Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Page 26
26 lífsstíll Vikublað 16.–18. maí 2017
Þ
etta er í annað sinn sem
skólinn heldur svona út
skriftarsýningu, sú fyrsta
var í fyrra,“ segir Ester, en á
sýningunni má bæði finna
útskriftarverkefni nemenda og af
rakstur af vinnu þeirra á námsárun
um.
Alls útskrifuðust tíu nemar í ár,
sex úr kjólasaumi og fjórir úr klæð
skurði. Undanfarin ár hafa að meðal
tali tíu nemar útskrifast árlega. Nám
ið tekur fjögur ár á hvorri braut og
margir bæta við sig einu ári og út
skrifast úr báðum fögum. „Sjálf út
skrifaðist ég úr klæðskeranum fyrir
tveimur árum og var síðan að útskrif
ast úr kjólasauminum núna,“ segir
Ester.
Hún segir góða atvinnumöguleika
við fagið hér heima, iðngreinar eru
sívaxandi og fólk að leita eftir fag
fólki. „Flestir af þeim sem útskrif
ast hafa síðustu ár vinna nú við fag
ið. Það er eftirspurn eftir fólki sem
kann að sauma og fagfólki. Hægt er
að fá vinnu í leikhúsum, óperunni,
stofna eigin atvinnurekstur, við sér
saum á bæði herra og kvenfatnaði,
svo eru brúðarkjólar mjög vinsælir,“
segir Ester. Sem dæmi nefnir hún
saumastofu sem er að sauma sjö
brúðarkjóla fyrir einn dag núna í
sumar og með beiðni um tæpa 30
til viðbótar, sem hún hefur þurft að
vísa frá.
„Við erum ekki að hanna fötin sem
slík. Það má líkja þessu við byggingu
húss, þar sem að koma arkitekt, verk
fræðingur og smiður, við erum verk
fræðingurinn og smiðurinn,“ seg
ir Ester. Nemarnir taka starfsnám
og tók Ester sitt í Svíþjóð hjá Röjk
Superwear. Í dag starfar hún hjá Ice
Wear. „Ég var að byrja í síðustu viku
og er að starfa við vöruþróun, í sam
starfi við hönnuði,“ segir Ester, ný
útskrifuð og bjartsýn á framtíðina í
fataiðnaðinum. n
ragna@dv.is
Fallegar flíkur fataiðnnema
Útskriftarnemar fataiðnbrautar Tækniskólans héldu
nýlega útskriftarsýningu sína. Margt var um mann-
inn og nóg af flíkunum á sýningunni og greinilegt að
ekki er skortur á efnilegu fólki í íslenskum fataiðnaði.
Tíu nemar útskrifast núna í ár og einn þeirra, Ester
Sigurðardóttir, segir góða möguleika fyrir nema að
fá vinnu við fagið.
Boðið í dans Ester Sigurðardóttir
með kjólföt og kjól sem hún var með á
sýningunni. Fallegar flíkur fyrir árshátíðir
og önnur slík tilefni.
Í stíl Dagný Ósk Árnadóttir á
heiðurinn af þessum sumarlega
rauða og svarta kjól.
Kjólar fyrir öll tækifæri Þóra Lilja Kristjánsdóttir hannaði þessa kjóla, sem eru klárir í veislur sumarsins.
Segðu já Inga Dóra saumaði
þennan fallega brúðarkjól og
kjólföt. Allt klárt fyrir stóra
daginn nema makinn.
ÞjóðlegtEva Rún Jóhann-
esdóttir saumaði þennan
fallega og litríka þjóðbúning.
Rómantík Steinunn
Helgadóttir á þennan
kjól, sem mikið er lagt
í og minnir á róman-
tískar sögur fyrri alda.
Esmeralda Guðríður
Hafsteinsdóttir hefur mikinn
áhuga á búningagerð, fór í
starfsnám í leikhús í London og
saumaði nokkra búninga sem
aukaverkefni í skólanum.
Og barnið heitir Það er líklegt að þessir
fallegu skírnarkjólar muni verða notaðir margoft
við skírn barna, en hefð er fyrir að börn sömu
fjölskyldu séu skírð í sama kjólnum.