Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2017, Blaðsíða 70
30 menning Helgarblað 30. júní 2017
Metsölulisti
Eymundsson
22.–28. júní 2017
Allar bækur
1 NorninCamilla Läckberg
2 Með lífið að veðiYeonmi Park
3 Talin af Sara Blædel
4 Ítalskir skór Henning Mankell
5 Allt í himnalagi hjá Eleanor
Gail Honeyman
6 BrestirFredrik Backman
7 Stúlkan á undanJ.P. Delaney
8 Litla bakaríið við Strandgötu
Jenny Colgan
9 EftirlýsturLee Child
10 Gestir utan úr geimnum
Ævar Þór Benediktsson
Handbækur / Fræði-
bækur / Ævisögur
1 Með lífið að veðiYeonmi Park
2 TeppaprjónÞuríður Magnúsdóttir/
Guðrún S.Magnúsdóttir
3 Stofuhiti Bergur Ebbi Benediktsson
4 Útilífsbók fjölskyldunnar
Vilborg Arna Gissurardóttir
/Pálína Ósk Hraunda
5 171 Ísland Áfanga-staðir í alfaraleið
Páll Ásgeir Ásgeirsson
6 9 daga lifrar-hreinsun
Patrick Holford/Fiona Mcdona-
ld Joyce
7 VegahandbókinSteindór Steindórsson
Ýmsir höfundar
8 HÍF OPP! Gaman-sögur af íslenskum
sjómönnum
Guðjón Ingi Eiríksson
9 Íslenska plöntu-handbókin
Hörður Kristinsson
10 Íslenskur fuglavísirJóhann Óli Hilmarsson
T
ónlist hornfirska dúettsins
Kef Lavík er full af óvænt-
um andstæðum, ber-
skjöldun og súru líkinga-
máli sem dansar á mörkum þess
barnalega, en skapar á sama tíma
margræðni, húmor og ljóðrænu
sem dregur mann sífellt aftur að
henni. „Er verið að grínast eða
er þetta alvara?“ spyr maður sig í
upphafi – en kannski er ekki neitt
eitt skýrt svar við þeirri spurningu.
Taktarnir eru naumhyggjulegir og
viðkvæmir, skrollandi söngröddin
er of-unnin með „auto-tune“ sem
gerir hana vélræna en textarnir
sem hún syngur gefa hispurslausa
sýn inn í hugarheim tilfinninga-
lega ringlaðs ungs manns.
Meðlimir Kef Lavíkur hafa
haldið nöfnum sínum leyndum
og þegar ég sest niður með laga-
og textasmið sveitarinnar til að
ræða um nýjustu stuttskífu þeirra,
Ágæt ein – lög um að ríða og/eða
nota fíkniefni, kemst ég fljótlega
að því að þeir eru fremur óvenju-
legir fyrir íslensku hip-hop tón-
listarsenuna – og kannski er það
hluti af hinu óræða aðdráttarafli.
Fyrir framan mig situr rétt rúm-
lega tvítugur landsbyggðarmaður
sem semur tónlist á veiðitúrum úti
á sjó, skilgreinir sig „hægra megin
við miðju“ í pólitík og hefur engan
áhuga á að „meika“ það í tón-
listinni – enda ætlar hann að verða
fjármálaverkfræðingur.
Samið á sjónum
Strákarnir tveir sem skipa Kef Lavík
hafa verið að skapa tónlist saman í
einhverri mynd frá því snemma á
unglingsaldri en gerðu fyrsta lag-
ið undir þessu nafni árið 2012.
Lagið „Í sjálfum mér“ var upp-
haflega hugsað sem brandari en
á mörkum gríns og alvöru fundu
þeir áhugaverðan streng sem
þeir ákváðu að leika sér með og
hafa svo þróað áfram undanfarin
fimm ár. „Við erum með hálf-póst-
módernískt viðhorf til listarinn-
ar – þetta er einhver meta-hæðni,“
útskýrir laga- og textasmiðurinn
glottandi.
Fyrsta EP-platan, Kuldinn er
fínn, kom út árið 2015 og í fyrra
komu svo út Lifum alltaf og Vesæl
í kuldanum. Þeir hafa áður sagt að
þessar þrjár plötur myndi sam-
hangandi sögu um stormasamt
ástarsamband og séu í raun eitt
heildarverk – og kannski hafa
einhverjir glöggir lesendur tekið
eftir því að upphafsstafirnir í
plötuheitunum mynda nafn sveit-
arinnar KEF LA VÍK.
En hvað með nýju plötuna,
er hún hugsuð sem áframhald á
þeirri sögu og „konsepti“?
„Þessi nýja plata fer út fyrir
konseptið eins og við gáfum okk-
ur það í upphafi, en ég myndi
segja að þetta sé samt sem áður
ákveðinn viðauki við trílógíuna.
Þarna eru ýmsir hlutir sem okkur
fannst við þurfa að bæta við, eitt-
hvað af lögunum eru svo gamlir
afgangar, og þarna eru ýmsar vís-
anir í hin verkin – þannig að þetta
tengist algjörlega.“
Þó að þetta sé ennþá að mestum
hluta rafræn tónlist þá virkar nýja
platan lífrænni, með lifandi hljóð-
færum, djass- og strengjapörtum.
Er einhver sérstök ástæða fyrir því?
„Já, það er talsvert meira af
hljóðfærum á plötunni og meira
af lífrænum trommum – þó að
þær séu rafrænar þá spila ég þær
inn í staðinn fyrir að forrita þær
eins og ég hef áður gert. Þegar ég
var að gera fyrstu þrjár plöturnar
var ég yfirleitt að gera taktana úti á
sjó þegar ég var á humar- og neta-
bát. Humarvertíðin er þannig að
það finnst alltaf einhver tími inni
á milli til að skapa tónlist. Á sjón-
um var ég hins vegar bara með
lítil Apple-heyrnartól og MacBook
Pro og sat og teiknaði inn nótur í
tölvunni. Þessi nýja plata er hins
vegar samin eftir að ég byrjaði aft-
ur í skóla og þá var ég með gítar,
bassa, hljómborð og svo framveg-
is fyrir framan mig á meðan ég var
að semja.“
Sálarlífið kortlagt í „auto-tune“
Eitt það áhugaverðasta í tónlist
ykkar finnst mér vera allar and-
stæðurnar og núningurinn á milli
mismunandi þátta. Fyrir utan
nokkur partílög eru taktarnir yfir-
leitt frekar naumhyggjulegir og pí-
anóspilið oftast viðkvæmt og jafn-
vel vögguvísulegt. Það vinnur á
móti þeirri óhefluðu tilfinninga-
legu útrás sem birtist í textunum,
sem er svo aftur unnin á móti með
þessari vélrænu „auto-tjúnuðu“
rödd. Er þetta eitthvað sem þið haf-
ið lagt út með?
„Já, okkur finnst mjög skemmti-
legur „kontrast“ í því að gera tón-
list sem leitar inn á við, er eins
konar kortlagning á sálarlífi höf-
undar, og setja það svo fram á eins
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
„Þegar ég var að
gera fyrstu þrjár
plöturnar var ég yfirleitt
að gera taktana úti á sjó
þegar ég var á humar- og
netabát.
Of lítið sungið um
illgirni í popptónlist
Hornfirsku huldumennirnir í Kef Lavík gefa út sína fjórðu stuttskífu