Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Qupperneq 26
26 lífsstíll Vikublað 16.–18. maí 2017 Þ etta er í annað sinn sem skólinn heldur svona út­ skriftarsýningu, sú fyrsta var í fyrra,“ segir Ester, en á sýningunni má bæði finna útskriftarverkefni nemenda og af­ rakstur af vinnu þeirra á námsárun­ um. Alls útskrifuðust tíu nemar í ár, sex úr kjólasaumi og fjórir úr klæð­ skurði. Undanfarin ár hafa að meðal­ tali tíu nemar útskrifast árlega. Nám­ ið tekur fjögur ár á hvorri braut og margir bæta við sig einu ári og út­ skrifast úr báðum fögum. „Sjálf út­ skrifaðist ég úr klæðskeranum fyrir tveimur árum og var síðan að útskrif­ ast úr kjólasauminum núna,“ segir Ester. Hún segir góða atvinnumöguleika við fagið hér heima, iðngreinar eru sívaxandi og fólk að leita eftir fag­ fólki. „Flestir af þeim sem útskrif­ ast hafa síðustu ár vinna nú við fag­ ið. Það er eftirspurn eftir fólki sem kann að sauma og fagfólki. Hægt er að fá vinnu í leikhúsum, óperunni, stofna eigin atvinnurekstur, við sér­ saum á bæði herra­ og kvenfatnaði, svo eru brúðarkjólar mjög vinsælir,“ segir Ester. Sem dæmi nefnir hún saumastofu sem er að sauma sjö brúðarkjóla fyrir einn dag núna í sumar og með beiðni um tæpa 30 til viðbótar, sem hún hefur þurft að vísa frá. „Við erum ekki að hanna fötin sem slík. Það má líkja þessu við byggingu húss, þar sem að koma arkitekt, verk­ fræðingur og smiður, við erum verk­ fræðingurinn og smiðurinn,“ seg­ ir Ester. Nemarnir taka starfsnám og tók Ester sitt í Svíþjóð hjá Röjk Superwear. Í dag starfar hún hjá Ice Wear. „Ég var að byrja í síðustu viku og er að starfa við vöruþróun, í sam­ starfi við hönnuði,“ segir Ester, ný­ útskrifuð og bjartsýn á framtíðina í fataiðnaðinum. n ragna@dv.is Fallegar flíkur fataiðnnema Útskriftarnemar fataiðnbrautar Tækniskólans héldu nýlega útskriftarsýningu sína. Margt var um mann- inn og nóg af flíkunum á sýningunni og greinilegt að ekki er skortur á efnilegu fólki í íslenskum fataiðnaði. Tíu nemar útskrifast núna í ár og einn þeirra, Ester Sigurðardóttir, segir góða möguleika fyrir nema að fá vinnu við fagið. Boðið í dans Ester Sigurðardóttir með kjólföt og kjól sem hún var með á sýningunni. Fallegar flíkur fyrir árshátíðir og önnur slík tilefni. Í stíl Dagný Ósk Árnadóttir á heiðurinn af þessum sumarlega rauða og svarta kjól. Kjólar fyrir öll tækifæri Þóra Lilja Kristjánsdóttir hannaði þessa kjóla, sem eru klárir í veislur sumarsins. Segðu já Inga Dóra saumaði þennan fallega brúðarkjól og kjólföt. Allt klárt fyrir stóra daginn nema makinn. ÞjóðlegtEva Rún Jóhann- esdóttir saumaði þennan fallega og litríka þjóðbúning. Rómantík Steinunn Helgadóttir á þennan kjól, sem mikið er lagt í og minnir á róman- tískar sögur fyrri alda. Esmeralda Guðríður Hafsteinsdóttir hefur mikinn áhuga á búningagerð, fór í starfsnám í leikhús í London og saumaði nokkra búninga sem aukaverkefni í skólanum. Og barnið heitir Það er líklegt að þessir fallegu skírnarkjólar muni verða notaðir margoft við skírn barna, en hefð er fyrir að börn sömu fjölskyldu séu skírð í sama kjólnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.