Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Qupperneq 30
innlit ÍBÚAR: Ágústa Jónasdóttir, 34 ára hönnunarnemi og Róbert Ingi, 34 ára viðskiptafræðingur. ÁHUGAMÁL: Hönnun, hreyfing og tónlist.STÆRÐ: 62 fermetrar – 1 svefnherbergi. STAÐUR: Bryggjuhverfið í Grafarvogi. Fyrsta hæð í fjölbýlishúsi. BYGGINGARÁR: 2017.
Heilbrigðar
pottaplöntur
á öll Heimili
Áhugi Ágústu Jónasdóttur á innanhússhönnun kvikn-aði fyrir nokkrum árum
þegar hún tók upp á því að kaupa
gömul húsgögn og gera þau upp
heima í stofu.
„Ég bólstraði stóla, pússaði og
málaði og reyndi svo að selja á
netinu. Það er víst óhætt að segja
að það hafi gengið mjög vel því
ekki leið á löngu þar til ég varð að
redda mér stærra húsnæði fyrir
allar mublurnar af því eftirspurn-
in varð svo mikil,“ segir Ágústa
sem fékkst við þetta áhugamál í
rúm fimm ár, meðal annars undir
nafninu Álfadís á Facebook. „Svo
fékk ég auðvitað leiða á þessu eins
og gengur og gerist. Mig langaði
að bjóða öðruvísi vöruúrval, finna
eitthvað nýtt og spennandi sem
sést ekki í öðrum búðum. Stundum
er allt svo keimlíkt hérna. Þetta
leiddi svo af sér fyrirbærið Íslensk
heimili en það er vefverslun sem
við Róbert kærasti minn rekum
í sameiningu. Það er að segja, ég
sé um að velja vörurnar og hann
passar upp á bókhaldið.“
Hverjar eru áherslurnar hjá þér
þegar kemur að því að gera fínt á
heimilinu?
„Það getur verið svo margt, allt
frá samspili lita yfir það að blanda
saman nýjum og gömlum munum.
Núna er ég samt alveg yfir mig
áhugasöm um alls konar potta-
plöntur og stofublóm. Þegar ég
var lítil stelpa þá var mamma alltaf
að stússast eitthvað með plöntur.
Heimilið okkar var gersamlega
troðið af plöntum. Eins og frum-
skógur. Ég var samt ekkert sérstak-
lega áhugasöm um þær þangað til
fyrir nokkrum árum. Ég átta mig
á að pottaplöntur eru mikið í tísku
núna en ég vil auðvitað meina að
ég hafi verið langt á undan minni
samtíð,“ segir Ágústa og hlær. „Ég
er allavega búin að smita margar af
vinkonum mínum af þessum áhuga
og orðin sérlegur pottaplönturáð-
gjafi í vinahópnum. Mér finnst að
öll íslensk heimili ættu að inni-
halda heilbrigðar pottaplöntur.“
„Heimilið
okkar var
gersamlega troðið
af plöntum. eins og
frumskógur. Ég var
samt ekkert sérstak-
lega áhugasöm um
þær þangað til fyrir
nokkrum árum.
HILLA UNDIR FÍNERÍ „Þetta er String hilla sem ég keypti í Epal fyrir svona hálfu ári. Í henni geymi ég alls konar dót, það er mismunandi hvað er þarna hverju sinni. Maður er alltaf að skipta út og raða upp á nýtt eftir því hvernig stuði maður er í.“
LJÓÐ ERU GÓÐ what if I fall? oh, my darling, what if you fly?
GULLFALLEGUR
GyÐINGUR
„Þessa gullfallegu
plöntu tók ég með
mér frá Svíþjóð en
með tímanum á
hún eftir að stækka
og verða að fal-
legri hengiplöntu.
Margir halda að
það sé ólöglegt að
flytja plöntur á milli
landa en það er
það ekki. Maður
þarf bara að passa
að taka ekki fleiri
en þrjár í einu.“
ELDHÚSIÐ
„Liturinn á eyjunni
og innréttingunni
hefur eðlilega
áhrif á litavalið í
þessu opna rými
sem sameinar
bæði eldhús,
borðstofu og stofu.
Ef hún hefði verið
grá eða kannski
svört þá hefði það
breytt ásýndinni
mikið. Hlutleysið
skiptir miklu og
líka þessi náttúru-
lega áferð. “