Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2017, Blaðsíða 60
32 Helgarblað 28. apríl 2017Heilsa
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
Á markaðsdeild DV er í
boði starf fyrir góðan og
harðduglegan starfsmann.
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera
skemmtilegur, jákvæður, harðduglegur,
samviskusamur, heiðarlegur, ábyrgur,
úrlausnamiðaður, hafa áhuga á
sölumennsku og markaðsmálum.
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði
fyrir góðan og duglegan sölumann.
Umsóknir sendist á steinn@dv.is
Hægðir nýttar í
lækningaskyni
n Meltingarvegurinn gegnir mikilvægu hlutverki
n Hægðaflutningur skilar góðum árangri
Þ
að er ekki ofsögum sagt
að sumum þykir þeir vera
meðhöndlaðir á annan hátt
en þeir hefðu kosið eða átt
von á og er slíkt bagalegt.
Margir kynnu að segja að þeir hefðu
fengið slæma meðhöndlun eða
jafnvel skítameðhöndlun. Í flestum
slíkum tilvikum fyndist okkur það
ekki gott og líklega ekki til eftir-
breytni. Þarna er vissulega verið að
leika sér að orðum og er ég í þessari
grein á engan hátt að vísa til þess að
sjúklingar séu illa meðhöndlaðir,
þvert á móti að hvetja til þess að
sumir væru beinlínis meðhöndlaðir
á þennan hátt í bókstaflegri merk-
ingu, með saur.
Jákvæðar hliðar
Það er merkilegt hvað okkur þykir
orðið skítur, kúkur, saur eða önnur
orð um sama hlutinn hafa nei-
kvæða merkingu, í eðli sínu er um
úrgang að ræða og því fylgir um-
ræðunni ákveðin feimni. Skítalykt
er heldur ekki sérlega góð og viljum
við fyrir alla muni forðast hana og
almennt er ekki mikill spenningur
fyrir meðhöndlun eða umræðu um
saur, nema þá í gamni eða neikvæð-
um tón eins og að vera skíthæll svo
dæmi séu tekin. Vafalaust væri hægt
að fylla margar blaðsíður um þetta
umræðuefni, en ég vil einbeita mér
að hinum jákvæðu hliðum og fjalla
um þær í samhengi við sjúkdóma
hér á eftir.
Mikilvægt hlutverk
Við vitum í dag að meltingarvegur-
inn gegnir afar mikilvægu hlutverki,
fyrst og fremst í því efni að melta
og frásoga næringarefni, vernda
okkur gegn sýkingum og viðhalda
styrk okkar með því að hafa jákvæð
áhrif á ónæmiskerfið. Undanfarin
ár höfum við séð að við andlega
vanlíðan og ýmsa sjúkdóma leikur
meltingarvegurinn drjúgt hlutverk
þótt erfitt sé að átta sig á orsökum
og afleiðingum. Sem dæmi þekkja
flestir að andlegt ójafnvægi og kvíði
getur valdið meltingartruflunum,
niðurgangi eða jafnvel hægða-
tregðu. Flestir hafa talið að slík ein-
kenni væru afleiðing, en hvað ef
þar væri að finna orsök? Þá benda
rannsóknir til að meltingarflór-
an sem hver einstaklingur ber með
sér sé mikilvægur hluti af líðan við-
komandi, hvort sem er andlega eða
líkam lega. Við erum á byrjunarstigi
að skilja þessa hluti þótt okkur hafi
orðið nokkuð ágengt á undanförn-
um misserum.
Hefur eitt markmið
Það er of flókið mál að útskýra flóru
í meltingarvegi í þessari grein, en
til einföldunar skulum við ímynda
okkur að hún sé samfélag sem vinn-
ur sameiginlega að einu markmiði,
að viðhalda sér og starfsemi sinni.
Með því skilar hún heilbrigðum
einstaklingi og tryggir frásog nær-
ingarefna og útskilnað úrgangsefna.
Þannig er auðvelt að sjá fyrir sér að
ef röskun verður á þessari starfsemi
geti það leitt til sjúkdóma, sérstak-
lega ef hún er langvarandi eða tíð.
Fyrir því geta verið margar ástæður,
þær algengustu eru notkun sýkla-
og bólgueyðandi lyfja, sýkingar,
áfengisneysla, koffein, fæðuval og
ýmislegt fleira.
Undanfari sjúkdóma
Sjúkdómar í meltingarvegi eru
margir og má ljóst vera að flestir
þeirra tengjast á einn eða annan
hátt því hvernig flóra viðkomandi
einstaklings er, hið merkilega er
þó að það virðist líka hafa áhrif á
aðra sjúkdóma svo sem liðagigt,
sykursýki af tegund 1 og 2, offitu og
„metabólískt syndrome“, hjarta- og
æðasjúkdóma, Parkinson og ýmsan
vanda sem tengja má við ónæmis-
sjúkdóma og bólgu. Líklega liggur
skýringin í þessu orði „bólga“ en
iðulega er hún eða það ástand
undanfari sjúkdóma að því er virð-
ist, og við erum alltaf að átta okkur
betur og betur á því í heimi vísind-
anna.
Ótrúlegur árangur
Þannig að til að taka það fram þá
tel ég að skítameðhöndlun geti
verið af tvennum toga, hér er ég
að vísa í hina eiginlegu meðferð
með hægðaflutningi sem er byrjað
að framkvæma víða í lækninga-
skyni. Þar fær sá veiki hægðaflóru
úr hraustum einstaklingi í þeim til-
gangi að lækna vanda viðkomandi.
Sannast sagna hefur náðst ótrúlegur
árangur í meðhöndlun sjúkdóma
með þessum hætti, mest hefur það
verið skoðað í tengslum við ákveðna
sýkingu í meltingarvegi sem kallast
„clostridium difficile“, en dæmi eru
um að sjúklingar sem hafi verið
rúmliggjandi með niðurgang vikum
saman hafi lagast á nokkrum dög-
um. Verið er að skoða þessa tegund
meðhöndlunar við mjög mörgum
öðrum sjúkdómum í dag samanber
hér að framan og bíðum við spennt
eftir niðurstöðum þar að lútandi.
Mögulega verður skítameðhöndlun
bara „standard treatment“ í fram-
tíðinni, hver veit? n
Teitur Guðmundsson
læknir