Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Blaðsíða 6
6 Helgarblað 6. október 2017fréttir
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
KrúnuleiKar á Hvanneyri
n Starfsfólk undrandi vegna skipunar rektors n Pólitískt inngrip„Þetta var sam
eining sem
mislukkaðist.
„Þetta er ekki eðli
legur vinnustaður.
Þarna er margra ára upp
söfnuð gremja.
Þ
ann 21. september var
tilkynnt að Sæmundur
Sveinsson, doktor í
grasafræði, hefði verið
skipaður rektor Landbúnaðar
háskólans á Hvanneyri af
menntamálaráðherra til eins árs,
en þá yrði staðan auglýst aftur.
Málið hefur slegið starfsmenn
skólans og margir telja ráðn
ingarferlið stórundarlegt. Jafn
framt að það vegi að akademísku
frelsi stofnunarinnar og megi telj
ast pólitískt inngrip.
Reynt að koma rektor frá
Árið 2005 voru þrjár ríkisstofn
anir sameinaðar í eina, Land
búnaðarháskóla Íslands. Starfs
stöðvarnar eru þó enn á sömu
stöðum og fyrir sameiningu, það
er á Hvanneyri, í Keldnaholti í
Reykjavík og á Reykjum í Ölf
usi. Nemendur eru 380 talsins og
starfsmenn 85. Starfsmaður skól
ans, sem ekki vill láta nafns síns
getið, segir Landbúnaðarháskól
ann hafa verið í mikilli kreppu allt
frá stofnun. „Þetta var sameining
sem mislukkaðist. Það var enginn
stjórnandi sem vildi sameiningu
en fólkið á Hvanneyri sá þó fyrir
sér að hún gæti orðið innspýting
fyrir svæðið.“
Raunin varð hins vegar önnur
og langflestar akademísku stöð
urnar eru í Reykjavík en starfs
mennirnir keyra til Hvanneyrar
til að kenna. „Þess vegna er mikil
kergja milli vinnustöðvanna. Það
er byggðapólitískur vinkill sem
gerir þennan skóla sérstakan.“
Hann segir deilurnar mjög miklar
og allir spili sinn leik, bæði yfir
menn og millistjórnendur, og að
mörg erfið mál hafi komið upp
á undanförnum árum. Nefnir
hann sérstaklega tvö eineltis
mál, annars vegar milli tveggja
prófessora og hins vegar milli
kennara og nemanda sem tekið
var fyrir af erlendri úttökunefnd.
Einnig er ritstuldarmál innan
skólans auk trúnaðarbrests milli
rektors og starfsmanns sem vís
að var til Félags íslenskra náttúru
fræðinga. „Þetta er ekki eðlilegur
vinnustaður. Þarna er margra ára
uppsöfnuð gremja.“
Sumarið 2014 var Björn Þor
steinsson prófessor skipaður
rektor skólans en eiginkona hans,
Anna Guðrún Þórhallsdóttir,
starfar einnig sem prófessor við
skólann. Sumir starfsmenn segja
þetta augljósan hagsmunaá
rekstur sem lýsi sér best í því að
rektor hafi ítrekað þurft að víkja af
fundum háskólaráðs þegar mál
efni hennar bar á góma. Heim
ildarmaður DV segir allt hafa farið
í háaloft þegar hann hafi kært
annan starfsmann skólans. „Það
var mjög erfitt mál innanhúss og
fólk skiptist í fylkingar. Í mínum
huga var alveg ljóst að það var
þarna ákveðinn hópur sem vildi
rektor frá og það var orðið mark
mið í sjálfu sér. Það má segja að
það sé fólkið í Keldnaholti sem sé
mest í því að rugga bátnum.“
1.janúar á þessu ári óskaði
Björn eftir starfslokum og að
hann myndi snúa aftur til fyrri
starfa sem prófessor. Var það
samþykkt á fundi og ákveðið að
auglýsa stöðu rektors.
Óvænt uppástunga
Umsóknarfrestur rann út þann 25.
apríl og þá höfðu sex manns sótt
um stöðuna. Matsnefnd komst að
þeirri niðurstöðu að þrír umsækj
endur uppfylltu skilyrði háskóla
ráðs og var þeim öllum boðið til
viðtals, Kristínu Völu Ragnars
dóttur, prófessor við Háskóla Ís
lands, Sigríði Kristjánsdóttur, lekt
or við Landbúnaðarháskólann, og
Hermundi Sigmundssyni, pró
fessor við NTU í Þrándheimi.
Hermundi var einum boðið
til frekari viðræðna og hann kom
fyrir háskólaráð og lýsti sýn sinni
og stefnu fyrir skólann. En þegar
á hólminn var komið ákvað hann
að þiggja ekki stöðuna. Einhverra
hluta vegna var þó ákveðið að
leita ekki til annarra umsækjenda
sem þóttu hæfir að mati mats
nefndarinnar. Þetta þótti mörgu
starfsfólki háskólans ákaflega
undarleg niðurstaða.
