Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Síða 38
4 Brot af því besta Helgarblað 6 október 2017KYNNINGARBLAÐ Matti sMiður Matthías Pétursson húsgagnasmiður er með þrjátíu ára reynslu af smíði og vinnur með Matthíasi syni sínum, sem er að ljúka námi í húsa- smíði, og mun taka við rekstri föður síns þegar fram líða stundir. Þeir feðgar taka að sér flest það sem lýtur að smíði, nýsmíði og lagfær- ingum. Matthías segist lengi vel hafa unnið við sérsmíði á innréttingum: „undanfarin ár hefur sérsvið mitt hins vegar verið garðar og hellulögn. Ég tek að mér fjölbreytt verkefni eins og sumarhús, einkalóð- ir, lóðir undir nýbyggingar og eins eldra húsnæði. að auki sé ég um nýja garða og endurgerð eldri garða.“ Sólpallar, skjólveggir og hellulögn „Þegar líða fer að vori fara margir að huga að sólpöll- um enda eru þeir ekki bara til þess að njóta sólarinnar heldur nýtast einnig sem frábær framlenging á sjálfri stofunni,“ segir Matti. „Það er einnig annatími í hellulögn og girðingum. skjólveggir, bekkir, kofar og geymslur spretta upp eins og gorkúlur í görðum landsmanna með hækkandi sól,“ bætir hann við og nefnir að fátt sé skemmtilegra en vorverkin. Heitir pottar – framlenging á stofunni „Fjölmargir hafa fengið sér heitan pott í garðinn á undanförnum árum. Það skiptir meginmáli að pallurinn við pottinn sé vel úthugs- aður og huga þarf vel að staðsetningu og umhverfi pottsins. Best er að pallur- inn sé á tveimur hæðum og smíða tröppur á snyrtilegan hátt upp á efri pallinn til þess að auka rýmið umhverfis pottinn. tröppurnar geta svo einnig nýst fyrir blómapotta og luktir sem gera umhverf- ið mun hlýlegra við pottinn. Á efri pallinum myndast þá líka rými fyrir borð og stóla. Þegar sólpallar eru ekki stórir eins og í þessu tilfelli er mikið atriði að fella pottinn inn í umhverfið til þess að skapa rými. rýmið umhverfis pott- inn er t.d. hægt að nota fyrir glös og diska þegar hann er í notkun.“ Finna einnig fallegar lausnir fyrir landsbyggðina „Við Mattarnir smíðum líka utan um sorptunnur á fag- legan hátt og búum til falleg blómabeð til skrauts og ofan á hleðslur. Við notum ýmsar viðartegundir við smíðina eins og t.d. lerki, eik, furu og jafnvel tekk. Við tökum glaðir við verkum á landsbyggðinni og höfum sinnt verkefnum um land allt, eins og t.d. á Flúð- um, Þingvöllum, snæfellsnesi og í skorradal. Við Mattarn- ir smíðum í raun allt sem hugsast getur – innandyra sem utan. Við getum séð um parketlögn, parketslípun, milliveggjasmíði, uppsetningu innréttinga, uppsetningu hurða, þakviðgerðir og fleira,“ segir Matti. Matti smiður, netfang: mattismidur@mattismidur. is, sími: 893-3300 og 691- 0621 www.mattismidur.is Flest sem lýtur að smíði og garðvinnu Þúsundþjalasmiður Matti er með yfir 30 ára reynslu í faginu og hefur í gegnum árin smíðað nokkur hund- ruð sólpalla með öllu tilheyrandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.