Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2017, Blaðsíða 58
34 menning Helgarblað 6. október 2017 A llt frá því að hip-hop spratt fyrst upp úr fátækrahverf- um New York fyrir fjörtíu árum hefur tónlistin verið náið samstarfsverkefni taktsmiðs og rappara, undirleiks og raddar. Starf og hlutverk taktsmiðsins hef- ur þó tekið stakkaskiptum og nýr búnaður sem hann hefur tekið í notkun við tónsmíðarnar endur- mótað hljóðheim rappsins oftar en einu sinni. Blaðamaður DV kynnti sér sögu hip-hop hljóðsmíða og ræddi við nokkra íslenska „pródúsera“ um hljóðheim íslensks rapps, grósku og tæknibyltingar í hljóðfram- leiðslu. DJ-inn verður framleiðandi Í upphafi var það plötusnúður, sem var kallaður DJ, sem sá um að skapa hip-hop tónlistina með tveimur plötuspilurum og „mixer“, með því að endurtaka og blanda saman brotum úr fönk- og sálar- tónlist, á meðan rapparinn, sem fékk heitið MC, flutti rímur yfir taktana. Á níunda áratugnum þegar rappið var ekki lengur aðeins götu- íþrótt fóru hip-hop tónlistarmenn í auknum mæli að nota trommu- heila, hljóðgervla og samplera til að smíða taktana. Hljóðsmiðirnir voru ekki endilega lengur aðeins plötusnúðar heldur farnir að smíða tónlistina frá grunni, þeir voru framleiðendur lagsins. Það sem á ensku er kallað „producer.“ Á tíunda áratugnum þegar hip-hop varð að óumdeilanlegu afli í alheims-meginstraumstón- list varð hljómframleiðslan stöð- ugt fágaðri og um margt svip- aðri popptónlistarsmíðum. Vinsælustu rappararnir voru al- þjóðlegar stjörnur með stór fram- leiðsluteymi, tónlistarmenn og risastór stúdíó á bak við sig. Full- komin hljóðvinnsluver og fjöl- breyttur tækjabúnaður voru hljóðfæri „pródúseranna.“ Á fyrsta áratug nýrrar ald- ar, þegar vinsældir danstónlist- ar (Electronic Dance Music) voru að aukast í Bandaríkjunum og tækin sem tölvutónlistarmenn notuðu urðu stöðugt öflugri, ódýr- ari og aðgengilegri, fóru að koma fram hip-hop framleiðendur sem notuðu aðeins tölvur með hljóð- smíðaforritum og midi-hljóm- borðum til að smíða tónlistina. Ekki aðeins gátu slíkir framleið- endur unnið mun hraðar en áður heldur varð hljóðheimur rapps- ins þar með náskyldari dans- og popptónlist samtímans. Þessi tölvugerða rapptónlist var sú ný- stárlegasta og ferskasta undir lok áratugarins og hefur verið kóngurinn æ síðan, meðal annars á Íslandi. Ekkert nema hljóðnemi og fartölva Þessi þróun hefur gert það að verkum að stór hljóðvinnslu- ver eru orðin lúxus frekar en nauðsyn. Í dag er auðvelt að nálgast hljóðvinnslufor- rit ódýrt (eða með ólög- legu niðurhali) og hægt er að verða sér úti um vel hljómandi staf- ræna hljóðgervla og hljóðpakka á netinu. Á sama tíma hefur aðgengi að kennslu á forritin og hvernig skal smíða tiltekin hljóð aukist með Youtube-myndbönd- um. Möguleikar á að dreifa tón- listinni milliliðalaust á netinu hefur þá gert áhugamönnum og upprennandi tónlistarfólki auð- velt að deila efni, eiga í samskipt- um þvert á landamæri og bregð- ast við þróun og nýrri tísku á áður ómögulegum viðbragðshraða. „Þessi „production“ heimur hefur sprungið mikið út að undanförnu, sérstaklega eftir að EDM sprakk út í Bandaríkjunum og það varð álitið meira kúl að pródúsera. Búnaðurinn er orðinn svo góður og það er orðið svo gott aðgengi að alls konar kennslu á netinu, myndböndum sem sýna manni hvernig er hægt að ná fram ákveðnu hljóði, og alls konar „resourcum.“ Þannig að menn eru orðnir fljótir að læra. Maður þarf ekkert nema míkrófón og far- tölvu og þá getur maður búið til banging hip-hop lag,“ segir Björn Valur Pálsson sem er þekktastur fyrir að vinna tónlist með Emm- sjé Gauta. „Hljóðin sem fólk er að nota – soft-syntharnir – eru farin að hljóma svo miklu, miklu, miklu betur en áður. Ef þú ert svo að vinna með „compact“ hljóðpakka færðu líka mikið af sömplum sem er búið að taka upp en þú færð mikið frelsi til að breyta þeim eins og þú vilt. Svo ertu líka kominn með Youtube og Google, besta skóla í heiminum – þar er allt sem þú þarft að vita,“ segir Helgi Sæmund- ur úr hljómsveitinni Úlfur Úlfur. Arnar Ingi – einnig þekktur sem Young Nazareth – plötusnúður og pródúser Sturla Atlas, hefur svip- aða sögu að segja: „Sjálfur lærði ég eiginlega allt af Youtube. Það er orðið svo einfalt fyrir fólk að skapa Hljóð- smiðir rappsins n Bylting hefur átt sér stað í hljóðheimi íslensks hip-hops n Betri forrit, Youtube- skólinn og aukinn metnaður Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Sampler Samplerar gera tón- listarmönnum kleift að taka upp hljóð eða nota hljóð úr eldri upp- tökum, spila aftur og setja upp takta með þessum forsmíðuðu hljóðum. Akai MPC60 sem kom á markað árið 1988 var lengi vinsæll meðal hip-hop framleiðenda. Trommuheili Á níunda áratugnum fóru hip-hop tónlistarmenn að smíða takta með trommuheilum, tækjum sem innihalda fjölda forsmíðaðra rafrænna trommu- hljóða sem er hægt að raða upp. Afrika Bambataa, Beastie Boys, Run–D.M.C., LL Cool J, og Public Enemy voru á meðal þeirra sem notuðu Roland TR-808 í taktsmíðum sínum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.