Í staðinn var ákveðið að búa
til lista yfir hugsanlega umsækj
endur og sá listi var sendur til
menntamálaráðuneytisins. Erfið
lega gekk þó að fá það fólk til þess
að sækja um stöðuna. Heimildar
maður DV segir: „Fólk sagði ein
faldlega nei. Stofnunin er kom
in með vont orð á sig og er talin
geislavirk. Einn á þessum lista
er vanur breytingastjórnandi og
hann sagði að þetta yrði klepps
vinna í tvö ár.“
Óvænt vending varð hins vegar
í málinu þann 7. september þegar
fulltrúi ráðherra í háskólaráðinu
lagði til nafn Sæmundar Sveins
sonar og að hann yrði settur til
eins árs. Þetta var samþykkt fimm
dögum síðar án mótbára og án
þess að matsnefnd hefði metið
hann hæfan til stöðunnar.
Umsækjendur meta stöðuna
Þetta kom mörgum á óvart, þar
á meðal Kristínu Völu Ragnars
dóttur. Hún segir: „Ég geri alltaf
ráð fyrir því að svona vinna sé
unnin faglega en það lítur út fyrir
að það sé ekki raunin í þessu til
felli.“ Framvindan kom henni þó
ekki alveg á óvart. „Ég sótti einnig
um stöðu rektors á Hvanneyri
þegar hún var auglýst árið 2003
og þá var líka stórfurðulegt ferli
sem fór í gang. Mér var boðið í tvö
viðtöl en ekki við fagfólk heldur
aðstoðarmenn ráðherra og skrif
stofustjóra landbúnaðarráðu
neytisins. Ég frétti það innan úr
ráðuneytinu að það hefði verið
mælt með mér en ráðherra hafði
lofað vini sínum, sem hafði unnið
í hrossarækt en aldrei í háskóla,
stöðunni.“ Kristín hefur ekki í
hyggju á að kæra ráðningarferlið
en hyggst óska eftir rökstuðningi
matsnefndar.
Sigríður Kristjánsdóttir er
einnig að meta stöðuna. Hún
segir: „Mér finnst þetta ráðn
ingarferli mjög skrítið og hef gert
athugasemdir við það. Ég er nú
að ráðfæra mig við lögfræðing um
hvað ég muni gera í framhaldinu.“
Stefnt er að því að auglýsa
stöðu rektors á ný eftir eitt ár en
ljóst er að sitjandi rektor verður
þá í kjörinni stöðu til að fá hana
í ljósi reynslu sinnar. Heimildar
maður DV segir: „Við vitum að
þegar staðan verður auglýst á
næsta ári þá er ekki nokkur heil
vita maður sem býður sig fram
gegn honum. Það yrði tímasóun.“
Annar ónafngreindur heimildar
maður bendir á að sitjandi rekt
or hafi áður sótt um stöðu lektors
hjá háskólanum en ekki fengið.
Hann segir því mjög sérstakt að
hann sé því ráðinn rektor án mats
og án þess að uppfylla skilyrðin
sem sett voru fram í upphaflegu
auglýsingunni.
Starfsfólk þreytt og hrætt
Viðmælendur DV segja starfsand
ann í háskólanum nú einkenn
ast af þreytu og hræðslu. Fólk sé
uppgefið vegna innanhúsdeilna
og pólitískra inngripa en þori ekki
að tjá sig vegna atvinnunnar. „Það
er erfitt fyrir fólk sem vinnur í sér
hæfðum rannsóknum að finna
störf annars staðar. Það verður þá
að snúa sér að allt öðru.“
Mestar áhyggjur hafa þeir þó
af því sem stendur háskólafólki
hvað næst, hinu akademíska
frelsi. „Þetta er hápólitískt mál
og alvarlegt inngrip í akademískt
frelsi háskólans. Það er útilokað
að háskólaráð hafi lagst yfir mál
ið og séð þarna stjórnandann
sem þeir þurftu. Þarna er einhver
frændhygli undirliggjandi.“ Að
sögn heimildarmanns hefur mál
ið verið kært til umboðsmanns
Alþingis. n
Landbúnaðarháskóli Íslands
„Stofnunin er komin með vont orð á sig og
er talin geislavirk.“ Mynd SiGtRyGGUR ARi JÓHAnnSSon
Kristín Vala Ragnarsdóttir„Ég geri alltaf ráð fyrir því að svona vinna sé unnin
faglega, en það lítur út fyrir að það sé ekki raunin í þessu tilfelli.“ Mynd SiGtRyGGUR ARi
JÓHAnneSSon