Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Side 30
30 menning Vikublað 9.–11. maí 2017
Miklu meira
en verslun
Sigríður Rut Marrow hefur ferðast um landið og tekið ljósmyndir af kaupmanninum á horninu
U
m miðja síðustu öld versl-
uðu Íslendingar fyrst og
fremst í sérverslunum og
hjá kaupmönnum sem af-
hentu fólki fjölbreyttar vör-
ur yfir búðarborðið. Hundruð slíkra
kaupmanna voru staðsettir á götu-
hornum í íbúðahverfum um allt
land, verslanir þeirra voru allt í senn
skemmtistaðir, félagsmiðstöðvar og
öryggisnet fyrir fólk í hverfinu. Með
uppgangi stórmarkaða og lágvöru-
verslanakeðja í útjaðri íbúðahverf-
anna hefur þessi starfsemi að mestu
leyti liðið undir lok, en enn standa
þó nokkrir þrautseigir kaupmenn
eftir á hornum borga og bæja lands-
ins.
Sigríður Rut Marrow hefur á
undanförnu ári ferðast um landið
og tekið myndir af hér um bil öllum
kaupmönnum sem enn reka eigin
verslanir á íslenskum götuhornum.
Ljósmyndasyrpan er lokaverkefni
Sigríðar í mastersnámi í menningar-
miðlun við Háskóla Íslands en hún
vonast til að geta sýnt afraksturinn
opinberlega á næstu mánuðum og
gefið út á bók.
Inn í annan heim
Sigríður segir að áhugi hennar á
kaupmanninum á horninu hafi
byrjað þegar hún var að leita sér að
hentugu verkefni fyrir ljósmyndaá-
fanga í skólanum. „Á þessum tíma
fór ég fyrir tilviljun inn í Kjötborg
[við Ásvallagötu] í fyrsta skipti. Ég
er það ung að ég þegar ég var að
alast upp höfðu stórmarkaðirn-
ir löngu tekið yfir markaðinn. Það
var því svolítil upplifun fyrir mig að
koma inn í búðina – svolítið eins og
að ganga inn í annan heim. Ég vissi
strax að mig langaði að vinna eitt-
hvað með þetta,“ segir Sigríður.
Verkefnið óx fljótlega úr því að
vera lítið ljósmyndaverkefni um
þrjár verslanir í Reykjavík yfir í það
að vera skrásetning á öllum horn-
kaupmönnum landsins. „Bróðir
minn stakk upp á því að ég ferðað-
ist hringinn og myndaði allar svona
búðir á landinu. Þetta er eldri bróð-
ir minn sem ég tek mjög mikið mark
á þannig að ég ákvað bara að gera
þetta. Síðasta haust fór ég í fyrstu
ferðina og myndaði búðir á Vestur-,
Norður- og Austurlandi. Svo ferð-
aðist ég um Suðurland og Reykja-
vík í nóvember. Í apríl heimsótti
ég svo nokkrar aðrar búðir sem ég
hafði frétt af í millitíðinni. Þetta eru
33 búðir í heildina. Það eru reynd-
ar tvær búðir sem ég missti af, en ég
mun mynda þær ef ég fer eitthvað
lengra með verkefnið.“
Deyjandi starfsstétt
Þeir 33 kaupmenn sem reka eigin
verslanir á Íslandi í dag eru aðeins
brotabrot af þeim fjölda sjálfstæðu
kaupmanna á landinu um miðja
síðustu öld. Hún vitnar í hinn 87
ára gamla Bjarna Haraldsson sem
enn stendur vaktina í Verslun H.
Júlíussonar á Sauðárkróki, en
hann man eftir því þegar það voru
nærri því 20 verslanir í götunni á
Sauðárkróki.
En af hverju fækkaði þessum
verslunum svona mikið, var það
fyrst og fremst þegar stórmarkað-
irnir komu fram?
„Já, fyrsti stórmarkað-
urinn að bandarískri
fyrirmynd kom árið
1959 þegar Hag-
kaup var stofnað.
Það eru eflaust
margar ástæð-
ur fyrir því að
slíkar verslanir
fóru að taka yfir.
Áður fyrr, þegar ís-
skápar voru sjald-
séðir á heimilum,
þurftu húsmæð-
urnar að fara einu
sinni á dag út
að versla, til
kjötsalans, í
fiskbúðina,
mjólkur-
búð-
ina
og
kaupmannsins. Þetta breyttist svo
smám saman. Það hafði líka áhrif
þegar jafnrétti kynjanna jókst og
báðir aðilar í hjónabandi fóru út á
vinnumarkaðinn, samgöngur bötn-
uðu líka og nú síðast hefur fólk far-
ið að versla á netinu,“ segir Sigríður
og bendir á að þróunin hafi aðeins
orðið hraðari á síðasta áratugn-
um. „Bónus kom svo árið 1989 og
Íslendingar tóku sérstaklega vel í
þetta enda var vöruverðið mun
lægra.“
Sigríður segir að með
ljósmyndum sínum sé
hún að skrásetja hverf-
andi menningarheim
og sé verkefnið hálf-
gerður minnisvarði,
enda hafi fimm
kaupmenn til
viðbótar lagt
upp laupana
á því eina
ári sem hún
hefur unnið
verk-
efnið.
„Til að reka svona
búð þarftu að
vera mjög „sósjal“ enda
verða þetta yfirleitt eins
og félagsmiðstöðvar fyrir
nærumhverfið.
Gunnubúð Guðrún Rannveig Björnsdóttir
hefur rekið verslunina Urð, sem er betur
þekkt sem Gunnubúð, á Raufarhöfn frá
árinu 1995. MynD SIGRíðuR Rut MaRRow
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Fangar hverfandi menningarheim Sigríður
Rut Marrow hefur tekið ljósmyndir af hér um bil
öllum hornkaupmönnum landsins. MynD SIGtRyGGuR aRI