Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Side 8
8 Helgarblað 6. október 2017fréttir Kæra virt að vettugi Í vor kærðu nágrannar við Rangársel 16–20 framkvæmdirnar við húsið til Byggingarfulltrúa Reykjavíkur. Að þeirra mati aflaði velferðarsvið sér ekki tilskilinna byggingarleyfa áður en farið var í stað með uppbyggingu við húsnæðið auk þess sem hönnuður hússins var ekki hafður með í ráðum. Þá telja þeir að breytt nýting húsnæðisins kalli á breytingu á deiliskipulagi auk tilheyrandi grenndarkynningar. Það var ekki gert og telja íbúarnir því að um klárt lögbrot sé að ræða. „Þetta er hernaður við íbúa SeljahverfiS“ Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is nýfallinn dómur gegn vistmanni í öryggisvistun opinberar svik reykjavíkurborgar að mati íbúa Þ etta eru fullkomin svik við íbúa. Það var búið að lofa okkur því að hættulegir einstaklingar yrðu ekki vistaðir þarna. Núna þurfa íbúar hverfisins að horfa upp á heim­ sóknir lögreglu og sérsveitar. Það voru ung börn sem urðu vitni að því þegar vistmaður var dreginn handjárnaður upp í sérsveitar­ bíl. Þessi starfsemi á ekki heima í rólegu íbúðarhverfi,“ segir afar ósáttur íbúi í grennd við íbúða­ kjarna í Rangárseli þar sem Reykja­ víkurborg hefur byggt upp svokall­ aða öryggisvistun. Á dögunum féll dómur þar sem eini vistmaður­ inn í Rangárseli var dæmdur fyrir gróf ofbeldisbrot, meðal annars gegn forstöðumanni og öðrum starfsmönnum stofnunarinnar. Starfsemin hefur verið umdeild frá fyrstu tíð og eru íbúar afar ósáttir við skort á upplýsingum frá yfir­ völdum. Gróf svik Reykjavíkurborgar Íbúðarkjarninn við Rangársel var um árabil í eigu Öryrkjabanda­ lags Íslands. Þar dvöldu einstak­ lingar með ýmsar fatlanir og í góðu sambýli við nágranna sína. Það breyttist þegar Félagsbústaðir keyptu fasteignina í nóvember 2014. Fljótlega var húsnæðið rýmt og tilkynnt um þau áform vel­ ferðarsviðs Reykjavíkurborgar að í húsnæðið myndu flytja einstak­ lingar með margs konar fötlun, sem glímdu við vímuefnavanda, aðallega ungir karlmenn. Íbúar mótmæltu fyrirætlununum há­ stöfum og sauð meðal annars upp úr á íbúafundi í Seljakirkju. Á hon­ um héldu borgaryfirvöld því fram að vímuefnaneytendur yrðu ekki markhópur starfseminnar. Fljótlega fluttu síðan tveir menn með alvarleg geðræn vandamál í íbúðakjarnann. Þurftu íbúarn­ ir fljótlega að þola margs konar uppákomur tengdar vistmönnun­ um. Meðal annars gerðist annar þeirra sekur um grófa líkamsárás gegn íbúa í næsta nágrenni og hinn fletti sig klæðum fyrir framan nærliggjandi leikskóla. Tæpum tveimur árum síðar, þann 28. mars síðastliðinn, fjall­ aði DV um áhyggjur íbúa vegna öryggisgirðinga sem risu í kring­ um íbúðakjarnann í skjóli nætur. Íbúar í hverfinu voru afar ósáttir við feluleik Reykjavíkurborgar í málinu enda hafði íbúum ekki verið kynnt hvaða starfsemi yrði í húsinu. Þegar íbúar gengu á borgar yfirvöld kom í ljós að um svokallaða öryggisvistun var að ræða. Aftur var ítrekað að engir hættulegir einstaklingar yrðu vistaðir á þessum stað enda eru skólar, leikskólar og dvalarheim­ ili aldraðra í næsta nágrenni. Þá var því heitið að upplýsingaflæði til íbúanna yrði aukið. Þau loforð telja íbúar að borgaryfirvöld hafi gróflega svikið. Lúbarði starfsmenn Nýfallinn dómur yfir Sigurði Al­ mari Sigurðssyni opinberar hvers konar starfsemi á að reka í Rangárseli. Sigurður Almar er fyrsti og eini einstaklingurinn sem