Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Side 38
4 Brot af því besta Helgarblað 6 október 2017KYNNINGARBLAÐ
Matti sMiður
Matthías Pétursson húsgagnasmiður er með þrjátíu ára
reynslu af smíði og vinnur
með Matthíasi syni sínum,
sem er að ljúka námi í húsa-
smíði, og mun taka við rekstri
föður síns þegar fram líða
stundir. Þeir feðgar taka að
sér flest það sem lýtur að
smíði, nýsmíði og lagfær-
ingum. Matthías segist lengi
vel hafa unnið við sérsmíði á
innréttingum: „undanfarin ár
hefur sérsvið mitt hins vegar
verið garðar og hellulögn. Ég
tek að mér fjölbreytt verkefni
eins og sumarhús, einkalóð-
ir, lóðir undir nýbyggingar
og eins eldra húsnæði. að
auki sé ég um nýja garða og
endurgerð eldri garða.“
Sólpallar, skjólveggir og
hellulögn
„Þegar líða fer að vori fara
margir að huga að sólpöll-
um enda eru þeir ekki bara
til þess að njóta sólarinnar
heldur nýtast einnig sem
frábær framlenging á sjálfri
stofunni,“ segir Matti. „Það er
einnig annatími í hellulögn og
girðingum. skjólveggir, bekkir,
kofar og geymslur spretta
upp eins og gorkúlur í görðum
landsmanna með hækkandi
sól,“ bætir hann við og nefnir
að fátt sé skemmtilegra en
vorverkin.
Heitir pottar – framlenging á
stofunni
„Fjölmargir hafa fengið
sér heitan pott í garðinn á
undanförnum árum. Það
skiptir meginmáli að pallurinn
við pottinn sé vel úthugs-
aður og huga þarf vel að
staðsetningu og umhverfi
pottsins. Best er að pallur-
inn sé á tveimur hæðum og
smíða tröppur á snyrtilegan
hátt upp á efri pallinn til þess
að auka rýmið umhverfis
pottinn. tröppurnar geta svo
einnig nýst fyrir blómapotta
og luktir sem gera umhverf-
ið mun hlýlegra við pottinn.
Á efri pallinum myndast þá
líka rými fyrir borð og stóla.
Þegar sólpallar eru ekki stórir
eins og í þessu tilfelli er mikið
atriði að fella pottinn inn í
umhverfið til þess að skapa
rými. rýmið umhverfis pott-
inn er t.d. hægt að nota fyrir
glös og diska þegar hann er í
notkun.“
Finna einnig fallegar lausnir
fyrir landsbyggðina
„Við Mattarnir smíðum líka
utan um sorptunnur á fag-
legan hátt og búum til falleg
blómabeð til skrauts og ofan
á hleðslur. Við notum ýmsar
viðartegundir við smíðina
eins og t.d. lerki, eik, furu og
jafnvel tekk. Við tökum glaðir
við verkum á landsbyggðinni
og höfum sinnt verkefnum um
land allt, eins og t.d. á Flúð-
um, Þingvöllum, snæfellsnesi
og í skorradal. Við Mattarn-
ir smíðum í raun allt sem
hugsast getur – innandyra
sem utan. Við getum séð
um parketlögn, parketslípun,
milliveggjasmíði, uppsetningu
innréttinga, uppsetningu
hurða, þakviðgerðir og fleira,“
segir Matti.
Matti smiður, netfang:
mattismidur@mattismidur.
is, sími: 893-3300 og 691-
0621 www.mattismidur.is
Flest sem lýtur að
smíði og garðvinnu
Þúsundþjalasmiður Matti er með
yfir 30 ára reynslu í faginu og hefur
í gegnum árin smíðað nokkur hund-
ruð sólpalla með öllu tilheyrandi.