Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Síða 18
18 Vikublað 16.–18. maí 2017fréttir - erlent
Vonast til að leysa eitt dular-
fyllsta mál í sögu Noregs
Þ
ann 29. nóvember árið
1970 gekk faðir, ásamt
tveimur dætrum sínum,
fram á illa brunnið lík konu
í Ísdalnum svokallaða
skammt frá Bergen í Noregi. Þó
að tæp 50 ár séu liðin frá þessum
dularfulla líkfundi, sem greyptur
er í huga margra Norðmanna, er
mörgum spurningum enn ósvarað:
Enn er ekki vitað hver konan er og
ekki er enn vitað með vissu hvernig
dauða hennar bar að. Norska ríkis
útvarpið, NRK, og norska lögreglan
hafa ákveðið að opna rannsókn
málsins á nýjan leik í þeirri von að
leysa málið eins og BBC fjallaði um
á dögunum.
Verðmæti við líkið
Óhætt er að segja að lögreglan hafi
ekki haft úr miklum upplýsingum
að moða þegar rannsókn málsins
hófst. Til að gera lögreglu erfitt fyrir
hafði einhver, konan eða morðingi
hennar, klippt alla merkimiða af
fötum hennar og raunar hafði allt
sem mögulega gæti varpað ljósi
á hver konan væri verið afmáð, til
dæmis merkimiðar á plastflöskum
sem fundust á staðnum. Hafi kon
an á annað borð verið myrt virðist
morðinginn ekki hafa haft neinn
áhuga á þeim verðmætum sem
hún bar á sér; þannig fundust úr og
skartgripir við hlið líksins.
Í umfjöllun BBC er bent á
að Ísdalurinn sé þekktur meðal
sumra heimamanna undir nafninu
Dauðadalurinn. Fyrr á öldum fór
þangað fólk sem gefist hafði upp
á lífinu og svipti sig lífi. Á sjöunda
áratugnum urðu nokkur banaslys
á þessari vinsælu gönguleið þegar
fjallgöngumenn hröpuðu til bana
í þokunni sem stundum leggst
yfir dalinn. Konan sem fannst
virðist ekki hafa verið á göngu á
svæðinu þegar hún lést. „Þetta var
úr alfaraleið og ekki á dæmigerðri
gönguleið,“ segir lögreglumaðurinn
Carl Halvor Aas í viðtali við BBC.
Carl var einn af þeim fyrstu sem
komu á vettvang þegar tilkynnt var
um líkfundinn.
Eins og serimónía
Carl rifjar upp að hann hafi fundið
mikinn óþef leggja frá líkinu og
bætir við að það hafi vakið athygli
lögreglumanna að líkið var aðeins
brunnið að hluta. „Allur fremri hluti
líkamans var brunninn, þar á meðal
andlitið, en það vakti athygli okkar
að aftari hlutinn var ekki brunninn,“
segir hann og bætir við að andlitið
hafi verið svo illa brunnið að lög
reglumenn hafi ekki getað ímynd
að sér hvernig konan leit út áður en
eldur var borinn að henni.
Þegar lögreglu bar að var líkið
orðið kalt en lögregla reyndi samt
að rannsaka málið á grunni þeirra
upplýsinga sem lágu fyrir. Eitt það
fyrsta sem lögregla tók eftir var að
verðmæti voru við hlið líksins, þar
á meðal skartgripir eins og að fram
an greinir. Brotin regnhlíf lá einnig
við hlið þess og flöskur. Öllu þessu
virðist hafa verið komið hagan
lega fyrir af morðingjanum. „Það,
hvernig hlutunum var komið fyrir,
vakti athygli okkar – þetta leit út
eins serimónía hafði farið fram,“
segir Carl við BBC. Því miður fann
lögregla ekkert á vettvangi sem gat
bent á af hverjum líkið væri; engin
persónuskilríki, ekkert.
Dularfullar töskur
Eins og venja er í málum sem þess
um biðlaði lögregla til almenn
ings um aðstoð við að bera kennsl
á konuna. Í tilkynningu frá lögreglu
á sínum tíma kom fram að hún
væri um 164 sentimetrar á hæð,
líklega á aldrinum 25 til 40 ára, með
brún augu, brúnt hár og lítil eyru.
