Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2017, Qupperneq 36
36 menning - SJÓNVARP Vikublað 16.–18. maí 2017 Sjónvarpsdagskrá RÚV Stöð 2 Sjónvarp Símans 17.00 Í garðinum með Gurrý (1:5) 17.25 Framapot (5:8) 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Barnaefni 18.50 Krakkafréttir 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.30 Veður 19.35 Kastljós 20.05 Framapot (6:6) Ný íslensk þáttaröð um þær Steineyju og Sigurlaugu Söru sem vita ekkert hvert þær stefna í lífinu. Í þáttunum kynnast þær hvaða nám og störf standa ungu fólki til boða og fá nasasjón af ýmiss konar starfs- frama. Dagskrárgerð: Arnór Pálmi Arnarsson. Framleiðsla: Sagafilm. 20.35 Heimavígstöðvarnar (2:6) (Home Fires) Breskur myndaflokkur um vaskar konur í litl- um smábæ í Bretlandi á tímum seinna stríðs. Leikstjóri: Simon Block. Leikarar: Clare Cal- braith, Brian Fletcher og Samantha Bond. 21.25 Fjölbraut (2:6) (Big School II) Bresk gam- anþáttaröð með David Walliams og Catherine Tate í aðalhlutverk- um. Seinheppinn efnafræðikennari verður ástfanginn af samkennara sínum. Vandræðagangur hans og samkeppni um hylli dömunnar gera aðfarirnar engu líkar. Kaldhæðinn, breskur húmor eins og hann gerist bestur. 22.00 Tíufréttir 22.15 Veðurfréttir 22.20 Lögregluvaktin (4:7) (Chicago PD III) Lög- regluvaktin snýr aftur þar sem frá var horfið í þriðju þáttaröðinni. Þættirnir fjalla um líf og störf lögreglu- manna í Chicago. Meðal leikenda eru Sophia Bush, Jason Beghe og Jon Seda. 23.00 Svikamylla (4:10) (Be- drag) Vönduð, dönsk sakamálaþáttaröð um græðgi, siðleysi og klækjabrögð í frumskógi fjármálaheimsins. e. 00.00 Kastljós 00.25 Dagskrárlok 07:00 Simpson-fjölskyldan 07:25 Kalli kanína 07:50 Tommi og Jenni 08:10 The Middle (19:24) 08:35 Ellen 09:15 Bold and the Beautiful 09:35 The Doctors (44:50) 10:15 Landnemarnir (5:9) 11:00 The Goldbergs (23:24) 11:25 Sælkeraferðin (4:8) 11:50 Nettir Kettir (1:10) 12:35 Nágrannar 13:00 Maggie's Plan 14:35 Nancy Drew 16:10 Tommi og Jenni 16:30 Simpson-fjölskyldan 16:55 Bold and the Beautiful 17:20 Nágrannar 17:45 Ellen 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:55 Íþróttir 19:05 Fréttir Stöðvar 2 19:20 The Big Bang Theory 19:40 Masterchef Profes- sionals - Australia (18:25) Stórskemmti- legur matreiðslu- þáttur sem byggður er á upprunalegu þáttunum en hér eru það matreiðslumeistar sem keppast við að vinna bragðlauka dómnefndarinnar yfir á sitt band. 20:25 Í eldhúsi Evu (3:8) Frábærir nýir þættir í umsjón Evu Laufeyjar þar sem hún fer á stúfana kynnir sér hina ýmsu veitingastaði, kaffihús, bakarí og lærir nýjar aðferðir sem hún vinnur svo með í eldhúsinu heima hjá sér. Í hverjum þætti er sérstakt þema t.d. baksturs, indverskt, asískt og ítalskt svo dæmi séu nefnd og einnig er einn þáttur tileinkaður matarsóun. 21:00 Prison Break (7:9) Æsilegi flóttinn heldur áfram en við tökum upp þráðinn þar sem frá var horfið í síðustu þáttaröð. Nú sjö árum síðar komast Lincoln og Sara að því að Michael er enn á lífi og er í fangelsi í Yemen. Nýr, ævintýralegur og æsispennandi flótti er í kortunum. 21:45 The Blacklist (19:22) 22:30 Animal Kingdom 23:20 The Son 00:10 Broadchurch (4:8) 01:00 Shameless (1:12) 01:55 Shameless (2:12) 02:50 X Company 08:00 Everybody Loves Raymond (15:23) 08:25 Dr. Phil 09:05 Chasing Life (10:21) 09:50 Jane the Virgin (3:22) 10:35 The Voice USA 12:05 Dr. Phil 12:45 Survivor (12:15) 13:30 The Bachelorette 14:15 The Bachelor (1:13) 16:20 The Tonight Show starring Jimmy Fallon 17:00 The Late Late Show with James Corden 17:40 Dr. Phil 18:20 King of Queens (1:22) 18:45 Arrested Develop- ment (15:15) 19:10 How I Met Your Mother (9:24) 19:35 Man With a Plan (17:22) Gamanþátta- röð með Matt LeBlanc í aðalhlutverki. Hann leikur verktaka sem fær nýtt hlutverk á heimilinu eftir að eiginkonan fer aftur út á vinnumarkaðinn. 20:00 Ný sýn (2:5) 20:35 The Mick (17:17) Gam- anþáttur um óheflaða unga konu sem slysast til að taka við forræði þriggja barna systur sinnar eftir að hún flýr land til að komast hjá fangelsi. 21:00 The Catch (7:10) Spennuþáttaröð frá framleiðendum Grey’s Anatomy, Scandal og How to Get Away With Murder. Alice Martin er sérfræðingur í að koma upp um svikahrappa en núna verður hún sjálf fórnarlamb bragðarefs sem náði að fanga hjarta hennar. 