Fréttablaðið - 23.10.2017, Side 4
Átt þú sumarhús eða íbúð sem þú vilt leigja?
Orlofssjóður BHM óskar eftir að taka á leigu sumarhús eða íbúðir
um land allt og annars staðar í Evrópu til að framleigja til
sjóðfélaga sumarið 2018.
Húsnæðið þarf að vera í mjög góðu ástandi, fullbúið húsgögnum
og öðrum viðeigandi húsbúnaði. Þar þarf jafnframt að vera pláss
fyrir 6–8 manns í gistingu.
Áhugasamir húseigendur sendi tölvupóst með
myndum af eigninni á obhm@bhm.is. Fram
komi upplýsingar um staðsetningu, bygg-
ingarár, ástand, stærð, fjölda svefnplássa og
hugmyndir um leiguverð.
Orkumál „Aðstæður fyrir vind-
myllur eru það góðar hér að ég setti
heimsmet á fyrsta ári í framleiðslu,“
segir Steingrímur Erlingsson, eigandi
BioKrafts ehf., sem vill setja upp
nýjar og hærri vindmyllur í Þykkva-
bæ.
Steingrímur kveðst hafa flutt
vindmyllurnar tvær, sem þar eru,
inn notaðar á sínum tíma. Þær hafi
skilað rafmagni framar vonum allt
frá byrjun. Í júlí í sumar eyðilagðist
önnur myllan þegar eldingu laust
niður í hana svo að hún brann.
BioKraft óskar nú eftir að fá að
taka myllurnar niður af stöplum
þeirra og koma þar fyrir tveimur
nýjum mylluturnum. Hæð turnanna
sjálfra er 57 metrar en spaðarnir ná í
96 metra hæð. Hæð núverandi turna
er 53 metrar með spöðum sem ná í
74 metra hæð.
Skipulagsnefnd Rangárþings ytra
segist ekki gera athugasemdir við að
vindmyllur BioKrafts verði teknar
niður en leyfir hins vegar ekki upp-
setningu stærri myllanna.
„Þetta eru minnstu myllur sem
eru framleiddar í dag fyrir okkar
markaðssvæði. Ég get farið til Kína
og keypt vindmyllu með gamalli
hönnun en það myndi enginn gera.
Þetta er eins og vera heimilað að
vera með svarthvítt sjónvarp,“ segir
Steingrímur sem undirstrikar að
nýju myllurnar séu öruggari og betri
en þær gömlu enda sé þróunin ör á
þessu sviði.
Að sögn Steingríms er ætlunin að
sækja um breytingu á deiliskipulagi
svo setja megi stærri gerð af myllum
upp. Hins vegar sé alls óvíst hversu
langan tíma það taki. BioKraft
selur raforku til Orku náttúrunnar,
dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur.
„Magnið frá okkur samsvarar raf-
orkunotkun eitt þúsund einbýlis-
húsa,“ segir Steingrímur sem kveður
möguleikana mikla á þessu sviði hér-
lendis, ekki síst í Þykkvabænum. „Ég
trúi á þetta og setti aleiguna í þetta á
sínum tíma.“ – gar
Fær ekki að reisa tvær nýjar og hærri vindmyllur í Þykkvabæ
Þetta eru minnstu
myllur sem eru
framleiddar í dag fyrir okkar
markaðssvæði.
Steingrímur Erlings-
son, eigandi Bio-
Krafts ehf.
SlyS Skipta þarf um augasteina í átján
ára konu og þrítugum karlmanni sem
hlutu alvarlega áverka þegar tappar af
Floridana-ávaxtasafaflöskum skutust
í augu þeirra í lok ágúst. Læknar hafa
sagt stúlkunni að óvíst sé að hún fái
100 prósent sjón, enda séu dreifðar
skemmdir í sjónhimnu, og maðurinn
þarf að gangast undir sína aðra aðgerð
á næstu mánuðum.
„Við erum í hálfgerðri biðstöðu og
þurfum að sjá hvort sjónin lagast. Í
þrjár vikur eftir slysið sá hún ekkert
með hægra auganu og fékk síðan 30
prósent sjón og er komin upp í 60
prósent,“ segir Oddný Sigrún Magnús-
dóttir, móðir Þóru Bjargar Ingimund-
ardóttur.
