Fréttablaðið - 23.10.2017, Blaðsíða 2
Veður
Austankaldi og talsverð rigning
suðaustan til fyrripartinn í dag, ann-
ars úrkomuminna, en lægir síðan og
dregur úr vætu, fyrst sunnanlands.
Milt veður. sjá síðu 22
Kynntu þér málið nánar á seatours.is
VIÐ FERJUM ÞIG
akranes
Ánægð á nöprum októberdegi
Götulistamaðurinn JóJó náði athygli þessarar ungu stúlku þegar hann spilaði fyrir gangandi vegfarendur fyrir utan 10-11 við Austurstræti í gær.
Stúlkan var ánægð með flutninginn, launaði fyrir tónlistina með smápeningi og hélt áfram glaðbeitt niður götuna. Fréttablaðið/SteFán
Kosningar Kjördeild í Flatey á
Breiðafirði hefur verið lokað fyrir
alþingiskosningarnar sem haldnar
verða næstkomandi laugardag.
Fulltrúi Sýslumannsins á Vest-
fjörðum fór þangað á fimmtu-
daginn var og setti upp kjördeild í
Bryggjubúðinni í eynni.
Sex voru á kjörskrá að þessu
sinni og var kjörsókn 100 prósent.
Er þetta í þriðja skiptið sem Sýslu-
maðurinn á Vestfjörðum setur upp
kjördeild í eynni fyrir kosningar og
hefur mælst afar vel fyrir hjá íbúum
eyjarinnar að geta kosið í heima-
byggð.
Utanumhald kosninga í Flatey
á Breiðafirði heyrir undir Sýslu-
manninn á Vestfjörðum og því
nokkuð langt ferðalag fyrir full-
trúa sýslumanns frá Patreksfirði til
Flateyjar.
„Við lögðum af stað frá Patreks-
firði rúmlega níu á fimmtudags-
morgun og keyrðum alla leið í
Stykkishólm. Þaðan fórum við með
Baldri út í Flatey,“ segir Bergrún
Halldórsdóttir, starfsmaður Sýslu-
mannsins á Patreksfirði.
„Þegar við komum svo inn í
Bryggjubúð með kjörgögn var búið
að stilla upp kjörstað og íbúar voru
fljótir að kjósa,“ segir Bergrún.
„Þetta er auðvitað löng vega-
lengd fyrir okkur og því var frábært
að áhöfnin á Baldri beið eftir því að
kjósendur kláruðu að kjósa svo við
gætum farið með bátnum áleiðis á
Brjánslæk,“ segir Bergrún.
Hafa ber í huga að Sýslumaður-
inn á Vesturlandi er einmitt til húsa
í Stykkishólmi.
Um aldamótin 1900 bjuggu á
fjórða hundrað íbúa í eynni og eru
heimildir til um íbúa þar frá land-
námi. Nú búa aðeins tvær fjöl-
skyldur í Flatey að staðaldri.
Bergrún segir þetta vera einn
af föstu liðunum í kosningum, að
keyra um umdæmið og setja upp
kjördeildir áður en að eiginlegum
kjördegi kemur.
„Nú erum við búin með Flatey og
við höldum svo ferðalaginu áfram á
morgun. Þá liggur leiðin í Reykhóla
þar sem við munum setja upp kjör-
deild fyrir íbúa þar,“ bætir Bergrún
við. sveinn@frettabladid.is
Kosningu í Flatey lokið
með 100% kjörsókn
Fulltrúi Sýslumannsins á Vestfjörðum lagði upp í um 400 kílómetra akstur auk
bátsferðar með Baldri svo eyjarskeggjar gætu kosið til Alþingis. Ferjan beið á
meðan kosið var í eynni. Þeir sex sem á kjörskrá eru nýttu atkvæðisrétt sinn.
