Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Blaðsíða 4
4 Vikublað 9.–11. maí 2017fréttir
Fæst í A4, Byko, Fk, Lyfju,
Íslandspóst og um land allt
Múmínálfar
-Safnaðu þeim öllum
Bakp
okar
,
lykla
kippu
r
o.fl.
Nefndarmenn
borgarinnar fá tugi
þúsunda á tímann
Sumir nefndarmenn í ráðum Reykjavíkur fá álíka tímakaup og slitastjórnir föllnu bankanna fengu
N
efndarmenn í ráðum
Reykjavíkurborgar geta
fengið allt að nærri 70 þús-
und krónum á tímann fyr-
ir nefndarsetu. Reykja-
víkurborg greiddi í fyrra ríflega
290 milljónir króna í launagreiðsl-
ur til einstaklinga fyrir nefndar-
setu. Þetta kemur fram í svari borg-
arráðs við fyrirspurn Framsóknar
og flugvallarvina. Nefndarmaður í
hverfisráði, sem fær 66 þúsund á tí-
mann, segir að nefndarseta kalli á
vinnu umfram fundina sjálfa. Rétt
er að taka fram að nefndarmenn í
hverfisráðum eru skipaðir af stjórn-
málaflokkum í borgarstjórn.
Til að setja þessar upphæð-
ir í samhengi þá fengu nefndar-
menn í slitastjórn Glitnis í sumum
tilvikum minna á tímann en sum-
ir nefndarmenn borgarinnar. DV
greindi frá því í fyrra að Kolbeinn
Árnason hafi fengið 80 þúsund
krónur á tímann fyrir stjórnarsetu í
gamla Landsbankanum (LBI). Árið
2015 greindi DV jafnframt frá því að
Steinunn Guðbjartsdóttir, formað-
ur slitastjórnar Glitnis, hafi fengi
57 þúsund krónur á tímann. For-
maður hverfisráðs Laugardals fékk
í fyrra tæplega 59 þúsund krónur á
tímann.
Mishátt tímakaup
Tímakaup fyrir nefndarsetu er
mjög misjafnt eftir nefndum þar
sem laun eru nokkuð stöðluð en
ráð funda mislengi. Sem dæmi má
nefna Sabine Leskopf, sem situr
meðal annars í mannréttindaráði
fyrir hönd Samfylkingarinnar. Hún
fékk í fyrra 1,4 milljónir í laun auk
ríflega 200 þúsund króna í launa-
tengd gjöld fyrir að sitja í því ráði.
Mannréttindaráð fundaði tvisvar
í mánuði, utan júlí, eða samtals
22 sinnum í fyrra. Mannréttinda-
ráð fundaði mislengi í fyrra, allt frá
hálftíma upp í tvo tíma, en samtals
fundaði ráðið í 34 klukkustundir.
Það þýðir að Sabine fékk tæplega
49 þúsund krónur á tímann fyrir
að sitja í því ráði. Hún sat í tveim-
ur öðrum ráðum þar sem hún fékk
jafnframt 1,4 milljónir í árslaun.
Líkt og fyrr segir funda ráð
mislengi og þar sem laun er stöðl-
uð óháð fundarsetu þá getur tíma-
kaupið verið misjafnt. Dæmi um
það er menningar- og ferðamála-
ráð, sem fundaði í fyrra í samtals
44 tíma. Stefán Benediktsson sat í
nefndinni fyrir hönd Samfylkingar-
innar og fékk hann ríflega 1,5 millj-
ónir króna í fyrra. Hann fékk því
tæplega 35 þúsund krónur á tím-
ann.
Segir verkefnin fjölbreytt
Hverfisráð Hlíða fundaði ellefu
sinnum í fyrra í samtals 19 klukku-
tíma. Formaður ráðsins er Margrét
Norðdahl, fyrir hönd Samfylkingar-
innar, en Reykjavíkurborg greiddi
henni 1,2 milljónir í laun og launa-
tengd gjöld árið 2016. Hún fékk því
ríflega 66 þúsund krónur á tímann
fyrir að sitja í hverfisráðinu í fyrra.
