Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Qupperneq 8
8 Helgarblað 6. október 2017fréttir
Kæra virt að vettugi
Í vor kærðu nágrannar við Rangársel
16–20 framkvæmdirnar við húsið til
Byggingarfulltrúa Reykjavíkur. Að
þeirra mati aflaði velferðarsvið sér
ekki tilskilinna byggingarleyfa áður
en farið var í stað með uppbyggingu
við húsnæðið auk þess sem hönnuður
hússins var ekki hafður með í ráðum. Þá
telja þeir að breytt nýting húsnæðisins
kalli á breytingu á deiliskipulagi auk
tilheyrandi grenndarkynningar. Það
var ekki gert og telja íbúarnir því að um
klárt lögbrot sé að ræða.
„Þetta er hernaður við
íbúa SeljahverfiS“
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
nýfallinn dómur gegn vistmanni
í öryggisvistun opinberar svik
reykjavíkurborgar að mati íbúa
Þ
etta eru fullkomin svik við
íbúa. Það var búið að lofa
okkur því að hættulegir
einstaklingar yrðu ekki
vistaðir þarna. Núna þurfa íbúar
hverfisins að horfa upp á heim
sóknir lögreglu og sérsveitar. Það
voru ung börn sem urðu vitni að
því þegar vistmaður var dreginn
handjárnaður upp í sérsveitar
bíl. Þessi starfsemi á ekki heima
í rólegu íbúðarhverfi,“ segir afar
ósáttur íbúi í grennd við íbúða
kjarna í Rangárseli þar sem Reykja
víkurborg hefur byggt upp svokall
aða öryggisvistun. Á dögunum féll
dómur þar sem eini vistmaður
inn í Rangárseli var dæmdur fyrir
gróf ofbeldisbrot, meðal annars
gegn forstöðumanni og öðrum
starfsmönnum stofnunarinnar.
Starfsemin hefur verið umdeild frá
fyrstu tíð og eru íbúar afar ósáttir
við skort á upplýsingum frá yfir
völdum.
Gróf svik Reykjavíkurborgar
Íbúðarkjarninn við Rangársel var
um árabil í eigu Öryrkjabanda
lags Íslands. Þar dvöldu einstak
lingar með ýmsar fatlanir og í
góðu sambýli við nágranna sína.
Það breyttist þegar Félagsbústaðir
keyptu fasteignina í nóvember
2014. Fljótlega var húsnæðið rýmt
og tilkynnt um þau áform vel
ferðarsviðs Reykjavíkurborgar að
í húsnæðið myndu flytja einstak
lingar með margs konar fötlun,
sem glímdu við vímuefnavanda,
aðallega ungir karlmenn. Íbúar
mótmæltu fyrirætlununum há
stöfum og sauð meðal annars upp
úr á íbúafundi í Seljakirkju. Á hon
um héldu borgaryfirvöld því fram
að vímuefnaneytendur yrðu ekki
markhópur starfseminnar.
Fljótlega fluttu síðan tveir menn
með alvarleg geðræn vandamál
í íbúðakjarnann. Þurftu íbúarn
ir fljótlega að þola margs konar
uppákomur tengdar vistmönnun
um. Meðal annars gerðist annar
þeirra sekur um grófa líkamsárás
gegn íbúa í næsta nágrenni og
hinn fletti sig klæðum fyrir framan
nærliggjandi leikskóla.
Tæpum tveimur árum síðar,
þann 28. mars síðastliðinn, fjall
aði DV um áhyggjur íbúa vegna
öryggisgirðinga sem risu í kring
um íbúðakjarnann í skjóli nætur.
Íbúar í hverfinu voru afar ósáttir
við feluleik Reykjavíkurborgar í
málinu enda hafði íbúum ekki
verið kynnt hvaða starfsemi yrði
í húsinu. Þegar íbúar gengu á
borgar yfirvöld kom í ljós að um
svokallaða öryggisvistun var að
ræða. Aftur var ítrekað að engir
hættulegir einstaklingar yrðu
vistaðir á þessum stað enda eru
skólar, leikskólar og dvalarheim
ili aldraðra í næsta nágrenni. Þá
var því heitið að upplýsingaflæði
til íbúanna yrði aukið. Þau loforð
telja íbúar að borgaryfirvöld hafi
gróflega svikið.