Ölgerðin, framleiðandi ávaxta-
safanna, hefur harmað atvikin sem
komu upp eftir að yfirþrýstingur
myndaðist í plastflöskum af Floridana
með þeim afleiðingum að margir til-
kynntu um að tappar hefðu skotist
af með miklum krafti. Fyrirtækið
innkallaði vöruna í kjölfarið en hóf í
byrjun október sölu á henni á ný en
með nýjum töppum með afloftunar-
raufum.
„Ég er búin að vera í sambandi við
Ölgerðina út af þessu máli. Ég gerði
þeim grein fyrir því að þetta færi til
lögfræðings af okkar hálfu þar sem
þetta væri sýnilega ekki mál sem
myndi jafna sig að fullu,“ segir Oddný
og bætir við að dóttir hennar hafi
misst mikið úr skóla. Þá sé beinn
útlagður kostnaður vegna ástands
hennar talsverður og útlit fyrir að Þóra
Björg fari ekki í aðgerð fyrr en að jóla-
prófum loknum.
„Hún reynir hvað hún getur en
þarf oft að labba út úr tíma því þetta
er álag á augað sem veldur
höfuðverk. Verslunarskól-
inn á mikið hrós skilið fyrir
þann skilning sem henni
hefur verið sýndur. Fyrst
var talað um að hún þyrfti
að fara í aðgerð á bæði fremri og
aftari hólfum augans en það er alla-
vega ljóst núna að það þarf að skipta
um augastein. Það val þarf að vanda
vel því hún er jú einungis átján ára og
það er vel þekkt að gerviaugasteinar
hafa ákveðinn líftíma,“ segir Oddný.
Svavar Þór Georgsson þurfti að
undirgangast aðgerð á hægra auga
eftir sambærilegt atvik sem hann lýsti
sem myndarlegu rothöggi. Við það
fékk hann skurð á augað og blæddi
inn á það.
„Staðan er ekki góð eins og gefur að
skilja. Ég er ennþá með takmarkaða
sjón á auganu og þarf að gangast
undir aðra aðgerð. Það þarf að skipta
um augastein og það eru enn svartir
deplar á sjónhimnunni og töluverður
munur á sjóninni sem var fullkomin
fyrir slysið. Ég hef stundað veiði-
mennsku og skotfimi og þetta hefur
aftrað mér í öllum áhugamálum og
vinnu. Málið er enn hjá lögfræðingi
mínum.“ haraldur@frettabladid.is
Þurfa að fara í aðgerð og fá nýja
augasteina eftir tappaslysin
Átján ára kona og þrítugur karl þurfa nýja augasteina en þau hlutu alvarlega áverka þegar tappar af Florid
anaflöskum skutust í þau af miklum krafti. Enn er óvíst hvort þau fá aftur 100 prósent sjón en þau sáu lítið
sem ekkert fyrstu vikurnar á eftir. Hafa bæði leitað til lögfræðinga. Ölgerðin breytti töppunum í kjölfarið.
Þóra Björg Ingimundardóttir hefur misst úr skóla eftir að tappi af Flóridana-
ávaxtasafaflösku skaust í auga hennar í lok ágúst. FréttaBlaðIð/SteFán
Hafnarfjörður Um 1.300 milljóna
króna afgangur var á rekstri Hafnar-
fjarðarkaupstaðar fyrstu átta mán-
uði ársins.
Áætlun bæjarins miðaði við að
hagnaðurinn yrði um 460 millj-
ónir. Er því afagangurinn um 850
milljónum króna meiri en áætlun
gerði ráð fyrir.
Fram kemur í átta mánaða upp-
gjöri sveitarfélagsins, sem lagt var
fyrir bæjarráð fyrir helgi, að tekjur
séu um 550 milljónum meiri en
áætlun gerði ráð fyrir. Á sama tíma
eru gjöldin á pari við það sem áætl-
anir gerðu ráð fyrir.
