Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2017, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2017, Page 50
8 Betri borgarar Helgarblað 28. apríl 2017KYNNINGARBLAÐ Dj Grill er heimilislegur, vinalegur og þægilegur hamborgarastaður í miðbæ Akureyrar. Staðurinn stendur fyllilega undir þessum þremur lýs- ingarorðum því þú getur komið með fjölskyldunni og sest niður í róleg- heitum og fengið þér hamborgara, samloku eða aðra smárétti. Þú get- ur líka skotist í hádegispásunni og fengið þér einn snöggan borgara og ef áhugi er fyrir hendi er lítið mál að koma og horfa á boltann á Dj Grilli. Þar eru sýndir flestir leikir sem eru á dagskránni í enska boltanum og í meistaradeildinni. Núverandi eigendur tóku við staðnum fyrir að verða um áratug, þrátt fyrir að vera á þeim tíma í tveimur öðrum störfum; að byggja sér húsnæði og með búskap til hliðar! „Þetta byrjaði allt í hálfgerðu gríni,“ segja Elva Sigurðardóttir og Snæbjörn Sigurðsson, eiginmaður hennar. Það vantaði rekstraraðila fyrir staðinn og Elva og Snæbjörn ákváðu að slá til og prófa. Þau tóku við rétt fyrir verslunarmanna- helgina og vissu ekkert út í hvað þau voru að fara, og varðandi tilsögn um reksturinn treystu hjónin á starfsfólkið og eiganda. Þetta gekk mun betur en nokkur hafði þorað að vona og nokkrum mánuðum síðar urðu eigendaskipti. Stuttu síðar hætti Elva í sinni vinnu og hefur síðan einungis komið að Dj Grilli. Snæbjörn er smiður og búskapurinn er enn á sínum stað, sumir virðast bara hafa fleiri tíma í sólarhringnum en aðrir. Staðurinn hefur tekið miklum breytingum síðan árið 2008, bæði útlitslega og varðandi matseðilinn. Fjölskyldan er nánast öll með annan fótinn á svæðinu, en starfsmanna- hópurinn stækkar ört eftir því sem líður á. Einn starfsmaður hélt áfram eftir eigendaskiptin og stendur enn vaktina við grillið og er hann löngu orðinn einn af fjölskyldunni. Zurgbassi langvinsælastur „Staðurinn á orðið stóran fastakúnnahóp en sem betur fer sjáum við líka mörg ný andlit,“ segja Elva og Snæbjörn. „Það gleður okkur líka alltaf jafn mikið þegar utanbæjar fólk kemur aftur og aftur til okkar þegar það á erindi til Akur- eyrar. Þrátt fyrir að ostborgarinn sé alltaf klassískur hefur hamborgari sem við köllum Zurgbassa slegið í gegn og er sá allra, allra vinsælasti á seðlinum hjá okkur en hann er með piparosti og fleira góðgæti. Flestir hamborgararnir hjá okkur hafa stafina Dj fyrir framan; Dj Maggi, Dj Hulda og svo framvegis, en þess má geta að þegar við tókum við staðn- um voru þetta helstu nöfnin sem voru að spila á Akureyri á þeim tíma. Zurgbassi er t.a.m. sviðsnafn sem Ingi Þór, sonur okkar, og vinur hans notuðu þegar þeir spiluðu.“ Dj Grill Strandgata 11 600 Akureyri Sími: 462–1800 www.facebook.com Frábær hamborgara- staður í miðbæ Akureyrar DJ GrIll, StrANDGötu 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.