Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2017, Side 60

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2017, Side 60
32 Helgarblað 28. apríl 2017Heilsa Atvinna í boði á einum skemmtilegasta vinnustað landsins Á markaðsdeild DV er í boði starf fyrir góðan og harðduglegan starfsmann. Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera skemmtilegur, jákvæður, harðduglegur, samviskusamur, heiðarlegur, ábyrgur, úrlausnamiðaður, hafa áhuga á sölumennsku og markaðsmálum. Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir góðan og duglegan sölumann. Umsóknir sendist á steinn@dv.is Hægðir nýttar í lækningaskyni n Meltingarvegurinn gegnir mikilvægu hlutverki n Hægðaflutningur skilar góðum árangri Þ að er ekki ofsögum sagt að sumum þykir þeir vera meðhöndlaðir á annan hátt en þeir hefðu kosið eða átt von á og er slíkt bagalegt. Margir kynnu að segja að þeir hefðu fengið slæma meðhöndlun eða jafnvel skítameðhöndlun. Í flestum slíkum tilvikum fyndist okkur það ekki gott og líklega ekki til eftir- breytni. Þarna er vissulega verið að leika sér að orðum og er ég í þessari grein á engan hátt að vísa til þess að sjúklingar séu illa meðhöndlaðir, þvert á móti að hvetja til þess að sumir væru beinlínis meðhöndlaðir á þennan hátt í bókstaflegri merk- ingu, með saur. Jákvæðar hliðar Það er merkilegt hvað okkur þykir orðið skítur, kúkur, saur eða önnur orð um sama hlutinn hafa nei- kvæða merkingu, í eðli sínu er um úrgang að ræða og því fylgir um- ræðunni ákveðin feimni. Skítalykt er heldur ekki sérlega góð og viljum við fyrir alla muni forðast hana og almennt er ekki mikill spenningur fyrir meðhöndlun eða umræðu um saur, nema þá í gamni eða neikvæð- um tón eins og að vera skíthæll svo dæmi séu tekin. Vafalaust væri hægt að fylla margar blaðsíður um þetta umræðuefni, en ég vil einbeita mér að hinum jákvæðu hliðum og fjalla um þær í samhengi við sjúkdóma hér á eftir. Mikilvægt hlutverk Við vitum í dag að meltingarvegur- inn gegnir afar mikilvægu hlutverki, fyrst og fremst í því efni að melta og frásoga næringarefni, vernda okkur gegn sýkingum og viðhalda styrk okkar með því að hafa jákvæð áhrif á ónæmiskerfið. Undanfarin ár höfum við séð að við andlega vanlíðan og ýmsa sjúkdóma leikur meltingarvegurinn drjúgt hlutverk þótt erfitt sé að átta sig á orsökum og afleiðingum. Sem dæmi þekkja flestir að andlegt ójafnvægi og kvíði getur valdið meltingartruflunum, niðurgangi eða jafnvel hægða- tregðu. Flestir hafa talið að slík ein- kenni væru afleiðing, en hvað ef þar væri að finna orsök? Þá benda rannsóknir til að meltingarflór- an sem hver einstaklingur ber með sér sé mikilvægur hluti af líðan við- komandi, hvort sem er andlega eða líkam lega. Við erum á byrjunarstigi að skilja þessa hluti þótt okkur hafi orðið nokkuð ágengt á undanförn- um misserum. Hefur eitt markmið Það er of flókið mál að útskýra flóru í meltingarvegi í þessari grein, en til einföldunar skulum við ímynda okkur að hún sé samfélag sem vinn- ur sameiginlega að einu markmiði, að viðhalda sér og starfsemi sinni. Með því skilar hún heilbrigðum einstaklingi og tryggir frásog nær- ingarefna og útskilnað úrgangsefna. Þannig er auðvelt að sjá fyrir sér að ef röskun verður á þessari starfsemi geti það leitt til sjúkdóma, sérstak- lega ef hún er langvarandi eða tíð. Fyrir því geta verið margar ástæður, þær algengustu eru notkun sýkla- og bólgueyðandi lyfja, sýkingar, áfengisneysla, koffein, fæðuval og ýmislegt fleira. Undanfari sjúkdóma Sjúkdómar í meltingarvegi eru margir og má ljóst vera að flestir þeirra tengjast á einn eða annan hátt því hvernig flóra viðkomandi einstaklings er, hið merkilega er þó að það virðist líka hafa áhrif á aðra sjúkdóma svo sem liðagigt, sykursýki af tegund 1 og 2, offitu og „metabólískt syndrome“, hjarta- og æðasjúkdóma, Parkinson og ýmsan vanda sem tengja má við ónæmis- sjúkdóma og bólgu. Líklega liggur skýringin í þessu orði „bólga“ en iðulega er hún eða það ástand undanfari sjúkdóma að því er virð- ist, og við erum alltaf að átta okkur betur og betur á því í heimi vísind- anna. Ótrúlegur árangur Þannig að til að taka það fram þá tel ég að skítameðhöndlun geti verið af tvennum toga, hér er ég að vísa í hina eiginlegu meðferð með hægðaflutningi sem er byrjað að framkvæma víða í lækninga- skyni. Þar fær sá veiki hægðaflóru úr hraustum einstaklingi í þeim til- gangi að lækna vanda viðkomandi. Sannast sagna hefur náðst ótrúlegur árangur í meðhöndlun sjúkdóma með þessum hætti, mest hefur það verið skoðað í tengslum við ákveðna sýkingu í meltingarvegi sem kallast „clostridium difficile“, en dæmi eru um að sjúklingar sem hafi verið rúmliggjandi með niðurgang vikum saman hafi lagast á nokkrum dög- um. Verið er að skoða þessa tegund meðhöndlunar við mjög mörgum öðrum sjúkdómum í dag samanber hér að framan og bíðum við spennt eftir niðurstöðum þar að lútandi. Mögulega verður skítameðhöndlun bara „standard treatment“ í fram- tíðinni, hver veit? n Teitur Guðmundsson læknir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.