Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Síða 36
2 Brot af því besta Helgarblað 6 október 2017KYNNINGARBLAÐ
Eitt af því sem gefur Ökuskólanum í Mjódd sérstöðu er markviss
notkun ökuherma í náminu,
bæði fyrir akstur bifreiða og
bifhjóla. Blaðamaður prófaði
að setjast í ökuhermi skól-
ans og var það áhugaverð
upplifun. Hann lenti meðal
annars í þeim aðstæðum að
bíll virti ekki stöðvunarskyldu
og ók fyrir hann og hreindýr
hljóp í veg fyrir bílinn. Einnig
var prófaður akstur í myrkri
þar sem skipta þarf á milli
hárra og lágra ljósa þegar
bílum er mætt, og akstur í
hálku. Ökuhermirinn sýnir
svart á hvítu hvað gerist
við svona erfiðar aðstæður
og uppákomur. Stöðvunar-
vegalengdin er mun lengri
en margir gera sér grein fyr-
ir, sem og höggþunginn við
árekstur, sem sýnir að við-
bragðið verður að vera gott
og því afar nauðsynlegt að
ökumenn séu með athyglina
í lagi en henni sé ekki spillt
með vímuefnum, þreytu og
litlum svefni, eða símanotk-
un. Þá er afar algengt að
fólk vanmeti vegalengdina
að næsta bíl fyrir framan,
nokkuð sem ökuhermirinn
leiðir greinilega í ljós.
Starfsmenn Ökuskólans
í Mjódd segja það miklu
áhrifaríkara að láta nem-
endur upplifa hættuleg
atvik í ökuhermi en greina
frá þeim í kennslustund og
engin hætta á að athyglin sé
ekki í lagi þegar nemandinn
fær hinar erfiðu akstursað-
stæður beint í æð, ef svo má
segja.
Ökuskólinn í Mjódd rekur
uppruna sinn til Ökuskóla
Ökukennarafélags Íslands
sem stofnað var árið 1967
í aðdraganda að upptöku
hægri umferðar hér á landi
árið 1968. Skólinn hefur
verið til í núverandi mynd frá
árinu 1999 og er sá staður
þar sem einna mest reynsla
og þekking í ökukennslu hef-
ur safnast saman.
Ökuskólinn í Mjódd hefur
verið frumkvöðull í mörg-
um þáttum ökunáms, segir
Guðbrandur Bogason,
ökukennari hjá skólanum:
„Grunnstarfsemin byggist á
ökukennslu til unglinga sem
eru að taka bílpróf en síðan
höfum við verið með bif-
hjólanámskeið fyrir stór bif-
hjól og við erum með nám-
skeið til aukinna ökuréttinda,
þ.e. meiraprófs. Þar vorum
við frumkvöðlar þegar sú
starfsemi fluttist frá ríkinu,
en meiraprófið var einokað
af ríkinu fram til ársins 1992.
Eftir það erum við sá skóli
sem helst byggir upp kennslu
til meiraprófs.“
Auk meiraprófs býður
Ökuskólinn í Mjódd upp á
námskeið fyrir leigubílstjóra
í afleysingum sem tryggja
þeim nauðsynleg réttindi
og einnig eru í boði leyfis-
hafanámskeið fyrir þá sem
vilja gera út leigubíla. Enn
fremur býður skólinn upp á
bifhjólanámskeið og ökunám
fyrir þá sem hafa misst öku-
réttindi og vilja endurheimta
þau.
Einn af áhugaverðustu
þáttum í starfsemi Ökuskól-
ans í Mjódd er ökunám fyrir
seinfæra nemendur sem
skólinn sinnir í samstarfi við
félagið Fjölmennt. Er þess
gætt að hafa námið á þeim
hraða sem hentar hverjum
nemanda en margir þessara
nemenda þurfa mjög langan
tíma.
Þrír fastir starfsmenn
eru hjá Ökuskólanum í
Mjódd en fjölmargir starfa
fyrir skólann sem verktakar
og eru um 20 ársverk hjá
fyrirtækinu. Nemendur eru
afar margir á hinum ólíku
sviðum, alls um 2.000 á ári.
Sem dæmi þá eru nú sem
stendur um 50 Pólverjar í
meiraprófsnámi í skólanum
en flestir þeirra eru vænt-
anlegir strætisvagna- og
rútubílstjórar.
Ökuskólinn í Mjódd stend-
ur afar vel að vígi hvað
varðar tækjabúnað og
aðstöðu en áður eru nefndir
fullkomnir ökuhermar fyrir
bifreiða- og bifhjólaakstur.
Auk þess eru fjórar vel búnar
kennslustofur í húsakynnum
skólans. Enn fremur býður
skólinn upp á netnám á
Ökuneti sínu. Guðbrandur
segir að netnámið hafi ýmsa
kosti en geldur varhug við
því að á það sé treyst ein-
göngu hvað varðar bóklega
námið:
„Það er svo mikið sem
tapast þegar engin mann-
leg nærvera er til staðar.
Til dæmis eru nemendur
tregari til að spyrja þegar
þeir þurfa að skrifa fyrir-
spurnina og bíða svars.
Enn fremur eru samræður
miklu meira lifandi í hópi en
á netinu. Þetta er gott allt
hvert með öðru en staðar-
kennsla er nauðsynleg sam-
hliða netnáminu.“
Hann bendir einnig á að
viðhorfsmótun sé afar mikil-
væg í ökunámi og ábyrgðar-
fullan akstur sé aðeins hægt
að innræta nemendum í
návígi, ekki með verkefnum á
netinu.
Nánari upplýsingar um
Ökuskólann Mjódd eru á
vefsíðunni bilprof.is. Upp-
lýsingar eru einnig veittar í
síma 567-0300.
Frumkvöðull í ökukennslu
ÖkuSkóliNN Í Mjódd
Bifhjólahermir
Kennslubílar í meiraprófi
Myndir Þormar Vignir Gunnarsson
Ökuhermir.