Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Blaðsíða 6
6 Helgarblað 30. júní 2017fréttir
bústaða að samskiptum hans við
fyrirtækið væri einfaldlega lokið.
Ástæðan var sú að húsnæðið væri
óíbúðarhæft. „Ég gerði að sjálf-
sögðu athugasemdir við það enda
hafði leigusamningnum ekki ver-
ið rift formlega,“ segir Guðlaugur.
Samdægurs hafi áðurnefndur for-
stöðumaður hjá Félagsbústöðum,
Birgir Ottósson, komið askvaðandi
og tjáð honum fyrirvaralaust að
leigusamningnum hefði verið rift.
Þá hafi hann sagt Guðlaugi að
hann ætti ekkert með að vinna í
húsinu. Að mati Guðlaugs er um
klárt húsbrot og skjalafals að ræða.
„Ég var að reyna að dytta að hús-
inu til þess að fá syni mína aftur
til mín. Birgir æddi þá inn á heim-
ili mitt og vildi að ég skrifaði und-
ir bréf þar sem fram kom að leig-
usamningnum hefði verið rift.
Undir skjalið höfðu tveir vottar
þegar skrifað án þess að þeir væru
sjáanlegir. Ég spurði hann hvort
hann áttaði sig á því hvað hann
væri að gera og hann kvaðst með-
vitaður um það,“ segir Guðlaugur.
Hann var með gest í heimsókn og
því átti hið meinta húsbrot sér stað
í vitna viðurvist.
Í bréfinu kom fram að ástæða
uppsagnarinnar væri sú að hús-
ið væri óíbúðarhæft vegna óþrifa,
slæmrar umgengni og viðhalds-
skorts. „Ég skal viðurkenna að
umgengni mín á þessum tíma var
ekki til fyrirmyndar. Ég stóð í skiln-
aði og átti erfitt með að þrífa eftir
átta manns á heimilinu. Það tók
hins vegar ekki langan tíma að
þrífa húsið og alvarlegra var að Fé-
lagsbústaðir brugðust algjörlega í
tengslum við viðhald hússins. Síð-
an er það notað sem afsökun til að
sparka mér út,“ segir Guðlaugur.
Að hans sögn neitaði Birgir að fara
fyrr en Guðlaugur væri búinn að
undirrita bréfið og lét Guðlaugur
undan að lokum.
Í nóvember 2015 var Guðlaugi
síðan formlega sagt upp leigunni
en þá hafði ástæðan breyst. Var
vísað í fyrirhugaða breytingu á
deiliskipulagi borgarinnar og
væntanlega uppbyggingu á svæð-
inu. DV hefur áður fjallað um mál-
ið en ráðgert er að byggja öryggis-
heimili fyrir ósakhæfa einstaklinga
sem munu krefjast umfangsmik-
illar gæslu. Ekkert samráð hefur
verið haft við íbúa í nágrenninu
hingað til. „Ef þessar framkvæmd-
ir eru raunverulega ástæðan fyrir
því að þeir vilja losna við mig þá
er ljóst að það mun líða talsverður
tími þar til hægt er að hefja þær.
Því hefði verið hægt að finna lausn
á málinu í rólegheitunum en þess
í stað fóru Félagsbústaðir strax af
fullri hörku gegn mér. Ég myndi
skilja það hjá innheimtufyrirtæki
en ekki hjá opinberri velferðar-
stofnun,“ segir Guðlaugur. Meðal
annars hafi hann óskað eftir fram-
lengingu á leigunni til þess að
sonur hans gæti klárað 10. bekk
en sú beiðni verið hunsuð.
„Ég upplifði mikið einelti af
hálfu Birgis Ottóssonar jafnt á
fundum sem og í daglegu lífi,
þannig að ég bað um að fá að hitta
næstráðanda hans til að skrifa
undir. Þá skall allt í baklás og ég
átti að snúa mér til lögfræðinga
Félagsbústaða. Í tvígang reyndi
ég að koma á fundi til undirskrift-
ar en var fullkomlega hunsaður.
Málið er síðan sett í útburðarfar-
veg að nauðsynjalausu. Að mínu
mati er það lýsandi dæmi um
hreina mannvonsku því það er
vitað mál að öryrki hefur ekki efni
á að berjast fyrir rétti,“ segir Guð-
laugur.