hefur verið vistaður að Rangár­ seli 16–20. Hann hlaut 12 mánaða fangelsisdóm fyrir þjófnað og margs konar ofbeldisbrot, meðal annars gegn unnustu sinni og starfsmönnum öryggisvistunar­ innar í Rangárseli og var honum gert að greiða þeim miskabætur. Sigurður Almar réðst tvisvar gegn starfsmönnum að Rangár­ seli. Fyrri árásin átti sér stað um miðjan dag, þriðjudaginn 14. júní, þegar Sigurður Almar var nýfluttur inn í öryggisvistunina. Starfsmennirnir, sem voru þrír saman, tilkynntu þá skjólstæðingi sínum að hann þyrfti að greiða húsaleigu og matarkostnað. Því tók Sigurður Almar illa og réðst hann að starfsmönnunum með grófu ofbeldi. Meðal annars skall­ aði hann einn þeirra og lét högg og spörk dynja á öllum þremur. Tveir starfsmenn náðu við illan leik að læsa Sigurð Almar inni. Það fór þó ekki betur en svo að þriðji starfs­ maður varð eftir í rýminu með Sigurði Almari sem réðst að við­ komandi með höggum og hrák­ um. Loks tókst að bjarga þessum starfsmanni frá vistmanninum en allir þrír starfsmennirnir þurftu að leita sér læknisaðstoðar eftir árásina. Tveimur dögum síðar varð önnur uppákoma þar sem Sig­ urður Almar sturlaðist í íbúð sinni vegna ósættis varðandi lyfja­ gjöf. Réðst hann með afli á stál­ hurð sem skildi vistarverur hans og aðstöðu starfsmanna að. Í dómnum kemur fram að hurðin hafi verið við það að gefa sig og dyrakarmurinn hafi verið ná­ lægt því að losna. Starfsmennirn­ ir hafi lagst á hurðina til þess að varna því að Sigurður Almar bryt­ ist í gegn. Meðan á þessu stóð á ofbeldismaðurinn að hafa kallað ókvæðisorð að starfsmönnum, meðal annars að hann hafi ætlað að „stúta“ þeim. Í báðum tilvikum var lögreglan kölluð á vettvang og horfðu íbúar í hverfinu á Sigurð Almar dreginn út í járnum. Tilraun í íbúðabyggð sem misheppnaðist Þá kemur fram Sigurður Almar hafi glímt við mikla erfiðleika frá unga aldri. Í áliti geðlæknis kemur fram að hann hafi upphaflega stutt ein­ dregið þær hugmyndir að honum yrði fundin vist í öryggisvistuninni að Rangárseli sem Reykjavíkurborg hafi verið með í undirbúningi. Þessi tilraun hafi hins vegar ekki geng­ ið upp og hann teldi rétt að Sig­ urður Almar yrði vistaður í fangelsi þar til dómur yrði á enda runninn. Dómurinn tók undir það. Óvíst er hvort félagsmálayfir­ völd taki tillit til þess álits. Í dóms­ orði kemur fram að verið sé að koma fyrir öflugri stálhurð en þeirri sem fyrir var, húsgögn yrðu fest við gólf og þá væri starfsfólk að sækja námskeið í sjálfsvörn hjá Mjölni. n Sigurður Almar Sigurðsson Fyrsti vistmaðurinn á Rangárseli. Hann hlaut nýlega 12 mánaða fang- elsisdóm, meðal annars fyrir ofbeldi gegn starfsmönnum. Öryggisfangelsi Í húsnæðinu er búið að koma fyrir stálhurðum auk þess sem ofnar og innréttingar eru sérstaklega klæddar þannig að ekki sé hægt að skaða sig á þeim. Þá er búið að styrkja gler í húsinu og koma fyrir rimlum. Innandyra eru þrjár myndavélar en talsvert fleiri utan hússins. Mynd SiGTRyGGuR ARi Telja uppbygginguna ólöglega Íbúar hafa kært uppbygginguna við Rangársel. Byggin gar- leyfa var ekki aflað auk þess sem ekki var k ynnt nein breyting á deiliskipulagi. Mynd SiGTRyGGuR A Ri Rangársel Íbúar eru uggandi yfir nýföllnum dómi gegn vistmanni í öryggisvistuninni sem Reykjavíkurborg kom á laggirnar í skjóli nætur. Að þeirra mati á slík starfsemi ekki heima í rólegu íbúðarhverfi. Mynd SiGTRyGGuR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.