Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2017, Blaðsíða 50
8 Betri borgarar Helgarblað 28. apríl 2017KYNNINGARBLAÐ
Dj Grill er heimilislegur, vinalegur og þægilegur hamborgarastaður í miðbæ
Akureyrar. Staðurinn stendur
fyllilega undir þessum þremur lýs-
ingarorðum því þú getur komið með
fjölskyldunni og sest niður í róleg-
heitum og fengið þér hamborgara,
samloku eða aðra smárétti. Þú get-
ur líka skotist í hádegispásunni og
fengið þér einn snöggan borgara
og ef áhugi er fyrir hendi er lítið mál
að koma og horfa á boltann á Dj
Grilli. Þar eru sýndir flestir leikir sem
eru á dagskránni í enska boltanum
og í meistaradeildinni.
Núverandi eigendur tóku við
staðnum fyrir að verða um áratug,
þrátt fyrir að vera á þeim tíma í
tveimur öðrum störfum; að byggja
sér húsnæði og með búskap til hliðar!
„Þetta byrjaði allt í hálfgerðu
gríni,“ segja Elva Sigurðardóttir og
Snæbjörn Sigurðsson, eiginmaður
hennar. Það vantaði rekstraraðila
fyrir staðinn og Elva og Snæbjörn
ákváðu að slá til og prófa. Þau
tóku við rétt fyrir verslunarmanna-
helgina og vissu ekkert út í hvað
þau voru að fara, og varðandi
tilsögn um reksturinn treystu hjónin
á starfsfólkið og eiganda.
Þetta gekk mun betur en nokkur
hafði þorað að vona og nokkrum
mánuðum síðar urðu eigendaskipti.
Stuttu síðar hætti Elva í sinni vinnu
og hefur síðan einungis komið að
Dj Grilli. Snæbjörn er smiður og
búskapurinn er enn á sínum stað,
sumir virðast bara hafa fleiri tíma í
sólarhringnum en aðrir.
Staðurinn hefur tekið miklum
breytingum síðan árið 2008, bæði
útlitslega og varðandi matseðilinn.
Fjölskyldan er nánast öll með annan
fótinn á svæðinu, en starfsmanna-
hópurinn stækkar ört eftir því sem
líður á. Einn starfsmaður hélt áfram
eftir eigendaskiptin og stendur enn
vaktina við grillið og er hann löngu
orðinn einn af fjölskyldunni.
Zurgbassi langvinsælastur
„Staðurinn á orðið stóran
fastakúnnahóp en sem betur fer
sjáum við líka mörg ný andlit,“ segja
Elva og Snæbjörn. „Það gleður
okkur líka alltaf jafn mikið þegar
utanbæjar fólk kemur aftur og aftur
til okkar þegar það á erindi til Akur-
eyrar. Þrátt fyrir að ostborgarinn sé
alltaf klassískur hefur hamborgari
sem við köllum Zurgbassa slegið í
gegn og er sá allra, allra vinsælasti
á seðlinum hjá okkur en hann er með
piparosti og fleira góðgæti. Flestir
hamborgararnir hjá okkur hafa
stafina Dj fyrir framan; Dj Maggi, Dj
Hulda og svo framvegis, en þess má
geta að þegar við tókum við staðn-
um voru þetta helstu nöfnin sem
voru að spila á Akureyri á þeim tíma.
Zurgbassi er t.a.m. sviðsnafn sem
Ingi Þór, sonur okkar, og vinur hans
notuðu þegar þeir spiluðu.“
Dj Grill Strandgata 11
600 Akureyri
Sími: 462–1800
www.facebook.com
Frábær hamborgara-
staður í miðbæ
Akureyrar
DJ GrIll, StrANDGötu 11