Lúbarði starfsmenn
Nýfallinn dómur yfir Sigurði Al
mari Sigurðssyni opinberar
hvers konar starfsemi á að reka
í Rangárseli. Sigurður Almar er
fyrsti og eini einstaklingurinn sem
hefur verið vistaður að Rangár
seli 16–20. Hann hlaut 12 mánaða
fangelsisdóm fyrir þjófnað og
margs konar ofbeldisbrot, meðal
annars gegn unnustu sinni og
starfsmönnum öryggisvistunar
innar í Rangárseli og var honum
gert að greiða þeim miskabætur.
Sigurður Almar réðst tvisvar
gegn starfsmönnum að Rangár
seli. Fyrri árásin átti sér stað um
miðjan dag, þriðjudaginn 14.
júní, þegar Sigurður Almar var
nýfluttur inn í öryggisvistunina.
Starfsmennirnir, sem voru þrír
saman, tilkynntu þá skjólstæðingi
sínum að hann þyrfti að greiða
húsaleigu og matarkostnað. Því
tók Sigurður Almar illa og réðst
hann að starfsmönnunum með
grófu ofbeldi. Meðal annars skall
aði hann einn þeirra og lét högg og
spörk dynja á öllum þremur. Tveir
starfsmenn náðu við illan leik að
læsa Sigurð Almar inni. Það fór þó
ekki betur en svo að þriðji starfs
maður varð eftir í rýminu með
Sigurði Almari sem réðst að við
komandi með höggum og hrák
um. Loks tókst að bjarga þessum
starfsmanni frá vistmanninum en
allir þrír starfsmennirnir þurftu
að leita sér læknisaðstoðar eftir
árásina.
Tveimur dögum síðar varð
önnur uppákoma þar sem Sig
urður Almar sturlaðist í íbúð
sinni vegna ósættis varðandi lyfja
gjöf. Réðst hann með afli á stál
hurð sem skildi vistarverur hans
og aðstöðu starfsmanna að. Í
dómnum kemur fram að hurðin
hafi verið við það að gefa sig og
dyrakarmurinn hafi verið ná
lægt því að losna. Starfsmennirn
ir hafi lagst á hurðina til þess að
varna því að Sigurður Almar bryt
ist í gegn. Meðan á þessu stóð á
ofbeldismaðurinn að hafa kallað
ókvæðisorð að starfsmönnum,
meðal annars að hann hafi ætlað
að „stúta“ þeim. Í báðum tilvikum
var lögreglan kölluð á vettvang og
horfðu íbúar í hverfinu á Sigurð
Almar dreginn út í járnum.
Tilraun í íbúðabyggð sem
misheppnaðist
Þá kemur fram Sigurður Almar hafi
glímt við mikla erfiðleika frá unga
aldri. Í áliti geðlæknis kemur fram
að hann hafi upphaflega stutt ein
dregið þær hugmyndir að honum
yrði fundin vist í öryggisvistuninni
að Rangárseli sem Reykjavíkurborg
hafi verið með í undirbúningi. Þessi
tilraun hafi hins vegar ekki geng
ið upp og hann teldi rétt að Sig
urður Almar yrði vistaður í fangelsi
þar til dómur yrði á enda runninn.
Dómurinn tók undir það.
Óvíst er hvort félagsmálayfir
völd taki tillit til þess álits. Í dóms
orði kemur fram að verið sé að
koma fyrir öflugri stálhurð en þeirri
sem fyrir var, húsgögn yrðu fest við
gólf og þá væri starfsfólk að sækja
námskeið í sjálfsvörn hjá Mjölni. n
Sigurður Almar Sigurðsson
Fyrsti vistmaðurinn á Rangárseli.
Hann hlaut nýlega 12 mánaða fang-
elsisdóm, meðal annars fyrir ofbeldi
gegn starfsmönnum.
Öryggisfangelsi Í húsnæðinu er búið að
koma fyrir stálhurðum auk þess sem ofnar og
innréttingar eru sérstaklega klæddar þannig
að ekki sé hægt að skaða sig á þeim. Þá er
búið að styrkja gler í húsinu og koma fyrir
rimlum. Innandyra eru þrjár myndavélar en
talsvert fleiri utan hússins. Mynd SiGTRyGGuR ARi
Telja uppbygginguna ólöglega Íbúar hafa
kært uppbygginguna við Rangársel. Byggin
gar-
leyfa var ekki aflað auk þess sem ekki var k
ynnt
nein breyting á deiliskipulagi. Mynd SiGTRyGGuR A
Ri
Rangársel Íbúar eru uggandi yfir nýföllnum dómi gegn vistmanni í öryggisvistuninni
sem Reykjavíkurborg kom á laggirnar í skjóli nætur. Að þeirra mati á slík starfsemi ekki
heima í rólegu íbúðarhverfi. Mynd SiGTRyGGuR ARi