Í norskum fjölmiðlum var konan
nefnd Ísdalskonan þar sem enginn
vissi nánari deili á henni.
Nokkrum dögum eftir líkfundinn
fékk lögregla vísbendingu til að
vinna úr. Tvær ferðatöskur höfðu
fundist á lestarstöðinni í Bergen
og á annarri þeirra fundust fingra
för konunnar. Í töskunum fund
ust einnig föt, hárkollur, þýskir og
norskir peningaseðlar og smámynt
frá Belgíu, Bretlandi og Sviss. Þá
fundust snyrtivörur, hárbursti, te
skeiðar og smyrsl við húðexemi.
Tormod Bønes, réttarmeina
fræðingur í málinu, sagði að á
þessum tímapunkti hafi lögregla
verið bjartsýn á að leysa málið en
fljótlega rakst hún þó á vegg. Þó
að ýmis legt hafi fundist í töskun
um var þar ekkert að finna sem gat
bent á hver konan væri; merkimið
ar höfðu verið rifnir af fötunum
sem fundust og þá hafði merkimiði
frá lækninum á smyrsltúpunni ver
ið fjarlægður.
Í töskunni fannst einnig
dularfullt, dulkóðað bréf sem tók
lögreglu nokkurn tíma að leysa.
Síðar kom á daginn að bréfið
innihélt upplýsingar um ferðalag
konunnar áður en hún kom til
Noregs. Hún hafði komið frá París
til Noregs um það bil mánuði áður
en hún lést. Loks fannst plastpoki
frá skóverslun í Stavanger. Eigandi
verslunarinnar mundi eftir
huggulegri og vel klæddri konu
sem keypti sér skó í versluninni
nokkru áður sem var líklega sama
kona og fannst. Konan talaði
lýtalausa ensku, virtist róleg í
fasi og tók sér langan tíma í velja
skóna. Með þessum upplýsingum
tókst lögreglu að finna hótel sem
konan dvaldi á. Í ljós kom að hún
notaði nafnið Fenella Lorch sem
var ekki hennar rétta nafn. Á síðari
stigum rannsóknarinnar kom í ljós
að hún hafði dvalið á nokkrum
hótelum í Noregi og notað nokkur
mismunandi vegabréf sem líklega
voru öll fölsuð.
Hagaði sér undarlega
Alvhild Rangnes var 21 árs gengil
beina á Neptunhótelinu sem
konan dvaldi á. Í viðtali við BBC
rifjar Alvhild upp að hún hafi
þjónað konunni sem hafi verið
örugg með sig, myndarleg og með
mikla útgeislun. Lögregla komst
síðar að því að konan hafði hagað
sér undarlega á sumum af þeim
hótelum sem hún dvaldi á og oft
farið fram á að skipta um herbergi,
stundum oftar en tvisvar á örfáum
dögum. Miðað við þær upplýsingar
sem lágu fyrir fór marga að gruna
að konan væri njósnari. „Þetta
var á árum Kalda stríðsins og á
þeim tíma voru örugglega margir
njósnarar í Noregi,“ segir Gunnar
Staalesen, glæpasagnahöfundur í
Bergen, í viðtali við BBC.
n Illa brunnið lík konu fannst árið 1970 n Enn er margt á huldu n Hver var konan?
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Skelfileg sjón Þessa mynd hafa norskir fjölmiðlar birt. Konan var illa brunnin og hafði auk þess innbyrt mikið magn svefntafla. Opinber dánarorsök var talin vera sjálfsvíg en margir hafa
dregið í efa að konan hafi svipt sig lífi.
Teikning af konunni Svona ályktuðu menn að konan hefði litið út áður en hún lést. Hún
talaði góða ensku og var af evrópsku bergi brotin.
Ísdalurinn Ísdalurinn er skammt frá Bergen í Noregi. Hann er vinsæll meðal útivistarfólks.
Lögð til hvílu Konan var jarðsett og myndir teknar úr útförinni fyrir hugsanlega ættingja
konunnar.
„Ef einhver
nákominn henni
er til í DNA-gagnabönk-
um þá munum við finna
samsvörun.