Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Side 2
2 Vikublað 9.–11. maí 2017fréttir
Kínverjar til
vandræða við
Kvíabryggju
Afstaða, félag fanga, segir að
helsta vandamál fangavarða á
Kvíabryggju síðustu ár hafi ver-
ið ágangur ferðamanna. Félagið
segir að stærsti hópurinn sé Kín-
verjar sem engu skeyti um skilti
sem bannar inngöngu að fang-
elsinu.
Kvíabryggja er opið fangelsi og
svæðið því ekki afgirt. Óviðkom-
andi aðgangur er þó stranglega
bannaður. „Undanfarin ár hefur
vandi fangavarða á Kvíabryggju
aðallega legið í því að halda er-
lendum ferðamönnum utan við
svæðið en það hefur verið dag-
legur viðburður að reka ferða-
menn aftur út fyrir svæðið og eru
Kínverjar þar stærsti hópurinn
og hafa þeir engu skeytt um skilti
sem bannar þeim inngöngu enda
vilja þeir ná bestu myndunum af
Kirkjufellinu. Dæmi eru um að
heilu rúturnar hafi komið og lagt
beint fyrir utan forstöðumanns-
bústaðinn,“ segir í færslu sem Af-
staða birti á Facebook.
Birgir Guðmundsson, for-
stöðumaður Kvíabryggju, segir
í samtali við DV það rétt að tals-
vert sé um það að ferðamenn
fari inn á svæðið. Hann segir að
ferðamönnum sé alltaf vísað frá
svæðinu. Að hans sögn verða
margir þeirra hissa þegar þeim sé
sagt að þeir séu staddir við fang-
elsi. „Þetta er svo sem ekki stórt
vandamál en það var verið að
setja nýtt skilti við veginn. Þetta
geta verið nokkrir bílar á dag,“
segir Birgir.
Síðustu leifar vinstri
umferðarinnar að hverfa
Bílastæði sem bera vinstri umferðinni merki munu víkja í framkvæmdum við Miklubraut
M
eð framkvæmdum
sem nú eru að hefjast á
Miklubraut milli Löngu-
hlíðar og Rauðarár-
stígs munu einar af síð-
ustu leifunum um vinstri umferð í
borginni hverfa. Með framkvæmd-
unum verður bílastæðum við húsa-
götuna, sunnan megin við Miklu-
braut, breytt en þar má sjá minjar
þess þegar hér var vinstri umferð.
Slíkar minjar eru einnig sýnilegar
á bílastæðum við Hofsvallagötu,
næst Vesturbæjarlaug.
Framkvæmdirnar sem um ræð-
ir fela í sér að gerð verður for-
gangsakrein fyrir strætisvagna til
austurs auk aðskilinna hjóla og
göngustíga norðan götunnar. Haf-
ist verður handa norðan megin, nær
Klambratúni, en síðan farið í fram-
kvæmdir í og við húsagötuna sunnan
megin. Forgangsakrein strætisvagna
verður þá lögð sunnan Miklubraut-
ar, meðfram húsagötunni, auk
hljóðvarnarveggja. Þar með munu
umrædd bílastæði lenda undir fram-
kvæmdasvæðinu og með þeim minj-
ar vinstri umferðarinnar.
H-dagurinn 1968
Umferð á Íslandi var breytt úr vinstri
umferð og yfir í hægri umferð að
morgni sunnudagsins 26. maí 1968.
Eins og gefur að skilja hafði upp-
bygging umferðarmannvirkja fram
til þess tíma tekið mið af þeim regl-
um sem í gildi voru, það er vinstri
umferð. Vissulega var ekki mjög
flókið að færa umferð frá vinstri til
hægri þar eð aðeins þurfti að skipta
um akreinar en hins vegar þurfti að
færa þúsundir götu- og vegaskilta
sem voru, eins og gefur að skilja, öf-
ugum megin miðað við umferð. Þá
þurfti að breyta strætisvögnum til að
hægt væri að ganga inn í þá hægra
megin í stað vinstra megin og einnig
þurfti að breyta, í einhverjum mæli,
umferðarmannvirkjum til að koma
til móts við breytinguna.
Lagt öfugt
Líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd
voru bílastæðin sem um ræðir við
Miklubrautina hönnuð með það fyr-
ir augum að bílar sem komu keyr-
andi til vesturs á syðri akreininni
gætu keyrt inn í húsagötuna og lagt
í skástæði meðfram Miklubraut. Því
má sjá totu vestast á bílastæðunum
báðum sem rímar við að leggja hefði
átt bílum á ská í norðvesturátt. Hins
vegar er bílum nú, sökum þess að
hægri umferð er við lýði, lagt
á ská í norðaustur.
Nær að friða og setja upp
minnismerki
Snæbjörn Guðmundsson, jarð-
fræðingur og áhugamaður um sam-
göngu- og vegamál, vakti athygli
á þessu á Facebook-síðu sinni og
spurði jafnframt í léttum tón, en þó
af alvöru, hvort ekki væri rétt að fara
fram á skyndifriðun. Í samtali við DV
segir Snæbjörn að honum þyki mið-
ur ef ekki verður horft til samgöngu-
sögunnar og það endi með því að
allar minjar um vinstri umferðina
hverfi. „Þetta eru auðvitað bráð-
nauðsynlegar framkvæmdir sem
verið er að ráðast í á Miklubrautinni.