Starfsmenn Sýslumannsins á Vestfjörðum hafa þrisvar sinnum sett upp kjör-
deild í Flatey á breiðafirði fyrir kosningar. Fréttablaðið/anton brink
etta er auðvitað
löng vegalengd fyrir
okkur og því var frábært að
áhöfnin á Baldri beið eftir
því að kjósendur kláruðu að
kjósa svo við gætum farið
með bátnum áleiðis á
Brjánslæk.
Bergrún Halldórsdóttir, starfsmaður
sýslumannsins á Patreksfirði.
stjórnsýsla Fyrrverandi skólastjóri
Flóaskóla í Flóahreppi hefur óskað
eftir því að leynd sem hvílir yfir starfs-
lokasamningi verði aflétt og að gögnin
gerð opinber almenningi.
Anna Gréta Ólafsdóttir var skóla-
stjóri í Flóaskóla en var sagt upp í
apríl á þessu ári eftir nokkurra ára
starf fyrir skólann. Var við það gerður
starfslokasamningur við Önnu Grétu
og var innihald hans bundið trúnaði.
Hún telur eðlilegt að íbúar sveitar-
félagsins sem og almenningur í land-
inu geti kynnt sér samninginn og vill
aflétta trúnaðinum í þágu gagnsæis.
Sveitarstjórn tók vel í málið á
síðasta sveitarstjórnarfundi og mun
á næstunni, í samráði við lögmann
Önnu Grétu og lögmann bæjarins,
aflétta trúnaði af gögnunum og gera
samninginn opinberan þeim sem vilja
kynna sér innihald hans. – sa
Vill opna gögn
í Flóahreppi um
eigin samning
Dalv í Ku r byg g ð
Tekist er á um
byggingu gervi-
grasvallar í fullri
stærð á Dalvík
sem myndi kosta
sveitarfélagið um
240 milljónir króna.
Formaður íþrótta- og
æskulýðsráðs Dalvíkurbyggðar
hefur áhyggjur af því að kostnaður,
rekstur og viðhald gervigrasvallar sé
of stór fjárfesting fyrir aðeins 1.900
manna sveitarfélag.
Minnihlutinn er sammála því
mati og bendir á að starfsemi yngri
flokka í knattspyrnu sé af skornum
skammti.
„Eins og staðan er núna er enginn
2. og 3. flokkur starfandi í Dalvíkur-
byggð og fjórði flokkur dró sig út úr
Íslandsmótinu síðastliðið sumar,“
segir Guðmundur St. Jónsson, odd-
viti J-listans í bæjarstjórn Dalvíkur-
byggðar.
„Meistaraflokkur er að mestu
leyti skipaður leikmönnum sem
ekki komast í aðallið KA og Þórs á
Akureyri. Á þessu ári spilaði meist-
araflokkur Dalvíkur/Reynis væntan-
lega um 10 heimaleiki. Okkar
skoðun er að bygging á heilum
gervigrasvelli muni ekki hafa mikil
áhrif á þá þróun sem verið hefur,“
segir svo í bókun Guðmundar á
síðasta fundi byggðaráðs.
Kristinn Ingi Valsson, formaður
íþrótta- og æskulýðsráðs Dalvíkur-
byggðar og fulltrúi meirihlutans, var
eini meðlimur ráðsins sem greiddi
atkvæði gegn hugmyndinni um
gervigrasvöll á síðasta fundi ráðsins.
„Ég tel að ávinningur af gervigras-
velli umfram þá aðstöðu sem nú er
í boði sé ekki á pari við kostnaðinn
við byggingu gervigrasvallar, rekstur
hans og viðhald,“ segir Kristinn Ingi
en tekur fram að ef sveitarstjórn og
byggðaráð telji að svo sé ekki þá
fagni hann því og segir gervigras-
völl bæta aðstöðu til knattspyrnu-
iðkunar. – sa
Takast á um
gervigrasvöll
2017
2 3 . o K t ó b e r 2 0 1 7 M á n u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
8
-1
1
8
4
1
E
0
8
-1
0
4
8
1
E
0
8
-0
F
0
C
1
E
0
8
-0
D
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K