Fréttablaðið - 23.10.2017, Blaðsíða 11
365.is
SMS
+
HELLINGUR AF
GÓÐU STÖFFI
Fáðu 11 gígabæt í símann, endalaust mörg símtöl og sms ásamt aðgangi að Maraþon Now.
Maraþon Now inniheldur sumar af fremstu þáttaröðum heims ásamt helling af góðu stöffi.
Nánari upplýsingar um tilboðið á 365.is eða í síma 1817.
MARAÞON NOW OG 11GB Á 3.990 KR.*
*á mánuði
Alþingiskosningar eru handan við hornið. Allir flokkar tala fyrir bættu húsnæðisástandi
fyrir ungt fólk og aðra hópa. Jafnvel
mætti segja að þverpólitísk sam-
staða virðist ríkja um að aðgerða
sé þörf. Samkvæmt vísitölu félags-
legra framfara (VVF – Social Pro-
gress Index) stendur Ísland sig ágæt-
lega í alþjóðlegum samanburði, en
aðeins Danmörk og Finnland eru
ofar okkur í þeim samanburði sem
birtist í ár. Þó kemur fram að við
komum verr út á þremur sviðum; í
menntun, umhverfisgæðum og hús-
næðismálum.
Ástandið í húsnæðismálum er
áþreifanlegt. Á höfuðborgarsvæð-
inu hefur húsnæðismarkaður ekki
náð að þróast þannig að framboð
sé nægilegt fyrir fólk sem er að taka
sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði,
hvort sem um er að ræða húsnæði
til leigu eða sölu. Ástand hjá stúd-
entum sem sækja um leiguhúsnæði
hjá Félagsstofnun stúdenta hefur
verið afar erfitt og endurspeglar
stöðu á almennum leigumarkaði.
Langir biðlistar gefa til kynna að
innkoma á almennan leigumarkað
sé stúdentum gríðarlega erfið, bæði
vegna skorts á framboði og verðlags.
Um uppsafnaðan vanda er að ræða
og stefnuleysi lagar hann ekki.
Verðlagið stýrist m.a. af fram-
boði. Vegna takmarkaðs framboðs
hefur leigu- og söluverð hækkað
síðustu ár. Ungt fólk situr fast í for-
eldrahúsum, jafnvel með eigin fjöl-
skyldur. Sumir flosna upp úr námi
og flytja jafnvel úr landi vegna hús-
næðisskorts, enda er húsnæði for-
senda þess að margir geti stundað
nám hér á landi. Erfitt er að safna
fyrir útborgun í fyrstu íbúð án
fjársterks baklands og staða leigj-
enda er slæm. Skattfrjáls ráðstöfun
séreignarsparnaðar vegna fyrstu
íbúðar kaupa hefur verið innleidd til
að stemma stigu við þessum vanda
en greiningar sýna að sú leið gagnist
síður þeim sem eru tekjulágir.1
Hærri og hagkvæmari húsnæðis-
lán hafa verið nefnd sem önnur
lausn. Ný tegund lána breytir þó litlu
ef framboð er af skornum skammti.
Á síðustu árum hefur Reykjavíkur-
borg lagt áherslu á að gera ráð fyrir
stúdentum og öðru ungu fólki
við uppbyggingu borgarinnar. Til
stendur að byggja um 4.000 íbúðir á
höfuðborgarsvæðinu, án hagnaðar-
sjónarmiða, fyrir stúdenta og aðra
hópa. Námsmenn og annað ungt
fólk býr hins vegar víðar en í Reykja-
vík. Við hvetjum sveitarfélögin því
til að sýna í verki að þau hafi ekki
gleymt þessum hópi leigjenda.
Haustið 2016 kynnti þáverandi
ríkisstjórn til sögunnar stofnfram-
lög með það að markmiði að bæta
húsnæðisöryggi efnaminna fólks. Á
vordögum kynntu fráfarandi ríkis-
stjórn og fulltrúar sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu svokallaðan
húsnæðissáttmála, sem vakti von
í annars dimmu umhverfi leigj-
enda. Um er að ræða aðgerðará-
ætlun í 14 skrefum sem ætlað er að
koma böndum á neyðarástand á
húsnæðis markaði. Að allri þessari
vinnu hefur fjöldi fólks úr flestum
flokkum komið, bæði úr röðum
þingsins og sveitarfélaganna. Mikil-
vægt er að sú vinna haldi áfram og
jafnframt að unnið sé að því að ein-
falda ferla sem standa í vegi fyrir
uppbyggingu húsnæðis, okkur
öllum til heilla.
Við vonumst til, hvernig sem
komandi kosningar fara, að menn
beri gæfu til að vinna áfram að sam-
eiginlegri lausn í húsnæðismálum
ungs fólks. Það þarf að gera þvert á
flokka og með samvinnu allra þar
til gerðra aðila. Hér er um stórkost-
lega hagsmuni stórs hóps í landinu
að ræða og hún hefur áhrif á framtíð
okkar allra.
1 http://www.ils.is/um-okkur/
frettir/frett/2017/10/16/Stada-
leigjenda-er-enntha-slaem/
Aðgerðir í þágu ungs fólks á húsnæðismarkaði
Guðrún
Björnsdóttir
framkvæmda-
stjóri Félags-
stofnunar
stúdenta
Ragna
Sigurðardóttir
formaður Stúd-
entaráðs Háskóla
Íslands
Við vonumst til, hvernig sem
komandi kosningar fara, að
menn beri gæfu til að vinna
áfram að sameiginlegri lausn
í húsnæðismálum ungs
fólks. Það þarf að gera þvert
á flokka og með samvinnu
allra þar til gerðra aðila.
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 11M Á n u D A G u R 2 3 . o k T ó B e R 2 0 1 7
2
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
8
-1
1
8
4
1
E
0
8
-1
0
4
8
1
E
0
8
-0
F
0
C
1
E
0
8
-0
D
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K