Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Qupperneq 22
22 sport Helgarblað 6. október 2017 Þ að er allt undir þegar Ís­ land heimsækir Tyrkland í undankeppni heimsmeist­ aramótsins í kvöld. Fram undan eru tveir leikir, fyrst gegn Tyrkjum og síðan gegn Kósóvó heima á mánudag. Íslenska liðið er í frábæri stöðu til að koma sér í fyrsta sinn á lokamót HM. Reynslan sem liðið hefur frá Evrópumótinu í Frakklandi í fyrrasumar telur drjúgt. Íslenska liðið er í frábærri stöðu fyrir síðustu tvo leikina í þessum erfiða riðli, með þremur risum í knattspyrnuheiminum í riðli og í góðri stöðu. Þó að fjögur stig myndu duga í þessum leikjum stefna strákarnir á sigur í báðum, hugarfarið sem komið hefur liðinu lengra en margur þorði að vona hverfur aldrei. Eitt besta varnarlið í heimi Magnús Már Einarsson, að­ stoðarþjálfari Aftureldingar og rit­ stjóri fotbolti.net, er einn helsti knattspyrnusérfræðingur lands­ ins þegar kemur að íslenska lands­ liðinu. Magnús þekkir íslenska liðið vel og hann á von á góðum hlutum. „Ég er bjartsýnn því Tyrkir verða að vinna, þeir eru svo gott sem úr leik ef þeir gera jafntefli. Við erum ekki í þeirri stöðu, á meðan staðan er jöfn í leiknum þá eru miklir möguleik­ ar. Ef jafnt er framan af leik þá þurfa Tyrkir að færa sig framar og reyna að sækja sigurinn, við erum með leikmenn sem geta refsað þeim í skyndisóknum. Ég er vongóður, varnarlega hefur íslenska liðið ver­ ið eitt það besta í heimi síðustu ár. Frábært skipulag og svo lengi sem staðan er jöfn þá er íslenska liðið í toppmálum. Tyrkir eru fljótir að kasta inn handklæðinu, bæði leik­ menn og stuðningsmenn. Þetta er ekki sterkasta liðið í mótlæti og ekki með jafn sterka liðsheild eins og Ísland hefur. Þeir hafa notað 34 leikmenn í þessari undankeppni á meðan Ísland hefur notað 21. Menn þekkjast betur í íslenska liðinu, miklu betri heild og það er miklu sterkari kjarni sem er á bak við liðið heldur en hjá Tyrkjum. Stuðningsmenn þeirra eru kröfu­ harðir og ef illa gengur eru þeir fljótir að láta það heyrast, það gæti unnið með íslenska liðinu ef Tyrkir verða í vandræðum framan af leik.“ Mjög mikilvægt að Aron verði með Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði liðsins, er í kappi við tímann til að ná leiknum. Meiðsli eru að hrjá hann og hann hefur átt erfitt með að æfa fyrir leikinn. „Það skiptir mjög miklu máli að Aron Einar verði með, við höfum séð að það geta verið vandræði á liðinu ef Aron er ekki með. Það sem gefur þó von er að íslenska liðið stóð sig afar vel í heimaleiknum gegn Tyrkjum þegar Aron tók út leik­ bann. Tyrkland á heimavelli er annað lið en á útivelli, það vita all­ ir. Þetta er erfiðari leikur, það gæti orðið erfiðara að fylla skarð hans núna. Ég ætla að vona að hann verði með, bæði karakterinn og gæðin sem Aron hefur eru hlutir sem við þurfum.“ Yrði stærsta íþróttaafrek í sögu Íslands Margir eru á því máli að um stærsta íþróttaafrek í sögu íslensku þjóðar­ innar yrði að veruleika ef liðið kæmist á heimsmeistaramótið, Magnús er einn af þeim. „Við þurf­ um fjögur stig. Tap í Tyrklandi þýð­ ir að við þyrftum að treysta á Finn­ land. Ef maður leyfir sér svo að vera bjartsýnn þá gætu sex stig dugað til að vinna riðilinn, ég er ekki viss um að Króatía vinni Úkraínu á mánu­ dag á útivelli. Sex stig gætu því mögulega gefið beint sæti á HM í Rússlandi, það yrði magnað afrek.