21:45 Scandal (12:16) Spennandi þáttaröð um valdabaráttuna í Washington. Olivia Pope og samstarfs- menn hennar sérhæfa sig í að bjarga þeim sem lenda í hneykslis- málum í Washington. 22:30 The Tonight Show starring Jimmy Fallon 23:10 The Late Late Show with James Corden 23:50 Californication (3:12) 00:20 24 (9:24) 01:05 Law & Order: Special Victims Unit (7:22) 01:50 Billions (11:12) 02:35 The Catch (7:10) 03:20 Scandal (12:16) Fimmtudagur 18. maí L engi var afar kalt milli feðginanna Angelinu Jolie og Jon Voight en um tíma töluð- ust þau ekki við. Kuldinn var aldrei meiri en árið 2002 en þá sagði Voight að dóttir sín ætti við alvarleg andleg veikindi að glíma. Sama ár lét Jolie fjarlægja Voight- eftirnafn sitt úr öllum opinberum pappírum. Smám saman skánaði sambandið og nú bendir allt til þess að það sé orðið ljómandi gott. Ný- lega sáust feðginin borða saman á sushi-stað með fjórum af sex börn- um Jolie þar sem skipst var á gjöf- um. Nokkrum dögum siðar sagði Voight við blaðamann að Jolie væri dásamleg móðir. Jolie er dóttir Voight og Marciu Bertrand sem var önnur eiginkona hans. Leikarinn yfirgaf Bertrand þegar Jolie var tæplega eins árs. Bertrand lést 56 ára gömul eftir margra ára baráttu við krabba- mein. Jolie hefur ávallt haft minn- ingu móður sinnar í heiðri, en minna hefur farið fyrir hrifningu hennar á föðurnum. Jon Voight leikur í fimmtu þátta- röðinni af Ray Donovan en sýn- ingar hefjast í ágúst. Ný mynd Angel inu Jolie, First They Killed My Father, verður sýnd í haust á Netfl- ix. Myndin var tekin upp í Kambó- díu og er byggð á endurminningum Loung Ung sem komu út árið 2006, en þar segir hún frá hryllingnum sem hún upplifði á tímum Rauðu kmeranna. Jolie leikstýrir myndinni og fimmtán ára sonur hennar, Maddox, var henni til aðstoðar. n kolbrun@dv.is Fullar sættir hjá Jolie og Voight Þ au okkar sem gáfust upp á Eurovision fyrir allmörgum árum hljóta nú að endur- skoða afstöðu sína eftir sigur Portúgalans Salvador Sobral í keppninni. Þetta var frammistaða sem skar sig úr vegna einfaldleika og einlægni. Meðan flestir aðrir kepp- endur lögðu áherslu á glamúr og glimmer og „líflega“ sviðsframkomu stóð Salvador einn á sviðinu í látlaus- um klæðnaði og söng einfalt en gríp- andi lag af gríðarlegri innlifun. Hann var hann sjálfur, var ekki að þykjast vera neitt annað, og heillaði heims- byggðina. Í keppni eins og þessari reyna keppendur af öllum mætti að vera öðruvísi, en það er eins og þeir fái allir sömu hugmyndina og fyrir vik- ið eru þeir ansi svipaðir. Lögin eru svo yfirleitt hvert öðru lík og renna saman svo það er nánast ómögulegt að muna eftir nokkru þeirra þegar keppninni er lokið. Ítalir mættu með górillu á svið (sagt var að það ætti að minna okkur á að við værum öll apar) sem átti víst að vera frumlegt en varð einungis kjánalegt. Jóðlað var í einu lagi, sem átti sennilega líka að vera frumlegt en hljómaði beinlínis vandræðalega. Yfirborðsmennskan í Eurovison, sem heillar að vísu marga, er stundum æpandi. Það var því nánast eins og stílbrot þegar Salvador Sobral steig á svið og söng einfalt en melódískt lag, eftir systur sína, á portúgölsku. Þetta var eina ekta atriðið í Eurovision. Það var síðan endurtekið þegar Salvador flutti sigurlagið með systurinni á afar áhrifamikinn hátt. Salvador sagði sigur sinn vera sigur tónlistarinnar og það má til sanns vegar færa. Tónlist á að vekja tilfinningar og það tókst í þessu fal- lega sigurlagi. Nú má búast við því að næsta ár leggi fjölmargir keppend- ur upp úr einfaldleika og hugi betur að textagerð en áður. Ekki er víst að þeim takist jafn vel upp og Salvador, en það má alltaf reyna. Víst er að við sem höfum ekki haft gaman af Eurovision hin síðari ár erum aðeins kátari nú en áður. n kolbrun@dv.is Sigur einlægninnar Angelina Jolie Hefur náð fullum sáttum við föður sinn. Langbesta lagið vann í Eurovision Gleði í Portúgal Aðdáendur söngvarans sjást hér fagna honum við komuna til Portúgals. Salvador Sobral „Þetta var eina ekta atriðið í Eurovision

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.