Fjármagnsliðir eru síðan 337
milljónum krónum minni en gert
var ráð fyrir í upphafi ársins. – sa
Betri afkoma
hjá Hafnarfirði
en búist var við
ESB Skattaundanskotsnefnd Evr-
ópuþingsins dregur þá ályktun í
nýsamþykktri skýrslu að baráttu
aðildarríkja Evrópusambandsins,
ESB, gegn skattaundanskotum hafi
verið ábótavant. Löggjöf ESB-ríkja
varðandi skattaundanskot og pen-
ingaþvætti hafi ekki verið samræmd.
Framkvæmdastjórn ESB er jafnframt
gagnrýnd fyrir að fylgja ekki eftir
lögum. Nefndin var sett á laggirnar
eftir að Panamaskjölin voru birt.
Danskir fjölmiðlar hafa það
eftir Evrópuþingmanninum Jeppe
Kofod, sem er einn skýrsluhöfunda,
að stærstu skúrkarnir séu auðvitað
bankar, lögfræðingar, endurskoð-
endur og ráðgjafar sem hjálpað hafi
til við skattaundanskot og peninga-
þvætti auk þess sem þeir hafi látið
hjá líða að tilkynna yfirvöldum um
grunsamlegar tilfærslur á fé.
Í skýrslunni er bent á að sérstakri
nefnd á vegum ráðherraráðsins, sem
ætlað var að meta skattalög sem
gilda í ESB-ríkjum og víðar, hafi lítið
orðið ágengt í vinnu sinni undan-
farin 19 ár. Nefndin á að fá aðildar-
ríki ESB til að samþykkja að breyta
eða fella úr gildi þau skattalög eða
-reglur sem talin eru stuðla að skað-
legri skattasamkeppni. Hvetja átti
aðildarríkin til að forðast að setja
slíkar reglur í framtíðinni. Einstök
ríki geti komið í veg fyrir breytingar
án þess að vitað sé hver þau eru þar
sem leynd hvíli yfir öllum vinnu-
gögnum nefndarinnar. Tillögur
hennar þurfa samþykki allra.
Kofod segir að breyta þurfi verk-
lagi nefndarinnar. Þegar um innri
markað sé að ræða sé ekki hægt að
einstök ríki verji eigin skattastefnu
þannig að þau aðstoði í raun við
stuld á skatttekjum annars lands
með því að vera skattaskjól. – ibs
Aðgerðaleysi Evrópuríkja í tengslum
við skattaundanskot sætir gagnrýni
Baráttunni í eSB gegn skattaundan-
skotum er ábótavant, segir í nýrri
skýrslu evrópuþingsnefndar.
SamGönGur Eimskip, rekstraraðili
Herjólfs, harmar að skuldinni hafi
verið skellt á fyrirtækið í umfjöllun
um tafir á viðgerð skipsins. Þetta
kemur fram í tilkynningu frá fyrir-
tækinu.
Við slipptöku Herjólfs í vor kom
í ljós skemmd á gír skipsins vegna
galla. Upphaflega var stefnt að því að
ljúka viðgerð fyrir 1. október. Þegar
ljóst varð að dráttur yrði á afhend-
ingu varahluta var Herjólfi því aftur
komið í áætlun.
„Eimskip hefur ekki á neinn hátt
tafið verkið nema síður sé og tekist
á við hverjar þær óvæntu aðstæður
sem upp hafa komið á hverjum tíma.
Seinagangur við smíði varahlutanna
hefur ítrekað komið í veg fyrir að við-
gerð hefjist,“ segir í tilkynningunni.
– kó
Vísar áburði
um tafir á bug
Upphaflega var stefnt
að því að ljúka viðgerð
fyrir 1. október.
Það val þarf að
vanda vel því
hún er jú einungis átján
ára og það er vel þekkt
að gerviaugasteinar
hafa ákveðinn líftíma.
Oddný Sigrún Magnúsdóttir,
móðir Þóru Bjargar Ingi-
mundardóttur
2 3 . O k t ó B E r 2 0 1 7 m á n u D a G u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
8
-2
5
4
4
1
E
0
8
-2
4
0
8
1
E
0
8
-2
2
C
C
1
E
0
8
-2
1
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K