Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Side 36
2 Brot af því besta Helgarblað 6 október 2017KYNNINGARBLAÐ Eitt af því sem gefur Ökuskólanum í Mjódd sérstöðu er markviss notkun ökuherma í náminu, bæði fyrir akstur bifreiða og bifhjóla. Blaðamaður prófaði að setjast í ökuhermi skól- ans og var það áhugaverð upplifun. Hann lenti meðal annars í þeim aðstæðum að bíll virti ekki stöðvunarskyldu og ók fyrir hann og hreindýr hljóp í veg fyrir bílinn. Einnig var prófaður akstur í myrkri þar sem skipta þarf á milli hárra og lágra ljósa þegar bílum er mætt, og akstur í hálku. Ökuhermirinn sýnir svart á hvítu hvað gerist við svona erfiðar aðstæður og uppákomur. Stöðvunar- vegalengdin er mun lengri en margir gera sér grein fyr- ir, sem og höggþunginn við árekstur, sem sýnir að við- bragðið verður að vera gott og því afar nauðsynlegt að ökumenn séu með athyglina í lagi en henni sé ekki spillt með vímuefnum, þreytu og litlum svefni, eða símanotk- un. Þá er afar algengt að fólk vanmeti vegalengdina að næsta bíl fyrir framan, nokkuð sem ökuhermirinn leiðir greinilega í ljós. Starfsmenn Ökuskólans í Mjódd segja það miklu áhrifaríkara að láta nem- endur upplifa hættuleg atvik í ökuhermi en greina frá þeim í kennslustund og engin hætta á að athyglin sé ekki í lagi þegar nemandinn fær hinar erfiðu akstursað- stæður beint í æð, ef svo má segja. Ökuskólinn í Mjódd rekur uppruna sinn til Ökuskóla Ökukennarafélags Íslands sem stofnað var árið 1967 í aðdraganda að upptöku hægri umferðar hér á landi árið 1968. Skólinn hefur verið til í núverandi mynd frá árinu 1999 og er sá staður þar sem einna mest reynsla og þekking í ökukennslu hef- ur safnast saman. Ökuskólinn í Mjódd hefur verið frumkvöðull í mörg- um þáttum ökunáms, segir Guðbrandur Bogason, ökukennari hjá skólanum: „Grunnstarfsemin byggist á ökukennslu til unglinga sem eru að taka bílpróf en síðan höfum við verið með bif- hjólanámskeið fyrir stór bif- hjól og við erum með nám- skeið til aukinna ökuréttinda, þ.e. meiraprófs. Þar vorum við frumkvöðlar þegar sú starfsemi fluttist frá ríkinu, en meiraprófið var einokað af ríkinu fram til ársins 1992. Eftir það erum við sá skóli sem helst byggir upp kennslu til meiraprófs.“ Auk meiraprófs býður Ökuskólinn í Mjódd upp á námskeið fyrir leigubílstjóra í afleysingum sem tryggja þeim nauðsynleg réttindi og einnig eru í boði leyfis- hafanámskeið fyrir þá sem vilja gera út leigubíla. Enn fremur býður skólinn upp á bifhjólanámskeið og ökunám fyrir þá sem hafa misst öku- réttindi og vilja endurheimta þau. Einn af áhugaverðustu þáttum í starfsemi Ökuskól- ans í Mjódd er ökunám fyrir seinfæra nemendur sem skólinn sinnir í samstarfi við félagið Fjölmennt. Er þess gætt að hafa námið á þeim hraða sem hentar hverjum nemanda en margir þessara nemenda þurfa mjög langan tíma. Þrír fastir starfsmenn eru hjá Ökuskólanum í Mjódd en fjölmargir starfa fyrir skólann sem verktakar og eru um 20 ársverk hjá fyrirtækinu. Nemendur eru afar margir á hinum ólíku sviðum, alls um 2.000 á ári. Sem dæmi þá eru nú sem stendur um 50 Pólverjar í meiraprófsnámi í skólanum en flestir þeirra eru vænt- anlegir strætisvagna- og rútubílstjórar. Ökuskólinn í Mjódd stend- ur afar vel að vígi hvað varðar tækjabúnað og aðstöðu en áður eru nefndir fullkomnir ökuhermar fyrir bifreiða- og bifhjólaakstur. Auk þess eru fjórar vel búnar kennslustofur í húsakynnum skólans. Enn fremur býður skólinn upp á netnám á Ökuneti sínu. Guðbrandur segir að netnámið hafi ýmsa kosti en geldur varhug við því að á það sé treyst ein- göngu hvað varðar bóklega námið: „Það er svo mikið sem tapast þegar engin mann- leg nærvera er til staðar. Til dæmis eru nemendur tregari til að spyrja þegar þeir þurfa að skrifa fyrir- spurnina og bíða svars. Enn fremur eru samræður miklu meira lifandi í hópi en á netinu. Þetta er gott allt hvert með öðru en staðar- kennsla er nauðsynleg sam- hliða netnáminu.“ Hann bendir einnig á að viðhorfsmótun sé afar mikil- væg í ökunámi og ábyrgðar- fullan akstur sé aðeins hægt að innræta nemendum í návígi, ekki með verkefnum á netinu. Nánari upplýsingar um Ökuskólann Mjódd eru á vefsíðunni bilprof.is. Upp- lýsingar eru einnig veittar í síma 567-0300. Frumkvöðull í ökukennslu ÖkuSkóliNN Í Mjódd Bifhjólahermir Kennslubílar í meiraprófi Myndir Þormar Vignir Gunnarsson Ökuhermir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.