Margrét segir í samtali við DV að
nokkur vinna fari fram utan funda.
„Við erum að sinna verkefnum sem
berast inn til okkar. Hvort sem það
er í gegnum borgina, til dæmis er-
indi frá umhverfis- og skipulags-
sviði, eða frá íbúasamtökum. Oft
koma erindi beint til manns frá íbú-
um í hverfinu varðandi mál í hverf-
inu. Það getur varðað til dæmis
gönguljós. Verkefnin eru mjög fjöl-
breytt. Við reynum að tengja okkur
við það sem er að gerast í hverfinu.
Ég funda á milli funda og við tök-
um þátt í ýmsum viðburðum á vett-
vangi hverfisins,“ segir Margrét.
Fundarhald einn hluti af starf-
inu
Heiðar Ingi Svansson, formaður
hverfisráðs Laugardals, segist ekki
hafa farið í hverfisráð á forsend-
um launagreiðslna. „Ég hef litið á
þetta þannig að það sé ekki ver-
ið að borga mér fyrir þennan eina
fund. Ég hef verið að vinna þetta
frekar út á hugsjón. Starfslýsingin
er mjög víð. Það var til dæmis opinn
íbúafundur um snjallsímanotkun
í skólum í síðustu viku sem ég sat.
Ég vinn miklu meira en þessi fund-
ur segir til um. Ef þú ætlar að vinna
þetta almennilega þá kallar þetta á
aukavinnu umfram fundina. Eins
og þetta blasir við mér þá eru fund-
irnir hluti af vinnunni sem ég vinn
sem formaður hverfisráðs,“ segir
Heiðar Ingi.
Hann fékk jafnhá laun og Mar-
grét í fyrra en þar sem hverfisráð
Laugardals fundaði nokkuð lengur
en hverfisráð Hlíða var hann með
um 59 þúsund krónur í tímakaup. n
Formaður Hverfisráðs
Hlíða Margrét Norðdahl
var með um 66 þúsund á
tímann í fyrra.
Mynd SaMFylkingin
Formaður hverfisráðs laugardals
Heiðar Ingi Svansson hefur verið formað-
ur í nærri tvö kjörtímabil. Mynd Björt FraMtíð
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
97.500 krónum
fátækari
Lögreglan á Suðurnesjum kærði
vel á annan tug ökumanna fyr-
ir hraðakstur um helgina. Þetta
kemur fram í dagbók lögreglu.
Þar kemur fram að sá sem
hraðast ók hafi verið á ferðinni á
Reykjanesbraut. Hann mældist
á 151 kílómetra hraða þar sem
hámarkshraði er 90 kílómetrar á
klukkustund. Brotið kostaði hann
97.500 krónur, að sögn lögreglu.
Þá voru skráningarnúmer
fjarlægð af nokkrum bifreiðum
sem voru ýmist óskoðaðar eða
ótryggðar.
Björgólfur
einn sá ríkasti
í Bretlandi
Björgólfur Thor Björgólfsson
fjárfestir er í hópi ríkustu manna
Bretlands ef marka má úttekt sem
birtist í tímariti Sunday Times á
dögunum. Tímaritið er helgað
auðmönnum í Bretlandi og eru
eignir hans metnar á 1,45 millj-
arða punda, rétt tæplega tvö
hundruð milljarða króna.
Björgólfur, sem er búsettur í
London, er sagður hafa hagnast
um 325 milljónir punda milli ár-
anna 2015 og 2016. Hann er í 89.
sæti á lista Sunday Times yfir rík-
ustu menn Bretlands. Í umfjöllun
um hann segir að hann hafi eitt
sinn tapað þremur milljörðum
punda á þremur dögum í kjölfar
efnahagsniðursveiflunnar 2008 en
byggt viðskiptaveldi sitt upp aftur.
Meðal helstu eigna Björgólfs má
nefna helmingshlut í P4 sem er
stærsta farsímafyrirtæki Póllands.