“ Magnús er ekki frá því að ef svo færi væri um að ræða stærsta íþróttaafrek í sögu Íslands: „Það komast 13 þjóðir frá Evrópu inn á mótið þar sem allar stærstu þjóð­ ir heims etja kappi. Við yrðum fá­ mennasta þjóð sögunnar á HM. Trínidad og Tóbagó er fámenn­ asta þjóðin sem hefur tekið þátt hingað til, en þar búa 1,3 milljónir. Við erum 330 þúsund, þetta yrði heimsfrétt.“ n Verður þetta stærsta íþróttaafrek í sögu Íslands? n Stærstu leikir í sögu landsliðsins n Magnús Már metur stöðuna Hvað segja strákarnir? Aron Einar Gunnarsson „Ég er í kapphlaupi við tímann í að ná þessum leik, þetta er leiðinleg staða. Ég kem til með að gera allt til að vera klár, hvort sem það er með- höndlun eða auka klukkutími í ræktinni. Maður reynir að gera allt til að vera klár. Þetta er sama gamla sagan, maður er alltaf smá tæpur þegar maður mætir. Þetta er hluti af þessu, ég verð vonandi klár.“ Gylfi Þór Sigurðsson „Möguleikarnir eru fínir, við erum að spila á móti öðruvísi liði en í fyrri leiknum. Þeir eru með annan þjálfara, kjarninn af hópnum er sá sami. Þetta er á erfiðum útivöllum, hugarfarið hjá okkur ætti að vera fara og vinna leikinn. Það hefur gengið vel þannig, fara í leikinn svipað og á móti Úkraínu. Við ætlum ekki að spila upp á jafntefli, við þurfum að vinna leikinn ef við ætlum að eiga séns á að ná fyrsta sætinu. Við erum með sama hóp og þá, það er gott að hafa það í reynslubankanum. Við erum með meiri reynslu og gæði núna.“ Sverrir Ingi Ingason „Það eru fínir möguleikar, Tyrkir eru með gott lið. Þeir eru annað lið á heimavelli, við vitum hvað við þurfum að gera til að vinna leikinn. Möguleikarnir í leiknum liggja í því að þeir þurfa að vinna leikinn, ef við náum að halda skipulagi framan af þá þurfa þeir að koma framar. Þetta er leikur upp á líf og dauða fyrir þá, möguleik- arnir gætu legið í því að svæði gætu opnast.“ Ragnar Sigurðsson „Við vitum að þetta verður allt öðruvísi leikur en á heimavelli þar sem við tókum þá í nefið, þeir eiga stóran séns núna. Þeir eru á heimavelli og allur sá pakki. Það eru miklu skemmtilegra þegar það er mikið undir, við erum að mæta góðum andstæðingum og vitum að þetta verður erfitt. Þá kemur meiri pressa og stress í mann, það er skemmtilegast. Við höfum líka skitið á okkur eins og í umspilinu gegn Króatíu en oftar en ekki þá rísum við upp.“ Jóhann Berg Guðmundsson „Við vitum þeirra styrkleika. Við vitum að þetta er allt annað lið á heimavelli og útivelli, þeir sýndu það með því að vinna Króata í síðasta leik. Við teljum okkur eiga mjög góða möguleika, við vitum hvað við eigum að gera til að vinna leikinn. Þó að það sé frábært að vera með stuðning á heimavelli þá getur það unnið á móti Tyrkjunum. Ef það gengur ekki vel verða stuðnings- menn og leikmenn pirraðir. Við verðum að pirra þá vel og fá stuðningsmenn á móti þeim.“ Staðan í riðlinum 1 Króatía 8 5 1 2 12 - 3 9 16 2 Ísland 8 5 1 2 11 - 7 4 16 3 Tyrkland 8 4 2 2 12 - 8 4 14 4 Úkraína 8 4 2 2 11 - 7 4 14 5 Finnland 8 2 1 5 6 - 10 -4 7 6 Kósóvó 8 0 1 7 3 - 20 -17 1 Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.