Fréttablaðið - 23.10.2017, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 23.10.2017, Blaðsíða 11
365.is SMS + HELLINGUR AF GÓÐU STÖFFI Fáðu 11 gígabæt í símann, endalaust mörg símtöl og sms ásamt aðgangi að Maraþon Now. Maraþon Now inniheldur sumar af fremstu þáttaröðum heims ásamt helling af góðu stöffi. Nánari upplýsingar um tilboðið á 365.is eða í síma 1817. MARAÞON NOW OG 11GB Á 3.990 KR.* *á mánuði Alþingiskosningar eru handan við hornið. Allir flokkar tala fyrir bættu húsnæðisástandi fyrir ungt fólk og aðra hópa. Jafnvel mætti segja að þverpólitísk sam- staða virðist ríkja um að aðgerða sé þörf. Samkvæmt vísitölu félags- legra framfara (VVF – Social Pro- gress Index) stendur Ísland sig ágæt- lega í alþjóðlegum samanburði, en aðeins Danmörk og Finnland eru ofar okkur í þeim samanburði sem birtist í ár. Þó kemur fram að við komum verr út á þremur sviðum; í menntun, umhverfisgæðum og hús- næðismálum. Ástandið í húsnæðismálum er áþreifanlegt. Á höfuðborgarsvæð- inu hefur húsnæðismarkaður ekki náð að þróast þannig að framboð sé nægilegt fyrir fólk sem er að taka sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði, hvort sem um er að ræða húsnæði til leigu eða sölu. Ástand hjá stúd- entum sem sækja um leiguhúsnæði hjá Félagsstofnun stúdenta hefur verið afar erfitt og endurspeglar stöðu á almennum leigumarkaði. Langir biðlistar gefa til kynna að innkoma á almennan leigumarkað sé stúdentum gríðarlega erfið, bæði vegna skorts á framboði og verðlags. Um uppsafnaðan vanda er að ræða og stefnuleysi lagar hann ekki. Verðlagið stýrist m.a. af fram- boði. Vegna takmarkaðs framboðs hefur leigu- og söluverð hækkað síðustu ár. Ungt fólk situr fast í for- eldrahúsum, jafnvel með eigin fjöl- skyldur. Sumir flosna upp úr námi og flytja jafnvel úr landi vegna hús- næðisskorts, enda er húsnæði for- senda þess að margir geti stundað nám hér á landi. Erfitt er að safna fyrir útborgun í fyrstu íbúð án fjársterks baklands og staða leigj- enda er slæm. Skattfrjáls ráðstöfun séreignarsparnaðar vegna fyrstu íbúðar kaupa hefur verið innleidd til að stemma stigu við þessum vanda en greiningar sýna að sú leið gagnist síður þeim sem eru tekjulágir.1 Hærri og hagkvæmari húsnæðis- lán hafa verið nefnd sem önnur lausn. Ný tegund lána breytir þó litlu ef framboð er af skornum skammti. Á síðustu árum hefur Reykjavíkur- borg lagt áherslu á að gera ráð fyrir stúdentum og öðru ungu fólki við uppbyggingu borgarinnar. Til stendur að byggja um 4.000 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu, án hagnaðar- sjónarmiða, fyrir stúdenta og aðra hópa. Námsmenn og annað ungt fólk býr hins vegar víðar en í Reykja- vík. Við hvetjum sveitarfélögin því til að sýna í verki að þau hafi ekki gleymt þessum hópi leigjenda. Haustið 2016 kynnti þáverandi ríkisstjórn til sögunnar stofnfram- lög með það að markmiði að bæta húsnæðisöryggi efnaminna fólks. Á vordögum kynntu fráfarandi ríkis- stjórn og fulltrúar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu svokallaðan húsnæðissáttmála, sem vakti von í annars dimmu umhverfi leigj- enda. Um er að ræða aðgerðará- ætlun í 14 skrefum sem ætlað er að koma böndum á neyðarástand á húsnæðis markaði. Að allri þessari vinnu hefur fjöldi fólks úr flestum flokkum komið, bæði úr röðum þingsins og sveitarfélaganna. Mikil- vægt er að sú vinna haldi áfram og jafnframt að unnið sé að því að ein- falda ferla sem standa í vegi fyrir uppbyggingu húsnæðis, okkur öllum til heilla. Við vonumst til, hvernig sem komandi kosningar fara, að menn beri gæfu til að vinna áfram að sam- eiginlegri lausn í húsnæðismálum ungs fólks. Það þarf að gera þvert á flokka og með samvinnu allra þar til gerðra aðila. Hér er um stórkost- lega hagsmuni stórs hóps í landinu að ræða og hún hefur áhrif á framtíð okkar allra. 1 http://www.ils.is/um-okkur/ frettir/frett/2017/10/16/Stada- leigjenda-er-enntha-slaem/ Aðgerðir í þágu ungs fólks á húsnæðismarkaði Guðrún Björnsdóttir framkvæmda- stjóri Félags- stofnunar stúdenta Ragna Sigurðardóttir formaður Stúd- entaráðs Háskóla Íslands Við vonumst til, hvernig sem komandi kosningar fara, að menn beri gæfu til að vinna áfram að sameiginlegri lausn í húsnæðismálum ungs fólks. Það þarf að gera þvert á flokka og með samvinnu allra þar til gerðra aðila. S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M Á n u D A G u R 2 3 . o k T ó B e R 2 0 1 7 2 3 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 0 8 -1 1 8 4 1 E 0 8 -1 0 4 8 1 E 0 8 -0 F 0 C 1 E 0 8 -0 D D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.