Það er hins vegar svolítið leiðinlegt
að verið sé að slaufa þessu gamla
bílastæði í leiðinni, bílastæði sem
er núna einn fárra minnisvarða um
vinstri umferðina sem eftir eru. Ein-
hverjum kann að þykja sérstakt að
líta á þetta með þessum augum en
vinstri umferðin er hluti af sam-
göngusögunni. Það getur varla verið
mikið mál að varðveita þessar minj-
ar, þótt lappað væri upp á þær með-
fram framkvæmdunum. Það væri
miklu frekar að friða þær og setja
upp minningarskjöld um vinstri
umferðina og H-daginn þarna við
hliðina.“ n
Freyr Rögnvaldsson
freyr@dv.is
Minjar vinstri umferðar Eins og sjá má á bílastæðunum á myndinni er undarleg tota lengst til vinstri, vestast. Það skýrist af því að bílum
hefur verið lagt skáhallt til norðvesturs þegar hér var vinstri umferð en er nú lagt skáhallt til norðausturs. MyNd BoRgaRveFsjá
vill varðveita minjar um vinstri
umferð Snæbjörn segir að það væri ráð að
friða þær fáu minjar sem eftir eru um vinstri
umferðina og koma upp minningarskjöld
um H-daginn. MyNd eyjóLFuR guðMuNdssoN
H-dagurinn Mikil vinna var lögð í að kynna
breytinguna frá vinstri og yfir í hægri umferð
árið 1968. MyNd BoRgaRskjaLasaFN
„Það getur
varla verið
mikið mál að varð-
veita þessar minjar,
þótt lappað væri
upp á þær meðfram
framkvæmdunum.
Handtekinn
vegna ráns
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
handtók rúmlega tvítugan mann
um hádegisbilið á mánudag, en
sá er grunaður um að hafa framið
vopnað rán í apóteki í Breiðholti
fyrr um daginn.
Lögreglu barst til kynn ing
um ránið á ellefta tímanum á
mánudagsmorgun og mætti á
staðinn í kjölfarið ásamt sérsveit.
Mun ræninginn hafa verið
vopnaður hnífi. Engan sakaði en
starfsfólki var vissulega brugðið.
Ógnað með hníf
Lögreglan á Akureyri var kölluð
til eftir að 11 ára drengur ógnaði
börnum við Naustaskóla á
Akureyri með vasahníf. Hótaði
hann að drepa aðra drengi.
Vikudagur greinir frá því að
atvikið hafi átt sér stað í lok mars.
Lögreglan hefur lagt hald
á hnífinn en um var að ræða
vasahníf sem otað var að
hálsi eins drengs. „Krakkar sjá
svona hegðun í tölvuleikjum
og bíómyndum,“ sagði Gunnar
Jóhannsson lögreglufulltrúi í
samtali við Vikudag.
B
rynjúlfur Jóhannsson hef-
ur verið kærður til lögreglu
af tollstjóra fyrir að koma til
landsins með fimm sveðjur
í farangri sínum. Tollstjóri telur að
málið varði við vopnalög sem banna
að flytja til landsins bitvopn ef blað-
ið er lengra en 12 sentímetrar. Brynj-
úlfur segir sjálfur að sveðjurnar hafi
verið með um 50 sentímetra blað-
lengd. Hann vakti talsverða athygli
í fyrra þegar hann auglýsti ólöglega
ofskynjunarsveppi í kostaðri færslu
á Facebook.
Brynjúlfur segist í samtali við DV
hafa litlar áhyggjur af kærunni. Hann
var að koma frá Gvatemala, með
millilendingu í Toronto, en Brynjúlf-
ur segir að annar hver maður gangi
með slíka sveðju í landinu. „Þegar ég
kom úr vélinni og var að nálgast toll-
inn þá er ég tekinn afsíðis, örugglega
út af því að ég er þekktur. Ég var tek-
inn aftur fyrir og það var rótað í öllu
og þá fundu þeir sveðjurnar,“ seg-
ir Brynjúlfur. Hann segist ekki hafa
verið handtekinn en sveðjurnar voru
gerðar upptækar.
Brynjúlfur segist ætla að berj-
ast fyrir því að fá sveðjurnar aftur en
hann segist ætla að nota þær í land-
búnaði. „Þessar sveðjur myndu gera
líf mitt litríkara. Mér finnst þetta svo
heimilislegt. Mig dreymdi að þær
kæmu aftur. Það eru ekki öll kurl
komin til grafar í þessu máli,“ seg-
ir Brynjúlfur og bætir við að honum
þyki skemmtilegt að fá kæru á sig
þar sem hann hafi þá eitthvað fyrir
stafni.
Brynjúlfur titlar sjálfan sig sem
töfralækni og hefur um tíma boð-
ið fólki á heimili sitt til að neyta of-
skynjunarsveppa. DV greindi frá því í
október að Brynjúlfur hafi mætt fyrir
utan Alþingi með fíkniefni. „Þar mun
ég vera með þessar tvær krukkur. Í
annarri er kannabis, sveppir í hinni.
Athöfnin er ætluð til þess að frelsa
okkur frá ofbeldi bannstefnunnar,“
sagði hann þá. n
hjalmar@dv.is
„Þessar sveðjur myndu gera líf mitt litríkara,“ segir Brynjúlfur jóhannsson, sem titlar sig sem töfralækni
Brynjúlfur tekinn með fimm sveðjur í Leifsstöð
vill sveðjurnar
aftur Brynjúlfur
segir sveðjurnar
ætlaðar í land-
búnað. MyNd FaceBook