Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Blaðsíða 19
KYNNINGARBLAÐ
30. júní 2017 Ábyrgðarmaður: Sigurvin Ólafsson / sigurvin@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Bílar og
verkstæði
Meira afl og minni eyðsla með
tölvustýrðri vélastillingu
KraftKort:
Það er merkileg stað-reynd að hægt er að auka kraftinn í bílnum
og spara eldsneyti með því
að uppfæra gögn í tölvu-
búnaði. Vélar í nútímabílum
nota tölvukerfi við stjórnun
vélarinnar. fjölmargir skynjar-
ar nema aðstæður og mata
vélartölvu bílsins með upplýs-
ingum sem síðan eru notaðar
til að stjórna hegðun vélarinn-
ar. Þessir skynjarar mæla t.d.
lofthita úti, lofthita í soggrein
vélarinnar, vatnshita vélarinn-
ar, stöðu inngjafar, snúnings-
hraða vélar og fjölda annarra
þátta sem nauðsynlegir eru til
að beita vélinni sem best við
viðkomandi aðstæður.
fyrirtækið Kraftkort, sem
staðsett er að Súlunesi 10
í Garðabæ, hefur veitt fjöl-
mörgum bílum aukið afl og
dregið úr eldsneytisnotkun
þeirra með þessari nútíma-
legu vélastillingu. Guðmundur
rögnvaldsson, sem rekur
fyrirtækið ásamt ragnari Má
Sigrúnarsyni, útskýrir að-
ferðina svo í stuttu máli:
„Þetta snýst um það að við
lesum bíltölvuna og erum í
samstarfi við breskt fyrirtæki
sem heitir Viezue technologies
og er einn stærsti aðilinn á
þessu sviði. Við sendum þeim
skrána sem er á vélartölvunni
í bílnum. Þeir senda okkur nýja
skrá með breyttum stillingum
sem við keyrum inn á tölvuna.
forritunin sjálf á sér stað hjá
þeim en ekki okkur.“
Öll forritin eru prófuð á
dyno-bekkjum hjá Viezu til
að sannreyna tölurnar sem
gefnar eru upp fyrir hvern
bíl. Eins og áður segir stuðl-
ar endurforritunin bæði að
auknu afli og meiri sparneytni:
„Ef við tökum dísilbíla, þá get-
um við fengið bæði svokallað
Performance Map sem lýtur
meira að aflaukningu ásamt
því að minnka eldsneytisnotk-
un, og Eco Map, sem veldur
minni aflaukningu en meiri
eldsneytissparnaði og dregur
úr mengun frá bílnum,“ segir
Guðmundur.
Einnig er hægt að endur-
forrita vélartölvur í bensínbíl-
um en fyrir þá er eingöngu til
Performance Map. Með auknu
afli erfiðar vélin hins vegar
minna og því minnkar eyðsla
með sama aksturslagi.
Guðmundur tók við starf-
semi Kraftkorts í vor en að
hans sögn hefur verið boðið
upp á þessa þjónustu í
nokkur ár. Sem nærri
má geta hefur
þjónustan þróast
í gegnum árin:
„Bílar eru
auðvitað ekki
eins og þeir
voru fyrir
nokkrum árum,
það er alltaf að
koma eitthvað nýtt og
hægt að gera fleira.“
Hér með greininni fylgja
nokkur dæmi um bíla sem
hafa öðlast endurbætt líf, ef
svo má segja, eftir tölvustýrða
vélastillingu hjá Kraftkorti.
Sem fyrr segir er fyrir-
tækið staðsett að Súlunesi
10 í Garðabæ. Heimasíða
er kraftkort.net og face-
book-síða www.facebook.
com/kraftkortgr. Síma-
númer er 857-0210. Hægt
er að panta þjónustu eða
fá frekari upplýsingar með
því að hringja eða senda
skilaboð á facebook-síðunni.
Jafnframt er áhugavert
að skoða heimasíðu Viezu
technologies, viezu.com.
Þessi 2015 BMW f31
320d fékk aflaukningu og
fór úr 181 hestafli í 226 hestöfl
og togið fór úr 380 nm í 450 nm.
Einnig má reikna með að eyðsla fari
niður um allt að 10%.
Þessi 2017 Land rover Discovery Sport fékk aflaukningu og fór
úr 148 hestöflum í 178 hestöfl, togið fór úr 380 nm í 440 nm.
Þessi 2008 Mercedes Benz
axor 1824 fékk aflaukningu
og fór úr 231 hestafli í 261
hestafl, togið fór úr 810 nm í
870 nm, einnig hefur eyðslan
farið niður um 15%.
Þessi 2012 Man tGS 35.440 fékk
aflaukningu og fór úr 440 hestöflum
í 510 hestöfl, togið fór úr 2100 nm í
2450 nm, einnig má reikna með að
eyðsla fari niður um allt að 13%.