Var orðinn hræddur
Síðan þá hefur hann barist gegn
fyrirhuguðum útburði fyrir dóm-
stólum. Hann segir að forsvars-
menn Félagsbústaða hafi stöðugt
hótað honum því að hann stæði
uppi réttindalaus ef að hann léti
ekki undan og sækti um svokall-
aðan milliflutning, eins konar
beiðni um annað húsnæði. „Það
var mikil pressa á mér að sækja
um milliflutning sem mér þótti
óeðlilegt. Ég hef ekki óskað eftir
því að flytja, það frumkvæði kem-
ur frá Félagsbústöðum. Ég skal
hins vegar glaður flytja ef mér
býðst húsnæði sem hentar mér
en það hefur fyrirtækið ekki gert,“
segir Guðlaugur. Hann furðar sig á
offorsinu sem einkennir aðgerðir
Félagsbústaða.
Skömmu áður en útburðar-
málið var tekið fyrir dóm lét hann
undan og skrifaði undir beiðni
um milliflutning. Hann segir að
hótanir stofnunarinnar um að
annars endaði hann réttindalaus
á götunni með fjölskyldu sína hafi
valdið því. „Sú mynd sem dreg-
in var upp; að drengirnir mínir
væru á götunni var óbærileg. Ég
var einfaldlega orðinn hræddur,“
segir Guðlaugur. Hann var þó
vongóður um að vinna dómsmál-
ið en svo fór ekki. „Við vorum með
unnið mál í höndunum en þá var
ákveðið að taka málið upp aftur og
Félagsbústaðir fengu að bæta við
gögnum sem voru dagsett löngu
fyrir þá riftun sem var fyrir dóm-
stólum. Ég fékk ekki að tjá mig
um þau gögn, sem var forkastan-
legt,“ segir Guðlaugur. Niðurstað-
an varð sú að Félagsbústaðir hafi
verið í rétti, sem Guðlaugur telur
fráleita niðurstöðu. „Við munum
áfrýja málinu og ég er bjartsýnn á
að þar verði réttlætinu fullnægt.“
Það verður einhver að berjast
Í dag er staðan sú að Guðlaugur
getur búist við því að vera borinn
út á hverri stundu. „Ég veit ekki
hvenær þeir henda mér út en
sennilega gerist það á næstu dög-
um. Út af beiðninni um milli-
flutning, sem ég skrifaði undir, þá
hafa þeir boðið mér nýtt húsnæði.
Sú íbúð er á þriðju hæð í blokk í
lyftulausi húsi. Það liggur í augum
uppi að það gengur ekki upp fyrir
hreyfihamlaðan mann. Þá fengi
ég ekki að hafa hundana mína þar
auk þess sem ekki er gert ráð fyrir
að 19 ára sonur minn, sem er í
fullu námi, geti búið með mér. Þar
sem hann er kominn á aldur þá á
hann víst bara að búa í tjaldi. Þetta
ofbeldi á ekkert skylt við velferð,“
segir Guðlaugur.
Hann svaraði áðurnefndu til-
boði á þá leið að hann óski eftir
því að það sé dregið tilbaka.
„Með því er ég að reyna að höfða
til skynsemi og mannúðar. Ég er
hræddur um að þetta verði túlk-
að sem svo að ég hafi hafnað boð-
inu. Ef ég hafna þremur boðum
þá hef ég fyrirgert öllum rétti mín-
um. Ég trúi því samt varla að þeir
hjá Félagsbústöðum geti verið svo
ómannúðlegir,“ segir Guðlaugur.
Eftir þessa erfiðu baráttu
undanfarinna ára er hann kominn
í vígahug. „Ég veit að fleiri einstak-
lingar hafa farið illa út úr sam-
skiptum sínum við Félagsbústaði.
Einstaklingar sem eru litlir í sér
og hafa ekki rödd. Ég vil endilega
komast í samband við fleiri slíka
einstaklinga. Það er óhugnanlegt
að hugsa til þess að á döfinni sé
að Félagsbústaðir fái aukin völd
til þess að taka stjórnsýsluákvarð-
anir. Miðað við framgang forsvars-
manna í mínu máli þá höndla þeir
ekki slík völd.“n
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira
Stjörnugróf 11 Hér hefur Guðlaugur
haldið heimili í rúman áratug. Hann gæti
endað á götunni í sumar. Mynd Sigtryggur Ari