manni sem alltaf hefur boðað
friðsamlegar leiðir þrátt fyrir mikinn
þrýsting á að fara aðrar leiðir,“ sögðu
samtökin í yfirlýsingu árið 2009.
Áhyggjur af
viðskiptaþvingunum
Af fréttaflutning frá þessum tíma
að dæma voru talsverðar áhyggjur
meðal íslenskra ráðamanna um að
heimsóknin myndi hafa neikvæð
áhrif á samskipti við Kína. RÚV full
yrti ranglega að sendiherra Kína á
Íslandi, Zhang Keyuan, hefði verið
kallaður heim frá Íslandi. Sendi
herrann sagði sjálfur í viðtali við
Stöð 2 að sú frétt hefði verið „alger
vitleysa“. Það var verulegt áhyggju
efni að Kínverjar myndu beita við
skiptaþvingunum gegn Íslandi ef
ráðherrar funduðu með trúarleið
toganum. Þær áhyggjur voru ekki
tilefnislausar líkt og afleiðingar af
fundi forsætisráðherra Slóvak
íu og Dalai Lama síðastliðinn
október ber vitni. Í kjöl
far þess neituðu kínversk
ir ráðamenn að funda með
forsætisráðherra Slóvakíu
á viðskiptaráðstefnu í
Lettlandi og samskipti
milli landanna hafa
verið mjög stirð síðan.
Ekki náðist í Jóhönnu
Sigurðardóttur við
vinnslu fréttarinnar. n
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Að sögn Gunnars Hrafns fór Jóhanna Sigurðardóttir í felur þegar munkar sáust á Þingvöllum
„Dalai lama er fyrir
utan! ekki opna!“
Þingmaður Gunnar
Hrafn Jónsson greindi
frá sögunni á Facebook.
Ragnheiður
Elín í stjórn
Landsvirkjunar
Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrr
verandi iðnaðar og viðskipta
ráðherra, hefur ver
ið skipuð í stjórn
Landsvirkjun
ar. Á aðalfundi
sem haldinn
var á fimmtudag
skipaði Benedikt
Jóhannesson, fjár
mála og efnahagsráðherra, aðal
menn og varamenn í stjórnina.
Auk Ragnheiðar verða aðal
menn í stjórn Jónas Þór Guð
mundsson, Haraldur Flosi
Tryggvason, Álfheiður Ingadóttir
og Kristín Vala Ragnarsdóttir.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu
Landsvirkjunar sem konur eru í
meirihluta stjórnar.
Úr stjórninni fóru þau
Jón Björn Hákonarson, Helgi
Jóhannesson og Þórunn Svein
bjarnardóttir en þau höfðu setið í
stjórninni frá 2014. Jónas Þór var
endurkjörinn formaður stjórnar
og Haraldur Flosi Tryggvason var
kjörinn varaformaður.
Rakel hættir
hjá Hringbraut
Rakel Sveinsdóttir, fram
kvæmdastjóri Hringbrautar, hef
ur látið af störfum hjá fjölmiðla
fyrirtækinu í kjölfar breytinga á
eignarhaldi miðilsins. „Ég hætti
öllum afskiptum af félaginu í lok
mars síðastliðnum. Það var allt
í mesta bróðerni,“ segir Rakel í
samtali við DV.
Um miðjan júlí 2016 var til
kynnt að fjárfestirinn Jón von
Tetzchner hefði keypt stóran hlut
í Hringbraut og að Rakel ætti
einnig orðið 16 prósenta hlut í fyr
irtækinu. Jón væri þar með orðinn
stærsti eigandi fyrirtækisins á eft
ir Guðmundi Erni Jóhannssyni.
Þess má geta að Jón er einnig í
eigendahópi Spyr.is en Rakel er
stofnandi þess fyrirtækis og einn
af eigendum.
Í frétt Morgunblaðsins á
fimmtudaginn kom fram að Jón
væri horfinn úr eigendahópnum
eftir stutta viðveru. Áðurnefnd
ur Guðmundur Örn ætti nú 65
prósenta hlut í félaginu og félag
ið Saffron Holding ehf., sem er í
eigu Sigurðar Arngrímssonar, ætti
19 prósenta hlut. Þá ætti Rakel
enn sinn 16 prósenta hlut. „Sá
eignarhlutur er í söluferli,“ segir
Rakel en upplýsir ekki frekar hver
mögulegur kaupandi er.
Í sömu frétt Morgunblaðsins
kemur fram að boðað hafi verið
til hluthafafundar Hringbrautar á
þriðjudag í næstu viku og þar séu
frekari breytingar á eignarhaldinu
í farvatninu. Herma heimild
ir blaðsins að líklegt sé að hlutur
Saffron Holding muni aukast
verulega frá því sem nú er.
Útgáfa DV
DV kemur næst út föstu
daginn 5. maí. Útgáfa blaðsins
fellur niður næstkomandi
þriðjudag, 2. maí, vegna bar
áttudags verkalýðsins, 1. maí.
DV minnir lesendur þó á að
öflug fréttaþjónusta verður á
dv.is eins og áður.