Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2017, Page 38
38 fólk Vikublað 9.–11. maí 2017
Í
ár tekur Ísland þátt í Söngva-
keppni evrópskra sjónvarps-
stöðva, eða Eurovision, í þrítug-
asta sinn en við tókum fyrst þátt
1986. Síðan þá höfum við tek-
ið þátt á hverju ári fyrir utan tvö ár,
1998 og 2002, en þá máttum við ekki
taka þátt vegna lélegs árangurs árin
á undan, 1997 og 2001. Gengi okkar
í keppninni hefur verið nokkuð brö-
sótt, við höfum aðeins fimm sinn-
um lent í efstu tíu sætunum. Sautján
sinnum höfum við verið í sæt-
um 12–20 og tvisvar neðar. Og eft-
ir að keppninni var skipt upp í tvær
undankeppnir höfum við fimm sinn-
um ekki komist upp úr þeim í aðal-
keppnina.
Bankinn hefur ekki gefið mikla
vexti
Við ætluðum svo sannarlega að vinna
keppnina þegar við tókum fyrst þátt
og fulltrúar Íslands, ICY hópurinn,
steig sigurviss á svið í Bergen í Noregi.
Gleðibankinn var okkar, hvert manns-
barn á Íslandi kunni lagið og við vor-
um fullviss um að Evrópa myndi
leggja fullt af stigum í bankann og við
fara með sigur af hólmi, en svo var nú
aldeilis ekki. Hin þrettán ára gamla
Sandra Kim frá Belgíu kom, sá og sigr-
aði enda „fíla“ allir söngva um hversu
heitt við elskum lífið. Íslendingar
ákváðu því að leggja höfuðið í bleyti
og næsta ár förum við okkur „Hægt
og hljótt“, sem auðvitað skilaði okkur
bara aftur í sextánda sæti, þar
vorum við fyrstu þrjú árin, þar til „Það
sem enginn sér“ var akkúrat það og
við lentum í neðsta sæti með núll stig.
Nú voru góð ráð dýr og fyrir Íslands
hönd fór ein vinsælasta söngkona Ís-
lands þá og síðar, Sigga Beinteins, og
Stjórnin með „Eitt lag enn“ og núna
loksins fór eitthvað að gerast. Sigga
sjarmeraði Evrópu í rauða kjólnum
á sviðinu í Zagreb í Júgóslavíu, við
lentum í fjórða sæti og landinn tók
Eurovisiongleðina á ný. Ári seinna
varð hún aftur bara draumur þegar
fimmtánda sætið varð okkar og við
náðum ekki betri árangri fyrr en níu
árum seinna, þegar Selma var samt
„All out of luck“, þegar hin sænska
Charlotte Nilsson „stal“ sigrinum af
okkur með aðeins 17 stigum og Selma
var í öðru sæti. Árið 1999 var líka árið
sem við gáfumst upp á að syngja á
móðurmálinu, enda skilja það bara
um 340 þúsund einstaklingar og sum-
ir þeirra skilja það jafnvel ekki. Síð-
an þá hefur Ísland flutt framlag sitt
á ensku í keppninni, fyrir utan 2013,
þegar Eyþór Ingi átti líf, en ekki life.
Við vorum líka nálægt því að vinna
2009 þegar fiðla hins norska Alexand-
er Rybak var betri punktur yfir i-ið
en blái kjóllinn hennar Jóhönnu, en
bæði framlögin voru mjög svo fram-
bærileg og eftirminnileg.
Því má samt ekki gleyma að ís-
lensku framlögin hafa mörg hver lif-
að lengi eftir að keppni lýkur og mörg
þeirra höfum við tekið ástfóstri við.
Þar fer fremst í flokki Nína þeirra
Stebba og Eyfa sem fagnar í ár 26
ára afmæli sínu. Og þrátt fyrir brös-
ótt gengi þá eigum við alls ekki versta
árangur í keppninni. Sem dæmi má
nefna að Kýpur hefur tekið þátt 33
sinnum og hæst komist í fimmta sæti
og Portúgal 48 sinnum og hæst kom-
ist í sjötta sæti.
Þrítugasta skiptið og blað brotið
í Eurovision-sögunni
Í ár er komið að Svölu að stíga á svið
með lagið Paper, en hún sigraði með
yfirburðum í keppninni hér heima.
Keppnin fer fram í Kiev í Úkraínu og
þar var hún líka haldin 2005, þegar
Selma fór í annað sinn fyrir hönd Ís-
lands með lagið „If I Had Your Love“.
Því miður átti hún ekki ást Evrópu líkt
og sex árum áður og Ísland komst ekki
upp úr undankeppninni það ár. Von-
andi fer betur fyrir Svölu, þó ekki væri
nema fyrir það sem framlag okkar ger-
ir fyrir sögu Eurovision. Svala er önn-
ur kynslóð keppenda í Eurovision, en
eins og kunnugt er keppti faðir henn-
ar, Björgvin Halldórsson, fyrir okkar
hönd 1995 með „Núna“ og lenti í 15.
sæti. Auk þess sem hann tók nokkrum
sinnum þátt í undankeppnum hér
heima. Svala og Björgvin eru fyrstu
feðgin í sögu Eurovision sem keppa
fyrir sama land.
Feðgarnir Benny Andersson í
ABBA og sonur hans, Peter Grön-
vall, kepptu í Eurovision með tutt-
ugu og tveggja ára millibili líkt og
Svala og Björgvin. Benny Andersson
var í hljómsveitinni ABBA sem vann
keppnina 1974 með „Waterloo,“ en
Peter Grönvall lenti í þriðja sæti 1996
með hljómsveit sinni, One more time,
með „Den vilda“, sem Íslendingar
þekkja best sem Dansaðu vindur í
flutningi Eyvarar.
Björgvin, faðir Svölu, mun einnig
kynna stig íslensku dómnefndar-
innar í Eurovision í ár og það myndi
því klárlega snerta streng í brjósti ís-
lenskra Eurovision-aðdáenda ef Svala
kemst áfram í kvöld og Björgvin getur
skilað kveðju og kossi til dóttur sinnar
í gegnum sjónvarpsskjáinn á laugar-
dagskvöld. Við vonum því það besta
fyrir hönd Svölu og Íslands í kvöld, en
Svala er þrettánda á svið og talan 13 er
því lukkunúmer Íslands í dag.
Gleðilega Eurovision-hátíð! n
ragna@dv.is
Björgvin Hall-
dórsson Björg-
vin, faðir Svölu og
einn af ástsæl-
ustu söngvurum
Íslands, keppti í
Eurovision 1995 með
„Núna“ og lenti í 15.
sæti. Mynd ÞórHallur Jónsson
Fjölhæfur og flottur fulltrúi Íslands
Svala stofnaði hljómsveitina Steed Lord
ásamt eiginmanni sínum og bróður hans,
hún hefur verið dómari í The Voice Iceland,
gefið út eigin fatalínu, sem var seld í búðum
H&M úti um allan heim, auk þess að semja
lög og syngja.
Feðgin brjóta blað í sögu Eurovision
Kemst
Svala
áfram í
kvöld?
svala Björgvins-
dóttir Svala er
enginn byrjandi í
söngnum. Hún söng
fyrst níu ára dúett
með föður sínum,
jólalagið Fyrir jól, og
11 ára söng hún eitt
vinsælasta jólalag
Íslendinga, Ég hlakka
svo til.
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira